Þjóðólfur - 12.01.1900, Page 2

Þjóðólfur - 12.01.1900, Page 2
6 nefndinni í heild sinni, að rúm það, sem Tímar. ræður ifir, reindist of lítið firir allar þær ritgjörð- ir, sem nefndin hafði samþikt. 7. ósannindi Einars eru það, að jeg hafi >beitt« nokkrum »undanbrögðum« í þessu máli. 8. ósannindi, að jeg hafi hjer »beitt ráð- ríki«. Um þessi tvö atriði er það að segja, að jeg hef framkvæmt bókstaflega og grandvarlega þær áliktanir, sem samþikfar vóru á fundum Tíma- ritsnefndarinnar, að svo miklu leiti sem jeg gat það án þess að ganga of nærri hagsmunum þess tjelags, sem mjer er trúað firir. Tlmaritið 1899 er með efnisifirliti og titilblaði fullar 15 arkir, eins og jeg lofaði munnlega á fundinum 30. maf. I það komu allar þær ritgjörðir, sem vóru sam- þiktar firir þennan fund og tvær afþeimfimm, sem samþiktar vóru á þessum tundi. Meira var ekki rúm firir á 13 örkum. Þessar tvær ritgjörð- ir höfðu bæði fengið fleiri atkvæði enn ritgjörð Bain’s og borist Tímaritsnefhdinni fir enn hún, og hefði jeg því gert höfundum þeirra 2 ritgjörða rangt til, ef jeg hefði ekki látið þær ganga firir, og þá hefði með rjettu mátt bregða mjer um gjörræði og hlutdrægni. Hvað átti jeg þá að gera, hvað gat jeg gert annað enn það, semjeg gerði, að geima ritgjörð Bain’s ásamt þeim tveim- ur ritgjörðum öðrum, sem ekki komust að sakir rúmleisis, til næsta árgangs, eins og siður hefur verið aitaf að undanförnu, þegar svo hef- ur á staðið, að ekki var rúm firir allar þær greinir, sem samþiktar vóru. Atti jeg að hafa árganginn 1 — 2 örkum lengri til að koma ritg. Bain’s að? Það sá jeg að efnahagur fjelagsins leifði ekki. Eins og kunnugt er, var deildin hér í mjög mikilli skuldasúpu, þegar jeg tók við stjórn hennar. Þetta áleit jeg þá og álít enn bæði ósæmilegt firir fjelag vort og auk þess skað- legt og jatnvel hættulegt firir tilveru deildarinnar- og hef jeg því, sfðan jeg tók við, reint affremsta megni að kippa þessu í lag með sparsemi, og hefur mjer orðið talsvert ágengt í því efni. Firir þetta higg jeg, að jeg eigi þakkir skilið enn ekki vanþökk af fjelagsmönnum. Hvar eru þá und- anbrögð mín og ráðríki? 9. ósannindi hjá E. er það, er hann ber mjer á brín, að j e g hafi farið með nokkur ó- sanmndi f þessa máli. Jeg hef sínt það hér að framan, að Einar bregður mjer hjer um það, sem hann hefur sjálfur gert sig sekan í, og til enn frekari sönnunar því, að jeg hafi skírt alveg rjett frá því, sem fram fór í Tímaritsnefndinni, vísa jeg til eftirfarandi vottorðs: Eg undimtaður votta hér með, að pessi skýrsla rektors um pað, er gerðist á fundi Tímaritsnefndar- innar 30. mai síðastl. er að öllu leyti rétt ög sann- leikanum samkvcem. Eg man pað glöggt, að pœr3 ritgerðir, setn um er að rœða, voru bornar upp til atkvceða hver i sinu /agi, og að engin krafa kom fram um, að atkvceðagreiðslunni skyldi öðruvisi hag- að, og eins heyrði eg rektor taka pað skýrt fram, að hann treystist ekki til að hafa Timaritið lengra en 13 arkir. Reykjavík 21. des. 1899. Hannes Þorsteinsson. 10. ósannindi eru það, sem E. segir, að jeg »sje að reina að klóra' mig út úr klípunni á neiðarlegan hátt«. Jeg vona, að þeim, sem les- ið hafaskírslu mína um málið, skiljist, að það er ekki jeg, heldur Einar, sem er í klípunni. Það er annars ekki talið fallegt eða drengi- legt að skíra öðrum frá því, sem gerist innan fjögra veggja í nefndum, og síst að afbaka það og misherma. Það er ekki jeg, sem hef birjað á þessu, heldur hef jeg neiðst til að leiðrjetta ó- sannan söguburð til að verja hendur mfnar. Á brjefi frá Jóni Ólafssini, sem Einar lætur prenta athugasemdalaust í ísafold, sjest, að það er Einar, sem firstur hefur birjað þennan ósanna söguburð