Alþýðublaðið - 06.12.1959, Síða 1
mann. En það er oðru
nær. Hann á bara að fara
í 80 000 feta hæð til þess
að rannsaka ástand og
horfmr á þeim slóðum. Að-
ur en ferðin hófst voru
fest við hann ýms mæli-
tæki. Sú er skýringin á
heftiplástrinum, sem þið
sjáið. — P.S. Þetta var am
erísk tilraun og tókst með
ágætum. Maðurinn á
myndinni komst í 15
mílna hæð, sem er nýtt
háloftsmet.
■
SVONA lítur nútíminn
út. Maður gæti haldið, að
það ætti að fara að gera
eitthvað vont við þennan
imwwmwiwmwwwwwiwmmmwwwmiwwwmwwm*mw
40. árg. — Sunnudagur 6. des. 1959 — 262. tbl.
VIÐ veltum því fyrir
okkur og við veltum því
fyrir okkur — OG VIÐ
VELTUM ÞVÍ FVRIR
OKKUR hvað við ættum
að skrifa um þessa mynd.
Og við komumst að þeirri
niðurstöðu, að liér væri
Alþýðublaðsmynd, sem
ekkert væri hægt að segja
um nema þetta:
Blaðið hefur hlerað
Að mikil óeining sé í Bygg-
ingarsamvinnufélagi
Reykjavíkur vegna sam-
skipta þess við Byggi, en
forstójir Byggis hefur um
langt skeið verið áhrifa-
maður í Byggingarsam-
vinnufélagi Rvíkur. —
Reynt hefur verið að
koma á aðalfundi oft und
anfarið, en ekki hefur það
tekizt og næsta tilraun
verðuir gerð innan
skamms.
AÐEINS tveir togarar lönd-
uðu afla í Reykjavík í vikunni,
sem leið. Hvalfelí kom frá Ný-
fundnalandi á föstudaginn og
landaði 280 lestum af karfa. •—
Hallveig Fróðadóttir Iandaði
sama dag 120 lestum. Var það
mestmegnis þorskur, sem veidd
ist á heimamiðum.
Undanfarið hefur verið slæm
tíð á heimamiðum og afli því
tregur. Togarinn Askur var
væntanlegur til Reykjavíkur í
gær frá Nýfundnalandi. Einnig
eru Þormóður goði og Þor-
steinn Ingólfsson á leiðinni af
sömu slóðum. Eru allir þessir
togarar með fullfermi, að því
er Hallgrímur Guðmundsson
hjá Togaraafgreiðslunni tjáði
blaðinu í gær.
Dráttarbraut á Akureyri
iilbúin í árslok 1961?.
HAFNARNEFND Akureyrar
hefur leitað tilboða erlendis í
byggingu allt að 1000 tonna
dráttarbrautar, og hafa borizt
svör frá 9 fyrirtækjum í Þýzka
landi, Bretlandi og Bandarikj-
unum. Þá hefur hafnarnefnd
fengið í sína þjónustu Þorbjörn
Karlsson verkfræðing, sem
vinnur í nánu sambandi við
vitamálaskrifstofuna.
Hefur hann samið álitsgerð
um fyrrgreind tilboð, þar sem
bent er á, að ekki sé auðvelt að
bera þau sarnan, þar sem ekki'
hafi verið lögð fram fullkomin
útboðslýsing og teikningar af
hálfu hafnarnefndar. Þá segir
Þor'björn ,að eins og þessi skip
gerist í dag, þurfi slippurinn að.
geta tekið upp 1600 lesta skip
Framhald á 5. síðu.
Sjávarúfvegsmála-
útvegsmenn.
AÐALFUNDUR LÍÚ hefst í
dag kl. 4 síðd. Þetta er 20. að-
alfundur sambandsins, en það
var stofnað 17. jan. 1959.
Fundurinn verður haldinn í
Tjarnarcafé og sitja hann 80
fulltrúar, en gert er ráð fyrir
að hann standi til miðvikudags.
