Alþýðublaðið - 13.12.1959, Blaðsíða 1
1
40. árgr. — Sunnudagur 13. des. 1959 — 267. árg.
EINS og skýrt var frá í blað-'
inu í gær, hefur náðst sam-
komulag um síldarsöltun í
Hafnarfirði og heldur söltun
þar bví áfram. Auk þess hefur j
verið samið í Reykjavík,
Grindavík og Vestmannaeyj-1
um upp á sömu kjör. Áður.
bafði náðst samkomulag milli
aðila á Akranesi, en hefur ekki
enn verið staðfest af Vinnu-
veitendasambandi ísiands.
Hins vegar hefur. ekkert
samkomulag náðst í Keflavík,
þrátt fyrir talsverðar samninga
ýiðræður, og i gærdag var ekki
útiit fyrir að samið yrði að
sinni. Hefur söltun leg'ð niðri
■í Keflavík í nokkra. daga af
þessúm sokum.
NÝJU SAMNINGARNIR.
Nýju samningarnir, sem
gilda frá 1. nóvember s.l. yfir
núverandi síldarvertíð (vetrar-
vertíð) eru á þessa leið:
Fyrir að hausskera og sló-
draga:
1. Stórsíld (1—500 í tunnu) kr.
35,21.
2. Millisíld (500—700 í tunnu)
kr. 40,10.
3. Smásíld (700—900 í tunnu)
kr. 49,88.
Fyrir að rúnnsalta:
1. 1—500 síldar í tunnu — kr.
20,54.
2. 500—700 síldar í tunnu —
kr. 26,40.
3. 700—900 síldar í tunnu —
kr. 32,27.
Eins og sagt var í blaðinu í
gær, er hér ekki um kauphækk-
un að ræða, heldur sjálfsagða
lagfæringu, þar sem í eldri
samningum er aðeins gert ráð ■
fyrir 600 síldum í tunnu sem
hámarki. Aftur á móti er síld-
in, sem nú veiðist mjög smá
sum hver, þannig að allt að 900
komast í tunnuna.
MHMHmwmHHMWMtMWM
HÉRNA er fyrsti jóla-
sveinninn. — — Hann
vinnur í Liverpool á laug-
arveginum. Alþýðublaðs-
myndin var tekin af hon-
um í gær. Góðlegur karl,
finnst ykkur ekki?
FIMM togarar lönduðu í
Reykjavík í síðustu viku.:
Neptúnus landaði á sunnudag
inn 135 lestum, Þormóður goði
landaði á mánudaginn 367 lest-
um. Þorsteinn Ingólfsson laná-
aði á miðvikudag 343 lestum og
siama dag landaði Úranus 279
lestum. Loks var verið að landa
úr Þorkeli mána í gær, ca. 360
lestum.
Samtals eru þetta rúmlega
1480 lestir.
ENN halda viðræður áfram
með fulltrúum neytenda og
framleiðenda. Hefur einkum
verið rætt um það undanfarið,
að breyta lögunumi um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins.
Fulltrúar neytenda leggja á
VÉLBÁTURINN „Hafþór“
kom með 4—500 tunnur síldar
til Reykjavíkur um hádegisbil-
ið í gær. Báturinn hafði verið
að veiðum í Miðnessjó á veg-
um Fiskileitar- og veiðitilrauna
nefndar, sem var að gera til-
raun með sænskt síldartroll. |
Samkvæmt upplýsingum 111- '
Uga Guðmundssonar, formanns'
nefndarinnar, sem var með í
veiSiförinni og fylgdist- með til-
raununum, virðist þetta nýja
troll gefa góða raun og vera lík
legt til að veiða í síld í veru-
legum mæli.
Tókst þessi veiðitilraun yfir-
leitt mjög vel og telur Illugi
þetta hafa verið verúiegan á-
Framhald á 5. síðu.
það mikla áherzlu að lögunum
um Framleiðsluráð verði bevtt,
þannig, að Framleiðsluráðið
hafi ekki áfram alræðisvald um
ákvörðun dreifingarkostnaðar
og smásöluverðs.
NÝ SEXMANNANEFND.
Mun einkum hafa verið um
það rætt, lað setja á fót nýja
sexmannanefnd er hefði alia
verðákvörðunina með höndum
og þá einnig ákvörðun dreifing-
arkostnaðar og smásöluverðs. -
Mun hafa komið til tals iað Stétt
arsamband bænda hefði tvo full
trúa í þeirri nefnd, Framleiðslu
ráðs landbúnaðarins 1 og neyt-
endur 3. Ekkert hafði þó verið
endanlega ákveðið er Alþýðu-
blaðið hafði síðast fregnir af
viðræðunum.
VERÐÁKV ÖRÐUNIN
EFTIR.
Þó að samkomulag náist um
breytingu á lögunum um Fram-
leiðsluráð og sett verði upp ný
sexmannanefnd er eftir að
semja um sjálft verðið. Nýr við
ræðufundur hófst kl. 4 í gær en
vegna þess hve blaðið fór
snemma í prentun gat blaðið
ekki haft fregnir af þeim fundi.
KEFLA'VÍK í gær. — Afli
hringnótabáta var sæmilegur í
nótt. Kópur landaði hér 270
tunnum í dag, Gylfi 170 og
Gunnar Hámundarson, sem er
með reknet kom með 210 tunn-
ur. Engin söltun enn.
MÆTIU TIL BRUÐKAUPSINSIFALLHLIFUM
Taipei, 12. des. (Reuter).
í DAG fór fram nýstárleg
hjónavígsla á Súður-Formósu.
Brúður, brúðgumi, svaramað-
ur, gestir og hljómlistarmenn
mættu til brúðkaupsins í fall- I
hlífum! — Öll hersingin varp-
aði sér út úr Dakotavél og
sveif til jarðar kippkorn frá
kirkjunni.
Vígslan fór fram fáeinum
mínútum síðar.
Brúðguminn er fallhlífat-
hermaður.
Þrjú þúsund áhorfendur
voru vitni að því þegar brúð-
hjónin og fylgdarlið þeirra
stökk úr flugvélinni.