Þjóðólfur - 02.02.1900, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 02.02.1900, Blaðsíða 4
24 hjálpsemi, sér í lagi við hina minniháttar, var hann einn af hinum vinsælustu mönnum, einn af þeim fáu, sem enginn hefur um að segja annað en allt hið bezta. Vegna réttsýni sinnar og breytni var hann allra manna bezt til þess fallinn að jafna á- greining og misklíð. Heimilislíf hans var hið fegursta og friðsamasta, gestrisni mikil og allt veitt af alhug og nærgætni. — Hann lét lítið til sín taka um al- menn mál, en íylgdi þó vel með. — I sveitamálum kom margt til hans kasta, og þótti það jafnan ráð, er hann réði. — Hann var trúmaður mikill, elskaði guðs orð og guðshús, bræðrafélagið og land sitt. Við fráfall hans er autt skarð í fylkingu nýtustu og heztu bænda þessa héraðs. (O). Um jfón Halldórsson, er andaðist á Kiðabergi í Grímsnesi 4. jan. (sbr. 3. tölubl. Þjþðólfs) skrifar kunnugur maður þar eystra: „Jón heit, var fæddur á Stokkalæk á Rang- árvöllum 11. nóv. 1815, missti föður sinn 1836 og mun þá hafa farið í vist til Steingríms biskups Jónssonar, og dvalið hjá honum jafn- an síðan, síðustu árin sem ráðsmaður. Þar mannaðist Jón og menntaðist vel. Vorið 1845 (sama vorið sem Steingr. dó) fluttist Jón að Búrfelli og gerðist fyrirvinna hjá ekkju Ragnbildi Jónsdótt- ur (prests Jónssonar í Klausturhólum), en kvæntist henni sama haustið. Ragnhildur var hálfsystir séra Jóns sál. Jónssonar á Hofi, en börn hennar með fyrri manni hennar Birni jónssyni á Búrfelli voru 3: Séra Jón Björnsson síðast prestur að Stokkseyri, Jón söðlasmiður síðast á Hömrum og Margrét kona Guðm. Guðmundssonar í Landakoti á Strönd. — Jón sál. settist í blómlegt bú á Búrfelli, enda má fullyrða, að hann kunni vel með að fara, og mun mega fullyrða, að eptir engan bónda honum sam- tíða liggi jafnmikil og vel vönduð störf. Hann hýsti bæ sinn mjög vel og langtum betur en þá var títt. Hann reisti vandaða timburkirkju á bæ sínum, sem enn stendur og ber vott um vandvirkni hans. Hann reisti enn fremur vandað timburhús 12X8 stórt, mjög traust. Hann sléttaði mest allt Búrfellstún, eitt stærsta tún þessarar sveitar og þótti sá frágang- ur snilldarlegur, og girti það að miklu leyti, enda mun túnið nú gefa af sér 4- 500 hesta. Yfir höf- uð má fullyrða, að engin jörð hér nærlendis hafi verið líkt þvi eins vel setin og Búrfell, meðan Jón bjó þar. Arið 1868 let Jón af búskap, bæði vegna þess að kona hans var þá orðin öldruð og sjálfur hann veiklaður á heilsu. Fóru þau hjón þá að Hítarnesi til stjúpsonar Jóns, séra Jóns Björnssonar, Þar festi Jón ekki yndi. Flutti þá aptur suður og keypti Suður-Reyki í Mosfellssveit. Reisti þar vand- aðan bæ og byrjaði á miklum jarðabótum; en litlu síðar andaðist kona hans, og treystist hann þáekki að halda áfram búnaði en seldi jörðina. Eptir það dvaldi hann á ýmsum stöðum þar syðra, en flutti að lokum árið 1895 á fornar stöðvar og dvaldi þar það sem eptir var. — Það mun hiklaust mega telja Jón aðalframkvöðul þeirra jarða- og oúnaðarbóta, sem