Þjóðólfur - 30.12.1878, Page 2

Þjóðólfur - 30.12.1878, Page 2
6 legt nema smátt og smátt og á löngum tíma. Samt sem áð- ur er mál þetta komið í það horf, að hér verður eitthvað úr að ráða. £að er óyggjandi, að flestar verulegar breytingar til bóta í verxlun lands vors hljóta fyrst og fremst að koma frá kaupmönnum sjálfum, því þeir þekkja hetur þess konar efni en alþýða, og meðal þeirra ræður hver einn málum margra. Einn vitur maður (ekki kaupmaður) átti tal við oss fyrir skömmu um þetta mál, og réð osa til að benda í blaði þessu á fylgjandi reglur, ef ske kynni að bændur, og einkum kaup- menn lands vors, vildu aðhyllast þær, og loita samtaka til þess með þeim að létta á skuldaánau^ þeirri og vandræðum, sem fylgja lánsverzlunarsið þeim, sem nú drottnar: ]. kaupmenn semji við skiptamenn sína, að þeir hafi borgað skuldir sínar við þá innan 6 ára. 2. kaupmenn gjöri þau samtök sín í milli og auglýsi síðan, að þeir frá ákveðnum tíma láni engum manni peninga né vörur nema í móti bréflegri skuldbinding lánþiggjanda um fulla borgun lánsins á ákveðnum gjaldtíma. 3. kaupmenn fastbindi með sér og auglýsi, að þeir heimti 5 af hundraði í leigu af hverri þeirri fjárupphæð, sem ó- goldið er á síðasta gjalddegi. 4. kaupmenn og bændur komi þeirri reglu á, að þinglýsa öllum þess konar stærri skuldabréfum, og að tryggja með lögum samninga og viðskipti í kaupverzlun betur en hing- að til heíir til gengið. Nkýrslur og framtal. Eins og dr. Gr. Thomsen skarplega benti á í ísafold fyrir skömmu, eru flestar hagfræðistöflur hér á landi enn þá næsta óáreiðanlegar, og mest fvrir þá sök, að framtals- og búnaðar- skýrslur hinna ýmsu sveita og sýslna, som hagfræðin byggir á, eru mjög svo ófullkomnar. Má það sjá ekki einucgis af dæmum sem vér þekkjum, heldur af töflunum sjálfum. J>essi óáreiðanleiki framtalsskýrslna landsmanna, er næsta skaðlegur landinu. Að vita með vissu fjárhag hverrar sveitar, hverrar sýslu, hvers fjórðungs og síðan gjörvalls landsins, er svo áríð- andi, að fyrir þá þekkingu verður nokkurn veginn auðið að koma við rjettlátri og hagfeldri stjórn. Eins og kaupmaður- inn því að eins veit, hvernig verzlunarhag-hans er varið, éf hann gætir svo bóka sinna, að hlutfall tekja og gjalda, eigna og skulda sé ávalt auðsætt og við hendina þegar til þarf að taka, allt eins þurfa þeir, sem landi stýra og lögum ráða, ætíð að vita eða hafa til taks öll þau skilríki, sem sýnt geta hag og hlutföll lands og lýða, en þó einkanlega allar hagfræðis- skýrslur. Hagfræðin er svo að segja ný vísindagrein, en þó svo langt á leið komin, að hennar þýðing vex nær daglega í augum hins mentaða heims. Menn hafa meðal annars fundið og sannfærst um, að margt viðvíkjandi lífi manna og högum fylgir fösluni lögum, sem telja má tölum, eða er réiknanlegt, þótt til síðustu tíma hafi talið verið alveg háð reglulausri til- viljun. Með þessari fræði má því lángt komast og ótrúlega mikið efia almennings heill, — einungis að tölur þær, sem bygt er á, séu reltar. Séu þær rángar, verður allt, sem á þcim er byggt, eða af þeim leitt, rángt, og er þá miklum kostnaði og miklu ómaki illa varið, því dýrt er það verk, að koma í eina skýrslu öllu fé hvers einstaks manns á landinu, auk annara skýrslna. Sú þjóð, sem vill Iæra sjálfsforræðis- listina, eða að vera frjáls í orðsins sann-pólitiska skilningi, hún þarf fáa hluti fyr að kunna en hrein viðskipti við sjálfa sig, eða trúmensku í gjöldum, greiðslu og framtali. Ef alþýða í einhverju lýðstjórnarlandi vendi sig á tíundarsvik og allskon- ar refjar í opinberri greiðslu, svíkur liún í rauninni eins skað- lega og heimskulega sjálfa sig, eins og ef einstakir menn græfu fé sitt í jörðu fyrir nízku sakir og vesalmensku. þ>ví miðurmun mjög misjafnt framtal hafa viðgengist hér á landi, og mun enn viðgángast of víða. Viljum vér skoða þann ósið sem erfða- synd frá þjóðarinnar niðurlægindartímum. Með