Þjóðólfur - 21.10.1892, Side 1

Þjóðólfur - 21.10.1892, Side 1
Kemnr út & föstudög- um — Yerö flrg. (60*arka) | 4 kr. Krlendis 5 kr. - l.iw# Borgist fyrlr 15. júli. Ó Ð Ó LFU] R. Cppsögn skrifleg, bnndin viö áramöt, ógild nema komi til fltgefanda fyrir 1. oktflber. XLÍY. árg. Reykjavík, föstudaginn 21. október 1892. Nr. 49. BÓKMENNTIR. Saga Jörundar hundadagakóngs. Eptir Jbn Þorkélsson. Með 98 fylgiskjölum og 16 myndum. Kaupmannahöfn. Á kostnað bókaverzlunar Gyldendals 1892. 215 bls. 8. Engir hahi þeir atburðir gerzt hér á landi á þessari öld, er vakið hafa jafn- mikla eptirtekt útlendra manna sera inn- lendra, eins og atfarir Jörundar hunda- dagakóngs (Jörgen Jörgensens) 1809. Þessi ísleuzka stjórnarbylting mun lengí í minn- um liöfð. Hún mun jafnan verða talin einhver hinn einkennilegasti og kátlegasti viðburður í sögu þjóðarinnar á þessari öld, viðburður, sem vart eru dæmi til hjá ann- ari þjóð, að æztu stjórn landsins hafi ver- ið kollvarpað í einu vetfangi af umkomu- lausum, útlendum spjátrung, svona rétt upp á eigin spýtur, og án þess nokkur særðist. Um byltingu þessa hefur ýmislegt rit- að verið, en allmjög á sundrungu, og er því fremur lítið á því að græða. Það var því lofsvert fyrirtæki af landa vorum dr. Jóni Þorkelssyni (yngra) í Höfn, að rita þessa sögu af „hundadagakónginum“ ís- lenzka, sem nú hefur birzt á prenti á kostnað hinnar nafnkenndu bókaverzlunar Gyldendals í Höfn. Allur ytri frágangur bókarinnar er prýðilega vandaður og all- ólíkur því, er vér eigum að venjast hér heiraa. í bókinni eru myndir af þessum mönnum: Magnúsi Stephensen konferenz- ráði, Stefáni amtmanni Þórarinssyni, Finni prófessor Magnússyni, Yigfúsi sýslumanni Þórarinssyni á Hlíðarenda, Sveini lækni Pálssyni í Yík, Sigurði Thorgrimsen land- fógeta, Árna biskupi Helgasyni í Görðum, Gunnlaugi Briem sýslumanni, Valgerði Árnadóttur konu hans, Páli Jónssyni klaust- urhaldara á Elliðavatni, Sigurði Péturs- syni sýslumanni, Frederik Trampe stipt- amtmanni og Geir biskupi Vídalín. Flest- ar þessar myndir virðast dágóðar og sum- ar ágætar. Ank þessa fylgir bókinni mynd af Reykjavík 1810 og mynd af dansleik 1809, tekin eptir teikningu Jörundar sjálfs, líklega samt út í loptið. Af honum sjálf- um er engin mynd til, og er það leitt; mundi mörgum þykja gaman að sjá nú framan í þennan íslandskóng. Að því er efni bókarinnar og meðferð þess snertir, þorum vér óhætt að lúka lofsorði á það. Aðalhöfundurinn1, dr. Jón Þorkelsson, hefur í formálanum skýrt greinilega frá heimildarritum sínum, sem hér er því óþarft að telja. Má sjá af því, að meginhluta efnisins hefur höf. safnað úr óprentuðum skýrslum, einkum í ríkis- skjalasafni Dana. Er því margt nýtt í frásögn þessari, sem ekki hefur áður ver- ið kunnugt. En söfn hér á landi hefur höf. ekki getað notað til samanburðar, og mun það að vísu skaði lítill en þó nokk- ur. í landsbókasafninu mun sárfátt finn- ast um Jörund, er að nokkru gæti auðg- að þessa sögu hans, en í landsskjalasafn- inu (skjalasafni stiptamtsins) eru til fáein bréf, er þetta efni snerta, en ekki neitt sérlega markverð. Þar á meðal eru af- skriptir af 2 bréfum Jörundar, sem ekki eru nefnd í þessari sögu. Er hið fyrra dags. 27. júní og sendi Jörundur það austur í Árnessýslu rneð Finnboga Björnssyni (föður Teits dýralæknis) og öðrum manni, Jónasi