Aðalviðfangsefni fundarins
verður rekstrargrundvöllur
sjávarútvegsins í framtíðinni,
jafnframt því sem önnur hags-
munamál sjávarútvegsins mun
bera á góma.
Sjávarútvegsmálaráðherra
Emil Jónsson ávarpar fundinn
og dr. Jóhannes Nordal banka-
stjóri flytur ræðu um horfur í
verzlunarmálum Vestur-Ev-
rópu.
I FYRRINOTT fór fram at-
kvæðagreiðsla í neðri deild um
þá tillögu Framsóknarmanna að
heimila ríkisstjcirninni að
'greiða bændum hin margum-
ræddu 3,18%. Það sem vakti
mesta athygli í sambandi við at
kvæðagreiðsluna var það, að
kommúnistar voru þrílclofnir.
Tveir kommúnistar, Gunnar
Jóhannsson og Karl Guðjóns-
son, greiddu atkvæði með til-
lögu Framsóknar. Eðvarð Sig-
urðsson greiddi atkvæði gegn
henni. Og 4 kommúnistar sálu
hjá við atkvæðagreiðsluna, eða
þeir Einar Olgeirsson, Lúðvík
Jósepsson, Geir Gunnarsson Og
Páll Kristinsson.
Ufvarps-
umræðurnar
stjórnarandstaðan
hefur heimtað útvarpsumræður
frá alþingi vegna framkominn-
ar tillögu um frestun á þing-
störfum um sinn.
Útvarpsumræðurnar fara
fram annað kvöld, mánudags-
kvöld, og hefjast kl. 8.15, Um-
ferðir verða tvær.
UM HELGINA var aust-
ur-þýzkur veitingamaður
dæmdur í átján mánaða
fangelsi og kona hans í
tólf mánaða fangelsi fyrir
að leyfa gestum að horfa
á sjónvarpssendingar —
frá Vestur-Þýzkalandi.
HIN spenriandi sákámáláléik
ur Agötu Christie „Músagildr-
an“ verður sýnd í næst síðasta
sinn fyrir jól í Kópavogsbíói í
kvöld kl. 9,15.
Leikurinn hefur hlotið mjög
góða dóma og er góð kvöld-
skemmtun.
Síldveiðarnar
sunnan lands:
öltun aðeins
ílyrra
LOKIÐ er nú við að salta í
21000 tunnur sunnan lands í
haust og fram að þessu. Er þetta
aðeins þriðjunugr þess, cir salt-
að hafði verið á sama tíma í
fyrra, en þá nam söltun Suður-
landssíldar 65 000 tunnum.
Alþýðublaðið fékk þessar upp
lýsingar hjá Gunnari Flóvents
skrifstofustjóra Síldarútvegs-
nefndar í gær. Hann sagði, að
ástæðan fyrir því hversu mikið
minni söltunin vær nú en í
fyrra væri sú, að ógæftir hefðu
veiið óvenju miklar undanfar-
ið. Þá hefði í fyrra verið tals-
verð síldveiði á Breiðafirði og
söltun á verstöðvum við Breiða
fjörð numið 10 þús. tunnum, en
nú hefði söltun verið lítil sem
engin þar.
65 ÞÚS. Á MÁN. í FYRRA
Gunnar sagði, að í fyrxa
hefði verið saltað í 65 þús. tunn
ur frá miðjum nóvember og
fram til 20. desember, en þá
lauk síldveiðunum. Gæti mikið
veiðzt í desember nú ef vel viðr
aði og söltun því aukizt mikið
enn, en þó væru allar horfur á,
að söltun yrði mun minni nú en
í fyrra og hið sama væri raunar
að segja um frystingu.
SAMIÐ UM 55 ÞÚS. TUNNUR
Gunnar sagði enn fremur, að
Framhald á 3. síðu.
jWWVWWWWCWWVrtMWWWWWWWWWWWCW