Þjóðólfur - 12.08.1864, Síða 3

Þjóðólfur - 12.08.1864, Síða 3
— 159 gerði að skilyrði fyrir því, að hún færi héðan til Hafnar og á konúngsfund. Hugvekjur útaf þiisnndára landnáml Ing'ólfs og fyrstn byggíngu íslands. (AcJsent. Sbr. 16. ár þjótiólfs, bls. 1—2). I. í 1.—2. númeri af þessum árgángi »f>jóð- <51fs« heflr skólakennari Ilalldór Friðriksson íReykja- vík stúngið upp á því, að Islendíngar með ein- hverju hátíðlegu móti árið 1874 mintist þess við- burðar, þegar landið heflr bygt verið í þúsund ár, þar sem sá viðburðr sé liinn fyrsti og því einna merkastr í sögu vorri, og eins og gæti nefnzt af- mælisdagr fóstrjarðar vorrar, og í því efni þótt bezt við eiga, að halda þessum merka viðburði á lopti með því, að reist væri hús i Reykjavík með fjársamskotum Islendínga, er hæfilegt væri til geymslu allskonar gripa og fornmenja, er oss á einhvern háttkynni að áskotnast. þar nú málefni þetta, sem hann þannig hefir hafið máls á, hefir vakið eptirtekt mína, þá hefi eg, sem af fúsum vilja vildi styðja að því, að minníng viðburðar þessa á heiðarlegan hátt fyrir vort kæra fóstrland yrði á lopti haldið, einnig hugsað mér að láta mitt álit í Ijósi í þessu efni, og skal eg þá geta þess, að enda þótt eg reyndar eigi geti neitað því, að mér virðist, að nauðsyn gæti borið til þess, einkum þegar að fteiri fornmenjar samansafnast, að hús væri bygt til geymslu handa þeim, þá verð eg þó á hinn bóginn að álíta, að slík húsbyggíng eigi standi í því sambandi við hina fyrstu byggíngu íslands, að Íslendíngar á þenna hátt, eins og skóla- kennarinn hvetr landsmenn vora til, ætti aðminn- ast þessa viðburðar í sögu íslands; heldr hefir mér þarámóti komið til hugar, að fremr ætti við, svo að viðburðr þessi yrði því ljósari og hátíðlegri í augum landa minna og þeirra, er úr öðrum lönd- um koma til Reykjavíkr, á miðjum Austrvelli sem hinu helzta torgi bæarins, að reisa gamla íngólfi Arnarsyni sem vorum fyrsta landnámsmanni, og þeim, er fyrstrbygði Reykjavik, lieiðarlegan minn- Jsvarða, þannig,*að mynd hans í yfirnáttúrlegri stærð væri gjörð og steypt úr málmi og sett upp á háan steinstöpul á miðju þessu torgi, og það letr á rist, »að minnisvarða þenna hefðu íslend- íngar reist íslands fyrsta landnámsmanni íngólfi Arnarsyni árið 1874 í minníngu þess, að landið nú hefði bygt verið í þúsund ár«; því bæði væri H'kr minnisvarði mjög fögr endrminníng þessa viðburðar, og gæti þaraðauki í margar aldir staðið landi voru og Reykjavíkrbæ til sóma og prýðis, betr en nokkuð forngripahús, þó vel væri vandað, eins og líka slíkt líkneski eigi þyrfti að kosta svo fjarska mikið, þó mér reyndar eigi sé fullkunnugt, hve slík íþróttasmíði yrði dýr, sem eigi víst er hægt að gjöra nokkra áreiðanlega áætlun um. Líkneski þetta ætti síðan við almenna hátíð í Reykjavík, er þar bæri að halda í þessu efni á hentugum tíma sumarið 1874, að afhjúpa (afslöre), eins og venja er til erlendis, og mundi þá við það tækifæri ræður snjallar haldnar verða, veizlur og gleðisamkomur, eins og bezt væri faung á. Ef Islendíngar, eins og eg vona, eru einhuga í því að halda þessum merka viðburði á lopti með einhverju hátiðlegu móti, þá væri að mínu áliti í öllu falli hentugast sem fyrst að taka til að safna fé til þess um landið, og ættu hinir helztu menn og málinu velviljuðustu að standa fyrirþví og gjör- ast þess oddvitar í sýslu hverri, og mætti þá á síðan, þegar töluverðu fé væri safnað, setja nefnd manna til þess að ákvarða, á hvern hátt Islend- íngar sem bezt og liátíðlegast skyldu minnast þess viðburðar. þareð þér, herra ritstjóri! sem sá, er í blaði yðar, eins og skyidan býðr, vekið máls á mörgum almennum og þjóðlegum málefnum vor- um, eigi enn liafið sagt álit yðar í þessu efni, leyfi eg mér að vona, að þér í tilefni af þessari grein minni gjörið það, og með yðar röggsemi styðið að því, að Islendíngar minnist þessa áðr- greinda merka viðburðar á sínum tíma með ein- hverju hátíðlegu móti. B....... II. Ut réí> íngólfr leita ógnreifr nieí) Hjörleifl. (Sn. E. Kauph. 1852, bls. 134). »IIvað bíðr sinnar stundar», sagði forðum Gunnar á Hlíðarenda. Hér er um þjóðmálefni að ræða, sem hefir þegar beðið helzt til lengi, en þóað fyrir laungu hefði verið öll ástæða til að hreifa við því, þá er nú ef til vill tíminn þó allra réttastr, til að gjöra eitthvað við það. Hver sá, sem virðir og þekkir réttilega lcmdnám og byggíng íslands, mun varla þurfa að spyrja að því, hvert þetta þjóðmálefni er, en það er 1000 ára »Jubilæum« eða þjóðhátíð í minníng íslands byggíngar og íngólfs Arnarsonar, er var hinn fyrsti frumkvöðull þess, að þetta land bygðist, og sem fyrstr tók sér fastan bústað hér á landi og síðan allir aðrir landnámsmenn »að hans dæmi«. þessa þjóðhátíð á að halda að 10

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.