Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 78
78
Hugsjónir Edisons.
heldur einuig leiða af sér syo mikla auðlegð tímanlegra
gæða, að slíka hefir heimurinn enn ekki þekt; og hann
sér, að réttlát skynsemi muni úthluta auðnum meðal þeirra,
sem skapa hann.
»Staða fátæklinganna«, sagði hann, »á fyrir sér að
batna innan skamms. Brátt mun fátæktin vera horfin —
í þeirri mynd, er vér nú þekkjum. Áður en öld er
liðin, munu vélar vinna alt líkamlegt erfiði. Hvað ver-
öldin verður á tveim, þrem öldum þori eg ekki að lýsa.
Enginn getur dregið upp mynd af þeim geysilegu fram-
förum, sem eru í aðsigi«.
Th. A. Edison.
Þetta eru orð draumspekings ? Já, Edison er drauma-
maður í sama skilningi og allir uppfundningamenn, heim-
spekingar og skáld eru það. í huga sínum sá hann raf-
ljósið, áður en það var til. Og á sama hátt hefir hann
séð hverja uppfundningu, sem hann hefir gert, áður en
hann gerði hana.
Og nú sér hann nýjan heim myndast, meðan hinn
gamli er enn við lýði.
sUppfundningar hafa altaf hjálpað fátæklingunum«,
sagði Edison, »en á ókomnum tímum munu þær gera það
enn þá meira — gera það svo, að stórum munar. Héðan