Þjóðólfur - 23.05.1900, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 23.05.1900, Blaðsíða 2
94 eyðing hrafnsins forðum, sem eg held nú að ekki hafi verið. — Um hrafninn er það að segja, að honum mætti gereyða á i eða 2 árum, það t^ldi jeg bið mesta þarfaverk, og þarfara fyrir bændur og búaliða, en sumt, sem eptir þing vort liggur. Eg get heldur ekki stillt mig um að geta þess, að ákvæði vanti í lög þessi gagnvart hinurn svo- nefndu skothundum eða »sport«hundum, sem optast eru að eins hafðir til skemmtunar, fremur en t i 1 g a g n s, einkum í júní og júlí, eða um þann tíma, sem fuglar eni friðaðir, því þá munu þeir niinna skotnir? — Þessar stássferðir hundaeigenda eptir vegum, sem liggja um mýrar og varplönd fuglanna, hafa til þessa orðið margri eggjamóðurinni dýrar og huggunarsnauðar, og verða svo líklega enn þá.— Nokkrum sinnum hef eg séð, að hundar þeir, sem áður hefur verið áminnst, og sem annars eru mjög þefvísir, sem þeír hafa náttúru til, hafa hlaup- ið út frá veginum á báðar hliðar, og hlaupið með honum í einlægum krókum og bugum aptur og fram, stöðugt með trýnið ofan í jörðinni. Eggja- mæður, sem liggja á fjölskyldu sinni, sjást hver- vetna fljúga upp flaxandi og baxandi, allt er á einlægu iði og ókyrrð, feður og mæður. Rándýr þessi bíða vanalega iítið eitt við hreiður þau, sem þau finna, að eins á meðan þau bryðja upp egg eða unga. — Þessi eltinga- leikur, svo blóðugur sem hann er, stendur var.a- Jegast yfir, þar til hundurinn hefur fengið fylli sína, eða er orðinn þreyttur á eltingaleiknum. — Ekki finnst mér viturlegt, að gefa út lög um friðun fugla, og látast vilja sýna þeim ve 1 v i 1 d og vörn, en setja ekkert ákvæði til verndar þeim fyrir þessum gráðugu flökkudýrum, svo sem að gera eigendum þeirra að skyldu, að hafa læstan leðurmúl um kjapt hundanna, svo þeir geti síður étið eða drepið, nema þegar eigendur þeirra leyfa, eða þá jafnvel banna með öllu að hafa hunda þessa með, um friðunartímann, því til leiðarvís- is þurfa þeir ekki að vera um þann tíma árs.— »Sú var tíðin«, segir gamla fólkið nú, »að varla fór eg svo út á smalaþúfuna, að eg fynndi ekki þetta 10—20 egg, nú finnur maður varlaegg, þó leitað sé vorlangan daginn«. Þetta kunna nú að vera ýkjur hjá gamla fólk- inu, en því miður held eg, að eitthvað sé hæft í þessu, og sumarfuglunum sé að fækka, og mun smækkun jurtagróðans eiga góðan þátt í því o. fl. Þarf því að hafa friðun þessara meinleysingja sem tryggasta og ftarlegasta; það væri náttúrlega bezt, að þurfa ekki friðunarlög um þetta eða ann- að, náttúran bætti upp það, sem eytt er, en því er sjaldnast svo varið. Öllum er kunnugt um gereyðing geirfuglsins, og svo er eflaust um fleiri fuglategundir, sem liðið hafa undir lok, þó ekki séu fyrir hendi beinar sagnir um það. Fyrst er fækkun, svo að lokum gereyðing. Eg get þess að lokum, að mitt sinni er þannig, og líklega fleiri, að fari eg að hætta að heyra eða sjá sum- arfuglana, sem vanalegast segja mér fyrst til vors- ins, langar mig ekki til að lifa í landinu. — Þrátt fyrir agnúa þá, sem nú hefur verið á- minnst viðvíkjandi friðunarlögum þessum, áþóþing- ið þakkir skildar eða öllu heldur nokkrir þing- menn fyrir tilraunir þær, sem það gerði í friðun- aráttina. I neðri deild er það helzt 1. þingm. Arnesinga, Tr. Gunnarsson, sem berzt fyrir frum- varpinu, og honum er það að þakka, að það hafðist í gegn. — Efri deild sýnist ekki hafa mik- jnn áhuga á málinu, enda fer frumvarpið í gegn- um hana umræðulítið og skýringasnautt. — Mér finnst, að allar barnamæður, sem bezt allra ættu að þekkja til móðurástarinnar, finfii sér skylt, að áminna börn sín að taka ekki egg úr hreiðrum smáfugla, allra sfzt ef liðið er á varp- tímann og ef eggjamóðirin ber sig illa, því þá er víst, að eggin eru orðin unguð og óæt. Eg get að