að nafni. Skipar hann þar sýslumannin- um (Steindóri Finnssyni) að skýra Finn- boga frá, hve mikla peninga hann hafi undir höndum, og verzlunarst.jóra Lambert- sens á Eyrarbakka býður hann að afhenda Finnboga þá peninga er hann hafi, og búðarlyklana. Þá stóð Sveinn Sigurðsson, er sig nefndi Sivertsen, fyrir verzlaninni, og kvaðst hann í skýrslu, er hann gefur um þetta, hafa skýrt Finnboga frá, að verzlunin væri peningalaus og að sýslu- maður hefði enga sérstaka féhirzlu undir höndum, og hefði þá Finnbogi látið kyrt, en fest upp á Eyrarbakka auglýsingu Jör- undar 26. júní. Lyklunum kvaðst Sveinn hafa neitað að skila, en þó má sjá af skýrslu hans, að hann hefur gert þá nokk- urs konar samning við Finnboga fyrir hönd Jörundar og síðar fær hann vörur frá Phelps og gerir samning við hann um sölu þeirra 22. júlí. En svo kom Lam- bertsen kaupmaður út snemma í ágúst, ‘) Síðasta liluta sögunnar (um æfi Jörundar ept- ir burtfór hans héðan) hefur eand. phil. Ólafur Davíðsson samið. og hefur hann gefið skýrslu um viðskipti sín og Jörundar, er hér verður að sleppa, en skýrsla þessi ásamt skýrslu Sveins verzlunarstjóra er geymd í landskjalasafn- inu. Eru allar líkur fyrir, að Sveinn hafi ekki verið húsbónda sínum allskostar trygg- ur. Hann reynir auðsjáanlega að breiða yfir það í skýrslu sinni, að hann liafi ver- ið í þjónustu Jörundar, en honum tekst það ekki fullkomlega1. Hitt bréfið frá Jörundi, sem ekki er minnzt á í þessari sögu, er ritað 4. ágúst til Stefáns amtmanns Þórarinssonar. Skipar hann honum að afhenda Möller kaupmanni á Grundarfirði verzlanir Kyhns stórkaupmanns á Vopnafirði og Seyðisfirði, er þá áttu að seljast. Hafði Möller sótt um leyfi til Jörundar að mega reka verzlun á Aust- fjörðum, af því að hann hefði ekkert að gera á Grundarfirði, og vildi því bæði græða sjálf- ur og gera Austfirðingum hagræði með því að verzla þar með vörur sínar. Gefur liann síðar skýrslu um þetta (dags. 30. nóv. 1809) eptir kröfu stiptamtsins og ber af sér, að hann hafi verið í nokkru sviksamlegu makki við Jörund. Lætur hann fylgja afskript af þessu bréfi Jörundar til amt- manns 4. ágúst, og mun það nú hvergi annarstaðar til vera en í laudskjalasafn- inu, og sama er að segja um bréfið 27. júní. í safni þessu er og geymd nákvæm lýsing á útliti 6 manna, er komnir voru í þjónustu Jörundar 1. júlí, því að þá er þessi skýrsla samin af fangaverðinum Þ. Sivertsen, (þ. e. Þorleifi Sigurðssyni bróð- ur séra Brynjólfs á Útskálum, er þá var dómkirkjuprestur). Þessir 6, sem lýst or, eru Jónas Jónsson úr Strandasýslu 31 árs, Jón Jónsson úr Skagafirði 32 ára, Jón Bjarnason iir Gullbringusýslu 28 ára, Samson Samsonarson 26 ára, Gísli Einars- ») Sveinn þessi var almennt talinn faðir Páls, er kallaður var „Páll í kötnnm“ eða „K.úts-Páll“, og er til saga um það. Sveinn sigldi siðar til Noregs og varð kaupmaður i Arendal. Eiuhver afkom- andi hans þar vildi fyrir skömmu (2—3 árum) fá að vita eitthvað nánara um ætt þessa forföður síns, en gat ekki gefið betri upplýsingar um liann cn að hann hefði verið prestsson, helzt úr Keykjavík (!). En þá er þessi atkomandi var látinn vita, að áreiðanleg skýrsla um mann þennan fengizt ekki endurgjaldslaust, þurfti hann ekki að vita meira. En ættin er oss fullkunn.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.