Alþýðublaðið - 29.01.1921, Síða 1

Alþýðublaðið - 29.01.1921, Síða 1
Ð'listafnnðurinn í Bárunni var mjög fjölsóttur, og þrengslin afskaplega mikii i þeim hluta salsins, sem staðið var í. Var ókyrð mikil fyrst framan af, með«n Hallgrimur Hallgrimsson toagister, sem var fundarstjóri, notaði litla borðklukku til þess að hasta með á fjöldann. En er hann sá að það dugði ekki, stóð hann upp og sagði mönnum með hárri og grimmúðlegri rödd að menn skyldu hafa sig hæga. Brá þá svo við, að Vísisliðið hljóðnaði svo rojög, að það klappaði ekki einu sinni fyrirjakob Möller. Enjakob var nú heldur ekki ( essinu sfnu — ærumeiddi ekki nokkurn mann. Þar á móti stökk hann einu sinni upp á nef sér, og ætlaði að rjúka af fundi; lýsti hann þvi yfir i heyranda hljóði, og bjóst víst við, að löng halarófa mundi fylgja sér. En þegar enginn hreyfði sig, snéri hann aítur við dyrnar, og sat fundinn út. Þessir töluðu á fundinum: Þórð* ur Sveinsson, Þórður Thoroddsen, Jón Ólafsson, Bjarni frá Vogi (að nokkru leyti um hérasúpu), Björn Ólafsson heildsali, Iugimar Jóns- son, Sigurður Eggerz, Jón Þorláks- son, Ólafur Friðriksson, kona Bene- dikts Sveinssonar (eg heyrði ekki nafnið), vikingurinn Sveinn Grims- son eða sveinninn Víkingur Gríms- son og Benedikt Sveinsson, sem sagði að Jón Þorláksson væri nátt- tröll sem mundi daga uppi, en ekki verða að steini heldur —- sementi. Jón Ólafsson át að hálfu leyti ðfan i sig aftur það sem hann sagði fyrra kvöldið um háseta- verkfallið og Þórð á Kleppi, en Þórður hefir fundið upp aðferð til þess að hagnýta kosningahitann, og munu menn verða forviða á þvi út um land að þessi nýja hit- unaraðferð skuii komin frá Kleppi. Bjarni frá Vogi sagðist ekki gytfa nema á fundi í Dalasýslu spurnlngu um það hvort hann — eins og Þórðarnir — vildi legpja niður landsverzlunina tafarlaust. Var á þvf auðheyrt að hann vildi iáta Dalamennina skamta sér skoð- unina. Ennfremur iíkti hann sér sjálfum við hænu, en ólafi Frið- rikssyni við egg sem vildi kenna hænunni. Þótti Bj irni nokkuð mis- fyadinn, ekki síður en þegar hann var að tala um folaldið sitt f Döl- unum f fyrra, þegar kveðið var: Bjarna þótti býsna hart, er byrjaði Óii að rausa, stóð þá upp og mælti margt merin foialdslausa. Yfitleitt fór fundurinn vel fram, og virðist svo sem C listamennirn- ir séu þeir einu, sem meira treysta fótasparki en rökum til sigurs. Seinni hluta fundarins virtist svo sem B iistinn hefði mest fyigið, og má það merkilegt heita, þar sem D skrifstofan hafði úthlutað aðgöngumiðum meðal sinna manna, og engum var hleypt inn sem var miðalaus íyr en eftir að fundur var byrjaður. Viðstaddur. Dffl daginn og vegii. Y. E. F. Frnmsóka heldur kosningafund á raorgun ki. 8 l/a í Goodtemplarahúsinu, Félagskonur og sjómanna og verkamannakonur yfirieitt eru boðnar á fundinn. Engum karlmanni, óboðnum, er heimili aðgangur. Messur f dómkirkjunni á morg- un: KI. ii séra Bjarni Jónsson (aitarisganga), kl. 5 scra Jóhann Þorkelsson. Fl’á Vogi. Á B-Iistafundi: Bjarni jafnaðarmaður. — A D-listafundi: Bjarni ójafnaðarmaður. —• Á kjör- degi; Bjarni Kvaran (hvar er hann fj Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að maðurinn minn elskuiegur, Ásmundur Jónsson, andaðist á Vífiis- staðahælinu 28. þéssa mán. Guðlaug Grimsdóttir. Vesturgötu 30. Alþbl. hefir fengið þær upplýs- ingar, að hafnarsjóður hefir alveg neitað að greiða B. H. B. krón- una og tólf aurana, en að sögn hefir verið stofnað hlutafélag, svo hann verði skaðlaus, Magnús Jónsson á ísiands- banka Vísis listanum sagði dæmi- sögu á fundinum í fyrrakvöld, þar sem hann likti kjósendum við hænur, en kaupmönnunum við ránfugl (fáika)! Smeilia samlíking og afar prestsieg. Alþýöuttokksmenni Munið eft- ir að mæta í kvöid á alþýðuflokks- fundinum f Bárunni ki. 8. Mínervufnndur f kvöld; Em- bættismannakosningar. Kosniugaskrífstofa B-Iisfans (Alþýðuflokksins), er opin alla virka daga í Alþýðuhúsinu við Ingólfstræti, frá klukkan io ár- degis. A sunnudögum er hún opia eftir klukkan i. Kjörskrá liggur þar frammi. Sími 988. B-Iistinn. Munið að B listinn er listi Alþýðuflokksins við þessar kosningar. Kjósið B-listann. Kvoikja feer á hjólreiðum og bifreiðum eigi síðar en kl. 4!/a.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.