endingu ekki stillt mig um að sejta hér eitt af erindum úr hinu fallega kvæði: »Æsku- ljóð« (lesin upp fyrir börnum) eptir þjóðskáld vort, séra Matthías Jochumsson: Grætið svo aldrei þá aumustu mús, og angrið ei fuglinn, sem ekki á sér hús. Ef skepnunum sýnið þið vinsemd og vörn, verðið þið lángefin höfðingja börn. Frá útlöndum hafa borizt fréttir í ensk- um blöðum til 15. þ. m. með gufuskipinu »Playor« er kom hingað frá Englandi 21. þ. m. með kol handa brezku herskipi (botnverpla-gæzluskipi), sem væntanlegt er á hverri stundu. — Af Búa- stríðinu er það helzt að segja, að Roberts tók 10. þ. m. bæinn Kroonstad, þar sem Steyn for- seti Oranjerlkis hafði haft aðsetur sitt síðan hann varð að flýja frá Bloemfontein. Er svo að sjá, sem töluvert mannfall hafi orðið af Bretum þann dag, en fregnir um það ekki áreiðanlegar. Ekki tókst Bretum þó að hafa hendur í hári Steyns, og hefur hann nú þokað sér lengra norður á bóginn nær Transval, og sezt þar að í bæ, er Heilbron heitir, 50 enskar mílur fyrir norðan Kroonstad, og 20 mílum vestar en beinust leið liggur frá Kroonstad til Pretoríu. Hefur Steyn lýst yfir, að Heilbron sé til bráðabirgða höfuð- staður ríkisins, og er svo að sjá, sem honum komi ekki til hugar að gefast upp að svo stöddu, en alltaf sverfur nú meir og meir að Búum, og segja menn, að Krúger óski nú gjarnan friðar, en ekki nærri því komandi hjá Bretum, er nú vilja láta sverfa til stáls að fullu. Þá er Roberts hefur hvílt sig í Kroonstad ætlar hann að halda með lið sitt inn í Transval til Pretoríu og taka þá Heilbron um leið, en snúningar geta orðið á því fyrir honum, og leiðin orðið torsóttari, en hann hyggur, því að Búar hafa nú viðbúnað mikinn norðan megin við Vaalfljótið, er skilur Transval og Oranje ogbafahlaðið þar skotgarða til að varna Bretum norður yfir fljótið, en naum- ast geta þeir þó lengi spornað gegn framsókn þeirra. — Ekki hafði hjálparliði frá Roberts enn tekizt að leysa Mafeking úr umsátri eptir síðustu fréttum þaðan að sunnan, og gerast Bretar heima fyrir mjög óþolinmóðir yfir því, og eru dauð- hræddir um, að Mafeking faíli f hendur Búa, og þykir það sneypa mikil, ef svo yrði. Baden- Powell heitir ofursti sá, er stýrir setuliðinu brezka f Mafeking og er vörn hans þar mjög ágætt, því að hann hefur fremur fátt manna, og hungur og veikindi hafa höggvið stórt skarð í flokk hans. Um miðjan fyrra mánuð voru matvælin orðin þar svo dýr, að ein tylft eggja kostaði t. d. 18 kr. Auðvitað hefur það engin veruleg áhrif á gang ófriðarins, hvort Mafeking verður að gefast upp eða ekki, en Bretum mun lengi svíða sú skömm, miklu fremur en mikill ósigur, og mun sú gremja einkum bitna á Roberts. — Ensk blöð segja, að Krúger hafi leitað frétta hjá hollenzkum spámanni nokkrum og hann hafi sagt honum, að fríður mundi komast á 14. júní og 3 mánuðum slðar mundi Krúger andast, og segja blöðin að Krúger trúi þessu. En auðvitað er þetta hégilja ein og uppspuni, til að sýna, hve Krúger sé hjá- trúarfullur. Skagafirði, 9. maí. Héðan helztu fréttir nú sem stendur veikindin. Landfarsóttin — influenzan læðist um byggðir og ból, og leggur nálega alla í rúmið, og suma í gröfina. Af merkum mönnum látnum má nefna Hannes bónda Pétursson á Skíðastöðum, valinkunnan sóma- mann, rúml. fertugan að aldri. — Allan næstl. vetur var hér einmunatíð. 29. f. m. gekk í norðangarð með frosti, en úrkomulaust hér í sveitinni. Hríð sagt hafa verið á útsveitum. í dag er kominn sunnan-þíðvindur og blíða. Vor- fuglarnir syngja svo unaðslega hérna á mýrunum, svo að nú vonum vér, að vorið sé komið og grund- irnar grói. Vestur-Skaptafellssýslu (Meðallandi) 12. maí. Veturinn hefur verið mikið snjóalítill, má segja snjókomulaus hér nálægt sjó, aptur hefur snjórkom- ið til fjalla, helzt fjærst byggð eða á nyrztu bæj- um; hafa sumir orðið að gefa þar lengi. Hér hefur líka víðast hvar verið gefið meira og minna, valda því umhleypingar, sem hrakið hafa hold af fénaði. Um jólin var frostíhlaup 15 gr. R. Aptur í marz mikil frost, þ. 16. 