úr Tímaritsnefndinni. Þar segir Jón Ólafsson: »Mig minnir, að hr. Einar Hjörleifs- son, sem nú er ekki viðstaddur, segði mjer, að samþikt hefði verið um hana og tvær aðrar rit- gjörðir (Boga Melsteðs og Helga Pjeturssonar), að:þær skildu annaðhvort teknar allar eða engin«. Og svo bætir Einar gráu ofan á svart með því að segja, að jeg ætti að vera honum þakk- látur fyrir »hlífð« hans og »miskunsemi«(!) við mig í þessu máli. Jeg get ekki að því gert, að mjer dettur í hug það sem Xenophon segir um Menon hershöfðingja, að hann hafi talið það, sem velgjörð, þegar einhver fór frá honum, að hann hafði ekki drepið manninn, meðan hann var hjá horvum. Að svo mæltu legg eg þetta frumhlaup Ein- ars óhræddur undir dóm almennings. Reikjavík 22. des. 1899. Bjórn M. Ólsen. Hneykslanlegt verðlaunatilboð. er það, sem »ísafold« flytur sfðast frá Sigurði barnakennara Jónssyni í umboði einhverrar um- dæmisstúku Goodtemplara nr. 1. Það er hvorki meira né minna, en að stúka þessi heitir hverj- um þeim 10—20 kr. verðlaunum, sem ljóstrar upp brotum gegn vínsölulögunum nýju. Hefði nú stúkan eða þessi barnakennari haft vit á að birta hneykslistilboð þetta 1 sínu eigin blaði »Good- templaranum«, þá hefði það þó verið sök sér, en að hlaupa með annað eins og þetta í almennt blað, er mjög óviðurkvæmilegt. En enginn, sem hér er kunnugur þarf að furða sig á, þótt »ísa- fold« tæki þetta með þökkum, því þetta og því- Ifkt fellur einmittí hennar »kram« (og er ef til vill beinlínis undanhennarrifjumrunnið). Húneraldr- ei vöruvönd, og sízt þegar peningar eru í aðra hönd. En tilboð þetta er hneykslanlegt, af því að það getur haft svo ísjárverðar afleiðingar í för með sér og siðspillandi áhrif á fólk. Eg get t. d. hugsað mér, að ef þessu yrði einhver gaum- ur gefinn, þá yrðu einhverjir misindismenn til þess að bera fram lognar sakargiptir á sak- lausa menn og staðfesta þær með eiði. Það eru ekki allir svo samvizkusamir, þegar peningar eru í aðra hönd, og þetta gæti orðið bezta atvinna fyrir þá, er hana vildu rækja. En hinir sak- bornu stæðu varnarlausir uppi gegn slíkum ó- fögnuði. En að stuðlaað því, að slíkur ósómi færi að tíðkast hér, er öldungis ónæfilegt, hvort heldurþað er heiltfélag eða einstakir, menn, sem hneykslið er sprottið frá. Og allra sízt sæmir það þeim mönnum, sem settir eru til að fræða og betra æskulýðinn, — börnin, að vera þar fremstir í flokki. Það mundl t. d. þykja miður fögur regla í bamaskólum og hafa miður góðar afleiðingar í för með sér, ef kennarinn lofaði því barni 25 aurum, er ljóstraði upp einhverjum smá- brekum, eða ógætilegu orði annars barns. Með því fyrirkomulagi yrðu allir skólar að svínastýj- um, þar sem hver lærisveinn leitaðist við að gera hinum smán fyrir fáeina aura, og svo koll af kolli, því að hver vildi hefna fyrir sig með sams- konar áburði á námsbróður sinn. Það væri nógu laglegt ástand eða hitt þó heldur. Látum hina áköfu bindindismenn sjálfa gera sitt ítrasta til að ljóstraupp brotum gegn lögum, er þeir telja sér hallkvæm. Það finnur enginn maður að þvf, og það leiðir af sjálfu sér, að þeir geri það. En þeir ganga langt út fyrir starfsvið sitt og almennt velsæmi, með því að heita opin- berlega verðlaunum — jafnt utanfélagsmönnum sem öðrum — fyrir þennan uppljóstur. Það mundi t. d, mælast miður vel fyrir, eins og eðli- legt væri — ef einhverjir, sem ekki eru í Good- templarreglunni tækju sig saman um að lofa 10 —20 kr. verðlaunum handa þeim, er ljóstruðu upp brotum gegn bindindisheiti templara, leigðu t. d. menn fyrir peninga til aö sitja um templ- ara, hvar sem þeir væru staddir, þefa af þeim og njósna um »inngang« þeirra og »útgang« alstað- ar. Þetta væri einnig ljótt