Grímsnesingar hafa getið sér almennt lof fyrir á síðari árum. Jón sál. var mjög vel greindur og betur mennt- aður, en flestir bændur honum samtíða. Hann var sannur sæmdarmaður; hreinskilinn, einarður, trygg- ur og vinfastur; úrræðagóður og ráðhollur, hjálpfús og höfðinglyndur, og mun minning hans seint firn- ast hjá þeim, sem höfðu kynni af honum eða þekktu framkvæmdir hans“. (St). Póstskipia ,Laura‘ fer í dag úr Hafn- aríirði til Yestfjarða. Auk Einars Benediktssonar fór Páll Torfason verzlunarm. með konu sinni til Flateyrar. _______ Gufuskipið ,Kollbri‘ kom í nótt, ept- ír tæpa 4 sólarhringa ferð frá Skotlandi, með salt til G. Zoéga og Th. Thorsteinsson. Vissi engar nýungar, enda kvaðst skipstjóri ekki hafa nein bíöð meðferðis. _______________ Ágóði af tombólunni, er halðin var hér í £ m. Norðmönnum til hjálpar varð um 1000 kr. Algert ranghermi í síðustu Isafold er það, að veðdeildin við landsbankann verði að eins Reykjavík til nota, en ekki öilu landinu. Þar hjálpi að eins s-stóri bankinn«. Þetta er nfl. al- veg öfugt. Veðdeildin er einmitt aðallega fyrir landsmenn utan Reykjavíkur, en »stóri bankinn« yrði að mestu leyti Reykjavíkurkaupmönnum til nota, en hvorki landbúnaðinum né fasteigna- eigendum í landinu, eins og margsannað hefur verið. Leiðarvísir til lífsábyrgðar faest ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja lif sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. Alþýðufyrirlestup heldur Sigurdur inge- níör Pétursson sunnudaginn 4. febr., á venjulegum stað og tíma, um vatnsból og skolþræsi, og er það framhald fyrirlestrar hans f. á., en nú með sérstöku tilliti til Reykjavíkurbæjar, I. Paul Liebes Sagradavín og Maltextrakt með kínín ogi járni hefi eg nú huft tækifæri til að reyna með ágæt- um árangri. Lyf þessi eru engin leyndarlyf (arc- ana); þurfa þau því ekki að brúkast í blindni, þar sem samsetning þessara lyfja er ákveðin og vitanleg. Sagradavínið hefur reynzt mér ágætlega við ýmsum magasjúkdómum og taugaveiklun, og er það hið eina hægðalyt, sem eg þekki, er verk- ar án allra óþæginda, og er líka eitthvað hið ó- skaðlegasta lyf. Maltéxtraktin með kína og járni er hið bejta styrkingarlyf, eins og efnin benda á, hið bezta lyf gegn hvers konar veiklun, sem er, sér- staklega taugaveikhm, þreytu og lúa, afleiðingum af taugaveiki, þróttleysi magans o. s. frv. — Lyf þessi hef eg ráðlagt mörgum með bezta árangri og sjálfur hef eg brúkað Sagradavínið til heilsu- bóta, og er mér það ómissandi lyf. Reykjavík 28. nóv. 1899. L. Pdlsson. Einkasölu á I. Paul Liehes Sagrada- víni og Maltextrakt með kínín og járni fyrir Island hefur undirskrifaður. Utsölu- menn eru vinsamlega beðnir að gefa sig fram. Reykjavík í nóvember 1899. B]örn Kristjánsson. Ekta anilinlitir * r+ P \ i $ 3 « i i fást hvergi. eins góðir og ódýrir eins og í verzlun STURLU JÓNSSONAR Aðalstræti Nr. 14. U •U\\\UTS vi>13 Allar tegundiraf farfavöru, einn- ig ýmsar tegundir af lökkum, bronze1 