Alþýðublaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 20.12.1959, Blaðsíða 5
 eftir Einar Hjörleifsson Kvaran Tómas Guðmundsson skáld annast útgáfu ritgerða- safns ]>essa öndvegishöfundar íslendinga, sem jafn- framt var einn atkvæðamesti blaðamaður landsins, lét stjórnmál til sín taka, og skrifaði sæg ritgerða um hvers konar andleg efni, trúmál, bókmenntir, leiklist og önnur menningarmál. Hann var sífelld- lega opinn fyrir öllum andlegum straumum sam- tíðarinnar, heimsborgari í hugsun, víðsýnn og frjálslyndur, boðberi mannúðar, umburðarlyndis og kærleika. MANNLÝSINGAR eru mjög skemmtilegar aflestrar, mótaðar af per sónulegum stíl og bornar uppi af sérstæðri og sannfærandi rökvísi. Dómsdagurinn í Flatatungu eftir Selmu Jónsdóttur, listfræðing Þessi bók mun áreiðanlega vekja mikla athygli bæði inn- anlands og utan. Hún f jallar um útskornar furufjalir frá Bjarnastaðahlíð í Skagafirði, sem höfðu verið notaðar í árefti á skemmu þar, en eru nú geymdar í Þjóðminja- safni. Fjalir þessar komu að Bjarnastaðahlíð frá Flata- tungu í sömu sýslu og munu vera frá því 1070, að því er höfundur bókarinnar færir rök að. Myndirnar á fjölum þessum hafa valdið mönnum ærnum heilabrotum, en mieð hók þessari virðist uppruni þeirra ráðinn. Út frá efnisatriðum og stíl myndanna færir höfundur rök að menningartengslum, sem vissulega munu koma mönn- um á óvart. Bókin er í stóru hroti, 140 bls. að stærð. í henni eru 66 glæsilegar mynd- ir, þar sem myndirnar á f jölunum eru bornar samian við erlend listaverk. Ljósmyndirnar af fjölunum gerði þýzkur ljósmyndari, en bókin er prentuð í Sviss. Heimspekideild Háskólar íslands hefur dæm’t ritgerð þessa hæfa til dokíorsvarnar, og verður þá Selma Jónsdóttir fyrsta konan, sem ver doktorsritgerð hér. Bókin er komin út á íslenzku og kemur bráðlega einnig á ensku, Bækur AB fásí í bókabúðum, en jafnframf er afgreiðslan að Ijamargötu 16 opin félagsmönnum eins og verzlanir fyrir jóiin. Alþýðublaðið — 20. dies. 1959

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.