og svívirðilegt, Templ- arar verða að gæta þess, að þeir brennimerki ekki félagsskap sinn með neinu óviðurkvæmilegu atferli, er setji blett á starfsemi þeirra og geti haft ískyggilegar afleiðingar í för með sér fyrir þjóðfélagið. En það hafa þeir gert með þessari vanhugsuðu og mjög óviðurkvæmilegu verðlauna- auglýsingu í Isafold, sem gerð hefur verið í ein- hverju óskynsamlegu ofstækis fáti. Setning Jesú- ítanna : »Tilgangurinn helgar meðalið» á ekki að vera og má ekki vera einkunnarorð Goodtemplara, fremur en annara heiðvirðra manna. Herrauður. Úr Árnessýslu. [Heyskaptir — Bráðasóttarbólusetning — Jarðarför — Bindindismál — Bankamálið stóra — Pólitík — Merki B. Sveinssonar — Skúli Thoroddsen og almenningsálitið — Alþingí — Eptirlaun — Stokks- eyrarhöfn — Samgöngumál — Ameríkuferðir]. Þótt langt sé síðan Þjóðólfur hefur flutt frétta- bálk héðan úr sýslu verður ekki mikið um ný- ungar, þvl beri eitthvað við er það samstundis komið í eitthvert blaðanna; mér verður nú sem flestum að byrja á tíðarfarinu. Heyskapur í sumar var hér í neðri hluta sýslunnar með lakasta móti, ollu því sífelldar rign- ingar, sem fylltu allt mýrlendi; náðist því lítið annað en reitt var heim á tún í votabandi; þó heyjaði stöku maður vel, þar á meðal Sig. Ólafs- son sýslum. í Kaldaðarnesi, hann fékk við 2,000 hesta í garð af sæmilega verkuðu vallendisheyi, sem hann lét í eina hlöðu, og þykir það heppni mikil að ekki brann, eptir því sem heybrunar hafa verið tíðir í þetta sinn. Fjárpest hefur hér enn ekki drepið neitt að ráði og í sumum sveitum ekki gert vart við sig, enda er talsvert unnið að bölusetningum hér og framkvæmir það verk Vigfús búfræðingur í Haga og þykir honum vel takast. Mannalát hafa nokkur orðið, og sumir fall- ið frá, sem skaði er að missa úr felaginu; hafa blöðin getið þeirra flestra; í sambandi við þetta get eg þess, að jarðarför Þorvarðar sál. Guð- mundssonar í Litlu-Sandvík fór fram laugardag- inn 2. des. 1 viðurvist meira fjölmennis en vana- legt er í sveitinni, einkum um þennan tíma árs. Eitthvað um 300 manns komu að kirkjunni, og þáðu einhverjár góðgerðir og 100 manns sátu til borðs um kveldiði. Er þessa getið af því, að rausn þessi þótti samboðin gestrisni þeirri og vel- vild þeirra hjóna, sem var alveg einstök hér í sýslu og líklega víðar. Viðstaddir hreppstjórar báru hann til grafar. — Þá er bindindismálið; þar held eg megi segja að öllu lfði vel. Stúkumar á Eyrarbakka ogStokks- eyri færa óðum út kvíarnar, einkum hefur sú fyr- talda duglega og framgjarna foringja. Eyrbekk- ingar hafa rifið niður gamla bindindishúsið sitt og sett upp annað á öðrum stað, að stærð 20 X 10, tvfloptað, hvort lopt með fullri hæð. Húsið mun vera vandað eptir föngum og að mörgu templurum til sóma. Heyrt hef eg, að sumum þeim fátækari þyki ekki bygging þessi eins bráðnauðsynleg og talið er, einkum nú þegar misjafnlega lætur í ári, eins og nú; óskandi væri, að þetta mismunandi álitj yrði ekki meðlimum stúkunnar að þykkjuefni eða sundrungar, því við því má þetta félag ekki fremur en aðrar nytsemd- arstofnanir. — Bankamálið er talsvert rætt nú um þessar mundir og þó furðu kunni að gegna eru þar ekki mjög skiptar skoðanir. Reyndar’Lná efalaust segja um okkur leikmenn, að það mál sé fyrir ofan okkar heila. Það kann rétt að vera, en samt eru það bændur og búaliðar, sem eiga að hafa gott af þessháttar stofnunum og þvf von, að þeir vilji athuga það mál eptir mætti. Meðal annars er talsvert orð á því gert nú, hvað veld- ur drætti á staðfestingu laga frá þinginu í sumar um aukna seðlaútgáfu landsbankans; sama er og sagt um veðdeildarfrumvarpið. Það er stjórnar-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.