nýrri stjórn- arskrá og nýjum tíundarlögum mun nú þotta smámsaman lag- ast, enda ætti hver ærlegur bóndi að sjá, að tíundarfé það, sem hann treystir sér undan að draga, þ. e. stela frá ætt- jörðu sinni, það dregur hann aldrei mikils, en verkið er bæði vesalmannlegt, ódrengilegt í sjálfu sér og miðar til beinna ó- heilla fyrir land og lýð. Um leið og vér endum þessa athugasemd, skulum vér benda á eina eyðu í hinum árlegu búnaðarskýrslum, en það er vöntun framtals á töðu og útheyji hvers búanda á landinu að haustinu til. Slíkt framtal mundi fást nægilega glögt, og þarf ekki all-hagfróðan mann til að sjá, til hvers það yrði notað. galtfisksmálið (Niðurlag). E e g I u r um viðtöku á saltfiski frá hálfu kaupmanna, og meðferð á eptir, o. s. frv. 1. Kaupmenn gæta þess vandlega, að gjöra mun á saltfiski eptir gæðum. Til þess að meta gæði fisksins, skulu settir matsmenn, er skeri úr, til hvers flokks fiskinn skuli telja, ef nokkur ágreiningur er um það milli kaupanda og seljanda. Til fyrsta flokks skal telja fisk þann, er talinn verður góður og gjaldgengur varningur til sölu á Spáni, eins og fiskurinn er, þegar hann er afhentur af seljanda. Auk þess skal hver sá fiskur, sem talinn verður til fyrsta flokks, vera að minsta kosti 18 þumlungar á lengd að sporði meðtöldum. Allan ann- an fisk skal telja til annars flokks, og skal verð hans talið fimmtungi minna, en fisks í fyrsta flokki. 2. Kaupmönnum ber að hafa til móttökumanna á fiskin- um fyrir sína hönd þá eina, sem eru greindir menn og hæfir til að meta gæði fisksins, hvort heldur er í verzlunarstöðun- um sjalfum eða annarstaðar, þar sem þeir veita fiskinum mót- töku. Kaupmönnum ber að brýna það alvarlega fyrir erinds- rekum sínum, að taka á móti fiskinum samkvæmt þeim Tegl- um, sem taldar eru í 1. gr., og leita matsmanna, ef nokkur ágreiningur rís um gæði fisksins. Við afhendingu fisksins frá móttökumönnum skal matsmaður við staddur, er gjöri grein fyrir, hvort fiskurinn svari til þeirra gæða, sem mótsj uriun hefur talið. 3. Að svo mildu leyti og svo fljótt, sem auðið erj kaupmenn fækka móttökustöðum á fiski, hvort heldur er landi eða skipum, og hafa þá sem fæsta, sem þeir geta kom-cr izt af með. 4. Kaupmönnum ber að forðast, að láta flytja fisk út í skip sín í vætu, hvort heldur er á stöku stöðum hjer og hvar í veiðistöðum eða kaupstöðum, og yfir höfuð varast, að flskurinn sæti neinum skemmdum úr því hann eí kominn í þeirra hend- ur, og eins vanda hús þau, sem fiskurinn er í geymdur. 5. Ifver sá kaupmaður, sem verður uppvís í>ð því, að hafa tekið fisk í fyrsta flokk, sem matsmenn liafa, svo að hann 1 viti, talið til annars flokks( skal greiða sekt, 5 krónur fyrir hvert skippund, sem hann þannig tekur, og skal lielmingur sektarinnar falla til uppljóstrarmanna, en hinn helmingurinn til hlutaðeigandi sveitarsjóðs. 6. Matsmenn á fiski skulu kosnir á þaun hátt, að kaup- menn stinga upp á þeim, svo mörgum í hverjum hrepp, sem þeir ætla nauðsynlegt, en hlutaðeigandi sýslumaður eða bæjar- fógeti skipar þá og gefur þeim erindisbrjef. Hann skal og eiðfesta þá. Kaupmenn annast borgun til matsmanna fyrir starf þeirra, eptir því sem báðum mólspörtum kemur saman um, nema öðruvísi verði ákveðið. 7. þ>egar því verður við komið, skulu ávallt einhverjir þeir matsmenn, sem þannig eru skipaðir af yfirvaldinu, til kallað- ir, þá er fiskur W fluttur í skip til burtflutnings til annara landa».. i Eptir ályktun fundarmanna auglýsum vjer nú hjer meö hvorartveggja þessar reglur, og skorum jafnframt í umboði fundarins á alla fiskimenn og sjávatbændur í kringum Faxa- flóa, að fara sem vandlegast eptir reglum þeim, sem skráðar eru hjer á undan um verkun á saltfiski kringum Faxaflóa, og enn fremur að vanda yfir höfuð verkun á allri vöru sinni, hvort heldur er á fiski, lýsi, hrognum, sundmaga, eða hverju nafn

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.