terpentínolia, fernisolía, blackfern- is, gljákvoða, (þólitur), benzin, sal- míakspiritus, stearinolía, Vinar- kaik, skósmiðavax, seglgerðar- mannavax og margt fieira, sem hvergi fæst annarsstaðar. Allt betta selzt mjög ódýrt í verzlun Sturlu Jónssonar. Selt í Selvogshreppi bleikálótt mer- trypþi 2 vetra, ómarkað, sem var þar í óskilum. Réttur eigandi getur vitjað andvirðisins að frá- dregnum kostnaði til næstu fardaga hjá undir- skrifuðum hreppstjóra. Útlausnarfrestur til Góu- loka. Selvogshreppi 27. jan. 1900. Gísli G. Scheving. Aldrei framar á æfinni býðt^ífu fy ri r Aðeins 6 kr. auka-útsala. Veljið úrið „La Vigilant", sem er dregið upp án lykils. 6 stykkl fást aðeins fyrir 30 KRÓNUR. 25 kr.I 8 ,karat‘ gullúr með akkerisgangi handa karl- mönnum með 2 gullkössum, 50 mm. að stærð, 15 ekta steip- um, skriflegri tryggingu fyrir að úrin gangi rétt, með haldgóðu, óbreytilegu gulli, eins og í 400 kr. úrum, sel eg fyr- ir einar 25 kr. Þar að auki samsvarandi úrkeðjur á 2 kr. 50 a. — Gullúr handa kvennmönnpm á 23 kr. Silfurúr með fínasta akkerisgangi, 15 rubístein- um og 3 þykkum, ríkulega gröfnum silfurkössum, vandlega stillt, viðurkennd beztu úr í heimi, áður 6o kr., sel eg nú fyrir einar 15 kr. Silfurúr handa. kvennmönnum með 3 silfurkössum á 14 kr. Send- ist kaupendum að kostnaðarlausu og með ábyrgð, en borgun fyrir hið pantaða sendist fyrirfram. Pant- anir geta menn óhræddir stílað til; Uhrfabrik M. Rundbakin. Wien , Berggasse 3. Verðskrá með meir en 500 myndum er send ókeypis. T I L SÖLU. Nýtt og vel byggt íbúðarhús, með ágætum kjallara undir, járnvarið og vel umgirt, er til sölu með ágætum borgunarskilmálum. Ritstj. vísar á seljanda. VOTTORÐ. Eg finn mig ómótst'æðilega knúða til að senda yður eptirfarandi meðmæli; Eg undirrituð hef mörg ár verið mjög lasin af taugaveiklun, krampa og ýmsum öðrum veikindum, er staðið hafa í sambandi við það, og er eg hafði leitað ýmsra lækna árangurslaust, fór eg að brúka Kína-lífs-elixír frá Waldemar Petersen i Frederikshavn, og get með góðri samvizku vottað, að hann hef- ur veitt mér óumræðilega meinabót, og finn eg, að eg get aldrei án hans verið. Hafnarfirði í marz 1899. Agnes Bjarnadóttir. húsfreyja, KÍNA-LÍFS-ELIXIRINN fæsthjá flcstum kaup- mönnum á íslándi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, cru kaupendur bcðnir að líta vel v p. eptir því, að-pr^- standi á fiöskunum 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínverji með glas i hendi, og firma- nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn. NORDISK BRANDFORSIKRING tekur í ábyrgð hús, vörur, húsgögn o. fl. fyr- ir lœgra iðgjald en önnur félög eru vön að gera hér á landi. Halldór Jónsson bankagjaldkeri er um- boðsmaður fyrir Reykjavík, Kjósar- og Gull- bringusýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Leýoliis verzlun á Eyrarbakka hefur um- boð fyrir Árnessýglu og Rangárvallasýslu. Gott fiður fæst keypt fyrir. peninga. Rit- stj. vísar á. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Glasgow-prentsmiðjan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.