Þjóðólfur - 08.11.1869, Side 7

Þjóðólfur - 08.11.1869, Side 7
15 — Frágangrinn og útgerðin á bókinni frá út- gefanda (landsprentsmiðjunnar) hendi virðist vera 1 góðu lagi bæði að einu sem öllu. AUGLÝSING. «m ftutning á pví, sem sent er með póstslcipinu millum Danmerkr, íslands og Fœreyja árið 1870. 1. grein. f>egar peningar eða þeir munir, að hver 3 kvint þeirra nemi 1 rd., eru afhentir, skal ávallt þegar segja til hins sanna verðs þeirra. f>ó má undanþága eiga sér stað, svo að leyft sé að af- henda á póstafgreiðslustaðnum bréf, sem póst- stjórninni eru á hendur falin, og sem peningar eða peningavirði sé í, án þess að til greint sé, livers virði það sé. 2. grein. f>á erpeningar eða aðrir munir, sem nefndir eru í 1. grein, eru sendir í bréfi, verðr þeim því að eins móttaka veitt til flutnings með pósti, að þeir séu í odda-umslagi (Spidscouvert)'. Af peningum má scnda f bréfi mest 4 rd. 5 mörk í silfri og 15 sk. í smáskildingum. Fyrir peningabréf skal sá, er sendir, setja fimm innsigli. 3. grein. Peningum og öðrum þeim munum, sem nefndir eru í 1. grein, hvort þeir heldr eru í poka, böggli eða kassa, vérðr því að eins móttaka veitt til flutn- ings með pósti, að umbúðir séu gildar, og utan nm sévafið hampgirni (seglgarni), er eigi sé hnýtt saman, og sé bandið lakkað fast við umbúðirnar með innsigli þess, er sendir. 4. grein. Á sérhvern poka, böggul, kassa, eða hvað annað, sem sent er með pósti, skal ritað með sk^ru letri nafn móttakanda, og hvert það eigi að fara, og skal tilvísunarbréf með fylgja. 5. grein. Bréf öll, blöð og önnur prentuð rit skulu af- hent vera á náttmálum (kl 9), en peningar og aðrir bögglar á miðaptni (kl. 6) kveldinu áðr, en Sufuskipið leggr af stað. 6. grein. |>á er bréf frá íslandi eða Færeyum koma aPtr, og þau skal afhenda þeim, er sendi,enhann t) Oddanmslag (Spidsconvert) er þannig lagaþ, at) endarn- eru Jafnbreiílir bréflnu sjálfn, og skal þá leggja fjrst sam- ®ni en hliþarnar eru yddar, og skal þair leggja yflr eudana. Pe*r, sem vilja kynna sér lógnn og frágangiun á þessnm um- úfcum, get& gniii5) 6jr tji mfn, o. Fiusen. verðr eigi spurðr uppi eða neitar að veita þeim viðtöku, verða þau send yfirpóstmálastjórninni og þar farið með þan, eptir því sem fyrir er mælt í auglýsingu fjármálastjórnarinnar 15. dag júlímán- aðar 1868 um meðferð á óskilabréfum. 7. grein. Allir bögglar, kassar o. s. frv., sem eigi eru þyngri en 10 merkr, skulu undantekningarlaust sendir sem póstflutningr, en allt, sem þyngra er, aptr á móti sem farmfiutniffgr. 8. grein. Heimta má af póstafgreiðslumanni viðrkenn- ingarskjal fyrir viðtöku á bréfum, sem póststjórn- inni eru á hendr falin, og sömnleiðis fyrir pen- ingum og bögglum ; en honum er heimilt að heimta 2 sk. fyrir hvert slíkt viðrkencingarskjal. Heimta má, að póstafgreiðslumaðr telji pen- inga þá, sem afhentir eru með bréfi, og skal þá greiða 4 sk. fyrir að telja allt að 200 rd., en 1 sk. fyrir hvert hundrað ríkisdala eða part úr hundraði, sem yfir er 200 rd. Fyrir hvern annan sérstakan greiða, svo sem að setja merki á, slá utan um bréf, skrifa utan á bréf, tilkynningu um muni, sem komnir séu, og annað þess konar, bera póstafgreiðslumanni 3 sk. fyrir hvert um sig. Kaopmannahöfn, 28. dag septemberm. 1869. S. Danneskjold Samsöe, yflrpástmálastjiíri. — Eptir beiðni stjórnar hins íslenzka dóms- málasjóðs, sem fjárnámshafanda, verðr við þrjú opinber uppboð, er haldin verða: hið fgrsta laugard. 6. Nóvbr. 1869 kl. 12 hádegi, hið annað — 20. — s. á. — 12 — hið priðja — 4. Desbr. s. á. — 12 — boðið til sölu og selt timbrhús Jóns snikkara Jónssonar, Arnarhólsholt nr. 20, tómthúslóð 39, b, liggjandi við skólavörðuveginn, ásamt tilheyrandi lóð og öðru, er cigninni fylgir og fylgja ber að rétlu lagi. Fyrstu tvö uppboðin verða haldin á bæar- þingstofunni, en hið þriðja á staðnum sjálfum. Söluskilmálar verða fram lagðir á uppboðs- staðnum, og verða til sýnis nokkrum dögum fyrir hvert nppboð á skrifstofu minni. Skrifstofu bœarfágetans í Reykjavík, 26. Oktáber 1869. A. Thorsteinson. — Skúli Nordal cand. juris biðr aðra að skrifa sig og nefna eins og hann ætlar sjálfr að skrifa sig og nefna héðan af: Skúli Magnússon.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.