Alþýðublaðið - 28.01.1921, Síða 1

Alþýðublaðið - 28.01.1921, Síða 1
Alþýðublaðið Oefið dit af A.lþýduflokkBniae 1921 Föstudaginn 28. janúar. 22. tölubl. Jfýr C-listafnnðnr. C listinn hé!t almennan kjósenda- fund í gærkvöldi, Og var húsið troðfult og nokkuð af öllum flokk- um, en þó mest af B listEmönnum, þrátt íyrir það þó samtímis væri f Gooötemplarahúsinu fjölmennur Dagsbrúnarfundur og uppi þar fundur í verkakvennafélaginu. Fyrstur talaði Magnús Jónsson sem efstur er á lista íslandsbanka- Vísis Talaði hsnn í hálfan annan tfma, og var sú éndemislokleysa óverðskulduð hegning á fundar- menn. Þá talaði Jón Ólafsson, en taíaði svo stutt, að enginn sofnaði — nema bróðir hans, sem var ifundarstjóri, sem svaf að því er virtist eftir það út fundinn, og rumskaðist ekkert, hvernig sem einkavinir Jskobs Möiler — hinn svokallaði Vísisskríll — öskraði og stsppaði undir ræðum A, B- og D listamanna. Þó ræða Jóns Ól. væri stutt og hann stamaði voðaiega og heyktist á hverri setningu, þá var hún nógu iöng til þess, að vekja víðbjóð þeirra sjómanna er á hann hlustuðu og allra annara samviskusamra manna. Næst honum talaði fiskhringsmað- urinn Þórður Bjarnason, en þá sements- og þakjárnskaupmaður Jón Þorláksson, sem fræddi fund armenn á þvf, að hann væri með járnbraut. En mönnum þóttu það engin tfðindi, því allir Reykvík- ingar viija járnbraut, en þeir'vilja ekki að „heili heilanna" reikni hana útr eða að hún sé rekin með því íyrirkomulagi sem hann hefir stungið upp á. Af alþýðuflokksins hálfu töluðu Ingimar Jónsson, Agúst Jósefsson og Ólafur Friðriksson. Hröktu þeir þessar venjulegu, gömlu, marg- upptugðu fjarstæður andstæðing- anna um alþýðuflokkinn og stefnu hans. Aðrir sem töluðu voru þessir: ólafur Thors, Sigurður Jónsson, .Sigurður Eggeiz, Þórður Thorodd- sen og Jakob MöHer. Talaði hinn síðastnefodi tvisvar, og lá við að hann argaði f fyrri ræðunni (eins og gamlir samherjar hans vita að honutn hættir til), en það var nú ksnnske von, því hann var að tala 11 m hvernig Alþýðublaðið hefði flett ofsn af honum í ís- landsbankamálinu Þegar klukkan var hálf eitt, stóðu fuadarmenn upp og tóku að ganga út, en Ólafur Thors lýsti því yfir að fundi væri slitið, þvf fundarstjóri var þá enn ekki vaknaður. ^ Crlesi simskeyti. (Loftskeyti) Khöfn, 24. jan. Bandamenn og örikkir. Simað er frá Locdon að banda- menn hafi bannað Grikkjum að breyta stjórnarskrá sinni, samkv. Lundúnasamningnum 1863. Khöfn, 25. jan. Fjárniál Tyrklands. Símað er frá Konstantinopel, að ráðherraráðið hafi samþykt að bandamenn haíi eftirlit með fjár- málum Tyrklands. Pjóðverjar eg Bandamenn. Símað er frá París, að Fcch og Wilson leggi til, að Þjóðverjum verði veittur frestur til 1. maí til þess að leggja niður héraðavarð- liðið. Þýzka stjórnin er á báðum áttum, því hún býzt við bolsivíka- innrás ef þetta veröur framkvæmt, Þegar fundi bandamanna verð- ur slitið í næstu viku, er Þjóð verjum boðið á fund, þar sem uppástunga bandamanna verður lögð fyrir þá. Morð í Moskva? Símað ar frá Helsingfors, að Isvestia segi frá því, að við morð- tilraun andstæðinga bolsivíka hafi 20 særst og 6 dáið. Lenin komst ómeiddur undan. [Skeyti sem dagsett er 24 jan., eða degi á undan þessu skeyti, þó það kæmi hingað á eftir, seg- ir Lenin dauðan, en það mun hafa verið borið til baka, fyrst þ«*tta skeyti kemst svo að orði. Annars er það kunnugt, að fregnir frá Helsingfors eru rojög óáreiðanleg- ar, og margoft hefir það komið upp, að þær rru algerður upp- spuni, jafnvel þó sagt sé að þær séu eftir rússneskum blöðum. Lyga- fréttastofan, sem sagt var frá í blöðunum í sumar, hefir þar eina bækistöð sína.j Frá sama stað er símað, að finskir bolsivíkar mæli mjög með nýrri byltingu þar í landi. Þeir eru sér að grafa gröf — á grafarbanninum skjálfa. „Hamarirm" verður þeim hefndar- gjöf. Hann hittir aðeins — þá sjálfa. G. Skríti# atvik. A fundinum í gærkvöldi vitnaði Jakob Möller i Alþýðublaðið, og hrópaði þá einm af fylgifiskum hans: „Eg les það aldrei." Þegar sami Jakob svo rétt á eftir sagði, að það hefði staðið í Alþýðublaðinu, sem aldrei hefir þar staðið (meðmæli með innflutn- ingshöftum), og sagði: „Þið hafið lesið það þar", hrópaði maðurinn sem aldrei hafði lesið blaðið: „Já, jái" — Það má nú segja, að fé sé jafnan fóstra likt, og liðsmenn- irnir líkir Jakob. Alþýðnflokksfnndur verður annað kvöld f Bárunni.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.