Skírnir - 01.01.1910, Blaðsíða 89
Ritfregnir.
m
og handrita safni sínu árið 1726, hinn síðari skrá ifir bókasafn
Resens prófessors, er hann gaf háskóianum á árunum 1675—1685,
enn fórst í brunanum mikla 1728. Báðir þessfr viðaukar skíra í
ýmsum greinum sögu Arnasafns.
B. M. Ó.
Lewis Wallace: Firstu jól ^ða Messíasai’tíðin. Skáld-
saga, sem Jón Bjarnason hefur þítt úr ensku. Winnipeg 1909.
U
Margir af lesendnm Skírnis munu kannast við hina frægu
skáldsögu eftir Wallace, sem nefnist Ben Hur og gerist á Krists
dögum. Sagan lísir átakaulega lífi og landsháttum á þeim tímum
og er um leið listaverk: hún sameinar það tvent, að fræða og
heilla lesandann. Hún hefur áður verið þídd á íslensku, enn að
eins í ágripi, og ekki eftir frumritinu, heldur eftir danskri þíðingu.
»Firstu jól« er firsta bók þessarar skáldsögu og nokkurs konar
inngangur til hennar, enn er í rauninni samt sem áður sjerstakt
verk. I þeirri þíðingu á Ben Hur, sem kom út hjer í Reikjavík
firir tveim árum, er nálega ekkert. af efni þessa inngangsþáttar, og
ættu því þeir, sem eiga þessa þíðing, eigi síður enn aðrir, að fá
sjer þessa firstu bók hennar í þíðingu sjera Jóns Bjarnasonar, sem
er gerð eftir sjálfu frumritinu. Nafn þíðandans er nægileg trigging
firir því, að þíðingin er nákvæm og rótt. Málið er kjarngott og
hreint, eins og þíðandanum er lagið; sumstaðar er setningaskipun
nokkuð flókin, og kemur það af því, að þíðandinn þræðir orð
frumritsins, sem næst verður komist.
B. M. Ó.