Þjóðólfur - 15.05.1869, Síða 3

Þjóðólfur - 15.05.1869, Síða 3
steina-ákvarðanir til stöðu íslands í konungsveldinu og uin stjórnarfyrirkomulagið á Islandi í sérstök- um landsmálum vorum. En um fjárhagsskilnað- inn var stungið upp á því, að lslandi yrði veittir fyrst 15,000 rd. árlega, og þó eigi fast eðr að staðaldri, heldr að eins »þangað til öðruvísi verði áhveðið með lögum á Ríkisdeginum«, og var þó jafnframt haft í skilyrði að öllum þessum 15,000 rd. skyldi verja til kostnaðar þess er æðsta yfir- stjórn landsins hefði í för með sér, en til einkis annars ; þar að auki skyldi veita 30,000 rd. árlega til annara útgjalda íslands, óskert um 10 árin fyrstu, en síðan skyldi það (lausara) árgjaldið fara minkandi um 1,500 rd. árlega um hin næstu 20 ár, svo að það væri algjört burtfallið að 30 árum liðnum, frá því er það var fyrst veitt; skyldi kon- ungur gefa út tilskipun, og þó fyrst leita um það álits Alþingis, hvernig og til hvers að verja skuli fé þessu (samtals 45,000 rd. um hin fyrstu 10 ár) er þannig verði veitt Islandi úr sjóði ríkisins, og eins skyldi »heyra« um það tillögur Alþingis áðr en konungr gæti gjört breytingu á þeirri tilskipun. Svofelt frumvarp bar þingnefndin upp í Lands- þinginu um lok Janúarmánaðar þ. árs, og hélt framsögumaðr (Orla Lehmann) svörum uppi fyrir því af miklu kappi og mikilli málsnylli eins og hann er kunnr að, og samþykti svo Landsþingið nefndarfrumvarp þetta í einu hljóði1. Með svo feldum frágangi Landsþingsins gekk þá málið það- an síðan aptr fyrir Fólksþingið í annað sinn, og undirbjó þingnefndin, er þar hafði verið sett í 1) pess má geta, at) einn Landsþingismanna Carl Ploug ritstjúri blatisins „Fædrelandet“, bar upp breytingaratkvætii vÆ ýntsar uppástungur nefndariunar bæfci vit) nokkrar þær er þröngvubn hvat) mest stjúrnarkostum vornm, og svo vit) fjár- tiilagib, cr haun stakk upp á at) yrþi 30,000 rd. fasta ár- gjald og aferir 30,000 rd. er fara skyldu minkandi smám- saman, eptir sama eí)r líktt hlutl'alli sem nefndin haft)i stuug- ib upp á. Lögstjórnar rát)herrann herra Nntzhorn, — er þó „kvahst vera samdóma skofcun Laudsþiugsnefnd- arinuar á öllu því hiuu verulegasta, or snerti innbyrþis stjóruarsambandib milli Islands og Dannterknr“ — stnddi l'astlega þetta breytingaratkvæbi Carl Plougs: kvabst hann, fyrir stjórnarinnar hönd og Islendinga eigi gota gtingib ab minua árgjaldi en þesstt, er Ploug stakk upp á, og alls eigi aí) neiuum öbrum uppástungum nefndarinuar, þeirn er lyti ab stjórnarfyrirkomulagi Islands, því þab mál væri ríkisþinginu óvibkomandi, og kvabst liann því eklti geta abhylzt frnmvarp nefndarinnar, nema því ab eins ah húu tælti allar þær upp- ástungur tii baka. Nokkrir abrir þingmenn studdu rábhorr- ann og uppástungu Plougs, en eigi urbu þeir fleiri on 15 þegar til atkvæbanna kom, voru svo öll þau breytingaratkvæbi feld meí) miklnm atkvæbafjölda, en frumvarp nefudariunar samþykt í eiuu ltljóbi vií) síbustu umræbu. málið í fyrra skiptið, það af nýu til þeirrar einu umræðu, er getr átt sér stað, þegar svona kemr fyrir. Fólksþingið gjörði nú ýmsar eigi óveruleg- ar breytingar á frumvarpi Landsþingsins, og feldi burt að öllu tvær greinir þess ; en sú var þó breyt- ingin vernlegust, að Fólksþingið stakk upp á að hækka fasta árgjaldið til ísland upp í 30,000 dala, er skyldi vera viðvarandi (um aldr og æfi) og skyldi ganga til að bera »sérstakleg útgjöld ís- lands«, en aptr 20,000 rd.1 »til íslands«, laust gjald, er skyldi fara minkandi, og að síðustu hverfa með öllu. Leyndi eigi framsögumaðrinn (Gad) því, að slíkar tilslakanir frá enum fyrri uppásttingum og samþyktar-atkvæði Fólksþingsins, ætti rótsínaí til- lögum lögstjórnarráðherrans er hann hefði borið sig saman við nefndina um málið nú af nýu. I’essar breytingar Fólksþingsnefndarinnar voru síð- an eptir eina umræðu samþyktar þar á aðalfundi með nálega öllum atkvæðum (94 móti 5?). Málið gekk svo enn frá Fólksþingi aptr til Landsþings, og komst eigi svo langt að það yrði á dagskrá tekið auk heidr að það kæmi til umræðu á aðal- fundi, því Ríkisþinginu var slitið fyrri, sumsé 27. Febr. þ. árs. En sama daginn hafði samtLands- þingsnefndin tilbúið hið nýa álitsskjal sitt hrein- prentað, og var því útdeilt meðal þingmanna, áðr en þinglausnir fóru fram. í þessu hinu nýa álitsskjali stingr þingnefndin upp á þeim 2 tilslökunum, að þær 2 greinir, hin 3. og 4. í Landsþingisfrum- varpinu, falli burt (eins og Fólksþingið vildi) og 2. að lausara árgjaldið skyldi hækka til 35,000 rd., en að öllu öðru leyti vildi nefndin að við sama stæði sem Landsþingið var búið að gjöra. Svona var komið fjárhagsmáli voru á Ríkis- þingi Dana, þegar því var slitið, eptir 5 mánaða setu; það var óleitt til lykta. Árgjaldið eðr tillagið til fslands úr ríkissjóði Dana, er konungrinn, í allrahæstu auglýsingu til Alþingis 31. Mai 1867 hét »að reyna að koma til leiðar, með því að »semja um það við Ríkisþingið, að Islandi verði »veitt úr sjóði konungsríkisins fast árstillag 37,500 »rd. að upphæð, og bráðabyrgðartillag, 12,500 rd. »o. s. frv.« þetta tillag er alveg óyeitt og tæp- lega neinum mun nær, ef ekki miklu fjær afar- kostalausri veitingu heldren í Maí 1867, þegar kon- ungrinn undirskrifaði auglýsinguna til Alþingis. þessa sízt getum vér fagnað þvi, að heitvrði þau eða þá að minsta kosti þær góðar vonir, er lull- trúi konungs gaf Alþingi þá í sama skipti um, að 1) petta er rétt, en 30,000 rd. laust tillag ebr til brába- byrgba á 89. bls. hér ab framan, er preutvilla.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.