Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 79
Hugsjónir Edisons.
7»
af munu uppfundningarnar ekki svo mjög stefna að því að
gera fáeina menn auðuga, heldur að því að gera marga
farsæla.
Vélfrœði framtíðarinnar.
»Skoðun mín er sú, að aðal-framfarirnar í nánustu
framtíð muni einkum verða í því fólgnar að smíða tull-
komnar sjálfyrkisvélar, vélar, er vinna sjálfar og stjórna sér
sjálfar. Hingað til höfum vér aðallega starfað að tilbún-
ingi véla, er unnið hafa að framleiðslu helztu hluta þess,
sem starfað er að; síðan höfum vér sett hlutana saman.
En sá tími er að ganga í garð, er vér getum t. d. látið
leður inn í vél og fengið albúna skó út úr henni aftur,
jafnvel í snyrtilegum öskju umbúnaði.«
»Því ekki það ? Það er fyllilega framkvæmanlegt. Að
hugsa upp slíka vél er ekki ofætlan góðum heila. Það
eru menn að koma fram á sjónarsviðið, sem geta gert
þetta. Uppfundninga-gáfan þroskast við það að nota hana.
Ameríku-menn nota þessa gáfu meir en nokkur önnur þjóð.
Þeir eru mestu hugvitsmenn heimsins. Vér höfum lært
að skapa vélar, sem búa til sérstaka hluta, og nú erum
vér að ganga feti framar: að finna upp vélar, sem bæði
framleiða hina ýmsu hluta og setja þá líka saman. Inn-
an fárra ára munu slíkar sjálfyrkisvélar vinna næstum
alt, og tveir menn munu afkasta eins miklu þá, og þrjá-
tíu menn nú«.
— »Hvað eiga svo hinir tuttugu og átta að gera?«
— »Þeir munu taka sér fyrir atvinnu í einhverjum
öðrum greinum. Því ódýrara sem vér getum búið til föt,
skó, húsgögn o. s. frv., því meira munu menn óska sér
af öllu þessu. Maðurinn er óseðjandi að öllu öðru en
fæðu. Hann getur ekki etið nema ákveðinn skamt, en
hann mundi kaupa allan heiminn, ef hann hefði ráð á
því. Enda þótt vér kæmumst upp á að smíða jafn-full-
komnar vélar og áður er sagt, mun samt aldrei skorta
eftirspurn þeirra hluta, er vér getum framleitt. Það mun
ætíð verða vóg verkefni eftir handa hinum tuttugu og