Þjóðólfur - 22.11.1865, Side 3
Viðvíkjandi laxa- og silungsveiði, voru til sýnis
fjölda mörg veiðarfæri, bæði þeir aunglar sem ný-
lega eru nefndir, net, háfar, kistur, o. fl. en l'lest
af þeim útbúnaði virtist okkr líkt því sem brúkað
er bjá okkr þar sem sú veiði er stunduð.
í Norvegi var fyrir fám árum komin sú ó-
regla á laxveiðina að hún átti víða skamt eptir að
eyðileggjast algjörlega. jþeir stokklögðu yfir ár
og læki og kepptust hver við annan aö veiða sem
mest þeir gátu á öllum tímum ársins. f>egar í
þetta óefni var komið. að veiðin var víða næstum
eyðilögð, þá var gefið út lagaboð 23. Maí 1863
sem friðhelgar lax í ötlurn vötnum ám og lækum
tímann frá 14. September til 14. Febrúar hvert
ár; og fyrir utan þenna tiltekna tíma er liverjum
manni bannað að hafa nokkurt veiðarfæri fyrir lax
eða silúng í veiðivötnum frá því kl. 6 e. m. á
laugardögum til kl. 6 e. m. á sunnudögum, og er
þannig öil veiði friðuð 24 kl. tíma í iiverri viku,
svo allr vatnafiskr geti hindrunarlaust gengið svo
lángt uppeptir landinu sem hann vill. Fyrnefnt
lagaboð bannar einnig að brúka netin smáriðnari
en að hver möskvi sé 2V4 þuml. milli hnúta eðr
9 þumlúngar allt í«kríngi svo allr smærri fiskr geti
sloppið í gegnum nelin. Síðan þessi friðun kom
á laxinn (segja Norðmenn) hefir veiðin tvöfaldazt
og sumstaðar þrefaldazt við það sem hún var áðr.
Síldarveiðin er í Norvegi stunduð af aleffi og
færir landsmönnum fjarska mikinn arð, og telja
Norðmenn það víst, að hjá oss mætti stunda þá
veiði til mikilla gagnsmuna. |>að er bæði sú síld,
sem í Norvegi kallast vorsíld, og líka sumarsíld
sem hjá oss er að finna. [>eir veiða síldina í lag-
net þar sem djúpt er og lángt frá landi, en á-
dráttarnetin brúka þeir við grunnið og álíta þeir,
að sama aðferð geti þénað hjá oss. Síldarbátar
Norðmanna eru lleslir með gafli að aptan; í gafl-
inum er sívalt kefli yflr um þveran bátinn, sem
snýst á ás, þvi netin eru lögð út úr aptrenda báts-
ins og látin renna á keflinu svo eru þau dreginn
inn upp á sama máta. Síldin er í Norvegi og
víðar álitin ein hin bezta 0g útgengilegasta verz.1-
unarvara, og sáum við það þar, sem á hverjum
degi var selt meira og minna af fiski í Björgvin,
að alltaf var eplirsóknin mcst, þar scm síldin var
á boðstólum. Fyrir eina tunnu af velverkaðri síld
er vanalega gcfið 8—9 rd.
II.
V e r k u n á v ö r u er í Norvegi að sumu leiti
wfiUn vandaðri en hjá oss, en einkum er það lýsi s-
bræðslan sem i þessn er eptirtökuverðust. Af
þessu lýsi — sem brúkað er til læknínga — voru
margar tegundir til sýnis, en yfirhöfuð skiptist það
í tvent: ljóst lýsi, það var eins tært og vatn og
fanst af því hvorki bragð né lykt, og brúnt lýsi,
það var næstum svart á lit, en eins þunt og vatn,
og af því gat maðr fundið lítilsháttar lykt og nokk-
urt bragð. Af svona tilreiddu lýsi er vanalegt að
selja hvern pott (eðr 4 pela) af vandaðasta meðala-
lýsinu á 64 sk.
Carl H. Erichsen frá Kristjansund gaf oss skrif-
lega npplýsíngu um lifrarbræðsluna, eptir þeirri
aðferð sem hann hefir sjálfr brúkað, og er hún
þannig:
Lifrin sé fyrst þvegin vel í hreinu köldu vatni
og lögð á trégrind svo vatnið renni vel úr henni,
síðan sé skorið úr henni alt sem gallsprengt er
eðr gallslitr á; þvínæst er lifrin skorin í smástykki
áðr eðr umleið og hún er látin í pottinn. þegar
hún byrjar að bráðna sé hrært vel í henni og þau
hin stærri stykkin kreyst í sundr. með höndunum.
þegnr maðr svo hefir fengið 50° (mælistiga) hita,
verðr að hella litlu af köldu vatni í undirketilinn
(nefnil. millum pottanna) til að mínka suðuna, og
hætta þá að hræra i, svo lifrin geti sezt til áðren
byrjað er að fleyta lýsinu ofanaf. þegar þá er
búið að fleyta lýsið ofanaf og komið er niðrað
kjórnum eðr grútnum sem á botninn hefir sezt,
verðr að hræra því vel upp, setja svo pottinn yfir
liægan eld, kemr þá meira lýsi upp; þetta má í-
trekast 2 eða 3 sinnum. þegar byrjað er að
fleyta lýsinu ofanaf, er helzt liöfð kyrna úr blikki
lil að láta það í; yfir kyrnuna er þá lagðr dúkr
úr þykku vaðmáli (þæfðu) sem lýsið síast gegn-
um; þegar það síðan e,r látið í tunnur, er höfð
blikktregt og grind úr stólþræði ofan yfir henni,
á þá grind er útbreidd kembd bómull (má
eins vera sauðarull) eða þykkr og þéttr ullar-
dúkr, og þar ofan yfir er enn lögð plata úr tré
með smágötum. [>egar lýsið hefir brotið sig á
tunnunum í 3 vikur eða lengr, þá er það síað aptr
á sama hátt og áðr, og verðr það að gjörast í
lieitu eðr lilýu herbergi.
[>ess ber vandlega að gæta, að öll verkfæri
og áhöld sé vel þvegin úr lút eðr sóda og þar
eptir úr hreinu vatni í hvort skipti sem þau eru
brúkuð, því annars fyllast þau óhreiuinda skorpu;
einnig er það áríðandi, að lifrin sé brædd sem
nýust að verðr og aldeilis ekki eldri en þriggja
dægra gömul, sé hún eldri verðr lýsið ekki eins
og það á að vera.