Þjóðólfur - 11.12.1880, Side 3

Þjóðólfur - 11.12.1880, Side 3
síðan aldan óða slíta ástvin beztan nam mér frá; hjartans blæðir opin undin, aptur trautt er græðast má. Guð miun! þung var þrautastundin, þín er bönd mig lagði á. Hitamælir var bæstur (um hádegi) 23 + 3° E. ----— lægstur — — 13. 14. 16. — 9° — Meðaltal um hádegi fyrir allan mánuðinn . -f-1°,23 — ----- á nóttu — — —— . -f- 3° — Mestur kuldi á nóttu (aðfaranótt hins 16 ) -f 12° — Loptþyngdarmselir hæstur 7. . . 30,30 enskir þuml. ----- lægstur 28. . . . 28,20 — — Að meðaltali........................ 29,65 — — Kvík VnSO. J. Jónassen. — LV Skagafirði 6. nóv. 1880. Héðan eru engin tíðindi að frétta; tíð hefur verið góð í sumar og haust, þar til rúmri viku fyrir vetur, að hún fór að gjörast umbleypinga- söm, ýmist blotar eða frost og hríðarköst með talsverðu frosti (mest 9—10° R.), samt er hér rétt að segja snjólaust. Heimtur hafa hér víða verið heldur í lakara lagí að því er frétzt hefur, en það mst vel hafa rætzt úr því síðar. Líf og fjör manna á meðal er fremur dauft, enda er að búast við því að vetri að í hugskotum manna sem úti. Ef vel kynni að vora, þá væri ekki ólíklegt að eitthvert líf kynni að lifna hér hjá oss, því að það vill opt verða, að menn verða meir á lopti eptir því sem sólin hækkar á lópti. ý J>ann 27. (sjösofendadaginn) júnímánaðar fyrra ár. and- aðist að heimili sínu, Tjarnarkoti á Miðnesi, bóndinn Jón ís- leifsson, eptir stutta en svipharða sjúkdómslegu, frá ungri konu og þremur börnum í æsku. Jón sál. var atorkusamur upp- byggilegur búandi, heppinn og ljörugur formaður, og yfir höf- uð sómamaður í sinni stöðu, virtur og vel metinn. Við útfér- ina flutti faðir hins látna eptirfylgjandi samhendur: Hér okkar vegir hlutu skilja Minn hjartakæri sonur nú, J>ví drottins eptír dýrstum vilja í dauðablundi hvílir þú; í>ó grátinn eg enn, und gráum hárum Mér gefnu leiðar þreyti sveim, Og saknaðar niður sái tárum. J>ín sakna eg ei, nær kallast heim. J>ig að alsælan þá eg finni, J>ar stendur hjartansvon mín á, Eg fæ þá svalað sálu minni, Sorgum þessa lífs skilinn frá; Víð himnadrottíns dýrðarljóma Dásemdarverkin skoðað hans, J>ar frelstra lýða lofgjörð hljómar, Ljósbjörtum undir sigurkrans. ý J>ann sama dag í sumar, nefnil. (25. júní 1880) deyði konan Helga Pálmadóttir ekkja aptir Jón sál, ísleifsson á ofangreindu heimili Tjarnarkoti; hún var ráðsvinn og dug- Ieg rausnarkona. J>etta tilkynnist hér með lángt fjærverandi vinum og vandamönnum þessara hjóna. f Einar Jónsson. (Drukknaði 10. marz 1880) Almáttugi góði guð! gef mér þína huggun sanna, mitt í hafi hörmunganna hrekst mín öndin sárþjökuð, augum náðar á mig líttu eilíf gæzku-lindin há, angurs dróma af mjer slíttu og hugsvölun lát mig fá. Eg ei framar æginn má ógrátandi sjónum líta, Vinur það var sárt, í sjá sjá þig hníga andarvana, hulinn dimmu bárum bana björg og enga veitt þjer fá; elsku vinur, æ eg gleymi aldrei þeirri sorgar stund, ástkær vinur, eg þér gleymi aldrei fram að hinsta bíund. Horfni vin! þig guð mér gaf, guð þig aptur taka náði, hans að vísdóms helgu ráði heimi þú ert genginn af; liðni vin þig finna fæ eg, föður lífsins æðstum hjá, ó þá sælu! sem þá næ eg, sú um eylífð vara á. Almáttugi góði gnð! gef mér krapt að gtríða og vinna, unn mér þína aðstoð finna, alvoldugi mildi guð, forsvar mitt, og faðir minna föðurlausu æ þú vert, í lífi og dauða lát mig finna lífsins guð, minn guð þú sért. Ekkjan. Auglýsingar. — Samkvæmt opnu bréfi 5. janúar 1861 og lögum 12. apríl 1878 er hér með skorað á alla þá, er telja til skuldar i þrotabúi bakara J. Byes á ísafirði, að koma fram með og sanna kröfur sínar fyrir mér sem skiptaráðanda í téðu búi innan 6 mánaða frá síðasta birtingardegi þessarar auglýsingar Skrifstofu bæjarfógeta ísafirði 6. nóvbr. 1880. C. Fensmdrk. Skrifstofa fyrir almennmg. — Síðan eg auglýsti að skrifstofa mín væri opin almenn- ingi, sem var þann 25. júní 1878, þá hefur það sýnt sig, að slíkt ekki var að raunalausu, því talsverð hefur verið aðsókn, en minna í aðra hönd; sé eg mig því ekki færan um, að svo stöddu, að halda henni lengur opinni, og kunngjöri eg því hér með almenníngi, að hún ekki verður framar opin eptir 31. þ. m. en þeir sem enn eiga skjöl hjá mér, vildi eg óska að vildu vitja þeirra sem fyrst. Rvík. 8. Des. 1880. Egilsson A ð v ö r íi n. I 31. tölublaði ísafoldar p. á., er alllöng auglýsing, um óskilafé, selt í píngvallahreppi nú í haust. Yiljum vér hörmeð minna viðkomendur á, að slíkar auglýsing- ar, í öðru blaði enn pjóðólfi, hafa enga lagalega |)ýðingu, pví samkvæmt bréfi dómsmálastjórnarinnar, dags. 27. júní 1859, samanbornu við opið bréf 27. maí s. á. hafa slíkar auglýsingar pví að eins hið tilætlaða gildi, að pær séu auglýstar í Jýjóðólfi, en engu öðru blaði á landinu. . Eitstjórnin. Hjá undirskrifuðum fæst margs konar farfi, terpentína og fernís fyrir mjög gott verð. Glasgow í Reykjavík 10. Desember 1880. Jón Guöuason.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.