15° 17. 16°, 18. 170 og 19. 140. Þrátt fyrir það, þótt vetur þessi megi teljast góður, man eg þó marga betri. Veturinn 1839—40 mikið góður og mildur, 1840—41 enn mildari og betri, 1841—42 ágætis-vetur, 1844—45 sérlega góður, 1846—47*hinn bezti, sem eg man; þá var veturinn 1855^-56 ágætis-vetur. Alla þessa álít eg betri en þennan nýliðna vetur. Það eru fleiri vetrar, sem eg man góða, til dæmis 1879—80. Síðan sumarið kom, hefur tíðin verið köld og stirð. 1. maí myrkviðris- bylur, kafald og stormur. Nú tvo daga hefur verið stillt veður, en heldur hlýindalítið. Lítið hefur aflazt hér í Meðallandi. Eg held að einn bátur telji frá 80—100. Aðrir þrír, sem hér ganga til sjós, mjög lítið. I Mýrdal, lágir — að minnsta kosti — rýrir — hlutir, sama undir Eyjafjöllum. Inflúenzasótt- in, sem eystra hefur gengið í vetur, kvað komin út í öræfi, og dánir þar úr henni 4 rnenn: Þorgils Guðmundsson bóndi í Svínafelli, dóttursonur séra Páls heit. í Hörgsdal, Runólfur gamli Þórhallason á sama bæ (föðurbróðir séra Gísla í Langholti), Róshildur Bjarnadóttir kona hans og Jón Jónsson Örsefingur á Hofi, tengdasonur Runólfs. Eptirmseli. Hinn 17. febrúar þ. á. andaðist að Gunnars- stöðum í Dölum Kristján Krist/dnsson, fyrrum ráðs- maður í Hítardal, 83 ára gamall. Foreldrar hans voru Kristján Ólafsson og Guðrún Bjarnadóttir, merk hjón fyrir margra hluta sakir. Bjuggu þau að Dunki í Hörðudal, og þar fæddist Kr. árið 1817. Hann ólst upp hjá Eiríki bónda Tómassyni á Ketilsstöðum í Döl- um til 25 ára aldurs, þá giptist hana Steinunni Einars- dóttur (Magnússonar bónda á Dunki), Dó Steinunn á undan honum eptir 47 ára sambúð. Þau eignuðust 3 sonu, dó einn í æsku, en tveir náðu fullorðins- aldri, en dóu þó báðir á undan föður sínurn. Hétu þeir Kristján Einar, hreppstjóri á Dunki, og Jónas, er bjó í Straumfirði á Mýrum. Voru þeir bræður báðir vinsælir menn og vel að manni. — Kristján heitinn vann mest lífstarfsitt í Mýrasýslu, þótt hann fæddi|t og dæi í Dalasýslu. Hann bjó fyrst fyrir sjálfan sig nokkur ár, en auðgaðist ekki á því. Árið 1854 brá hann búi og gerðist ráðsmaður hjá Þor- steini prófasti Hjilmarsen í Hítardal og hélt því starfi meðan þeir lifðu báðir. Þau ár voru fegurstu árin í æfi Kristjáns. Efnahagur próf. var fremur þröng- ur, er Kr. kom að Hítardal, en fljótt breyttist það svo, að efnahagur prófasts blómgaðist næstum svo undrum gegndi á stuttum tíma. Safnaðist Kristjáni sjálfum þá einnig talsvert fé. Er ráðsmennska Krist- jáns í Hítardal jafnan að annálum höfð, svo sem maklegt er. — Kristján sál. var stór maður og lcarl- mannlegur á vöxt, og vel gáfaður, þrekmaður hinn mesti til sálar og líkama, og þótti stundum stíflynd- ur nokkuð og einráður; en höfðingi mesti var hann í lund, vinavandur en vinfastur, og hjálpsamur við þá, sem örbirgð amaði að, eða voru ( einhverjum vanda staddir. 2 börn ól hann t. a. m. upp á sínu fé fyrir fátækan bróður sinn, og var yfir höfuð bjargvættur þeirra, sem hann lagði sérstaka rækt við að hjálpa. Hann var hreppstjóri í Hraunhrepp mikið af þeim tíma, sem hann var í Hítardal; mátti þá svo heita, að ekkert ráð væri svo ráðið um vest- anverðar Mýrar, að ekki væri leitað atkvæðis hans — Jafnvel utanhéraðsmenn leituðu ráða til hans í vandamálum, og reyndist öllum vel það sem hann lagði til. Hann var meðráðamaður margra ekkna og fjárhaldsmaður ómyndugra. Flestum varð um megn að etja kappi við hann, og reyndu þá, eins og vanalegt er, að hefna sín með ýmsu lasti, en hann lét slíkt ekki á sér festa; hann gerdi það sem honum sýndist, en lét þá tala það sem þeir vildu. Hversdagslega var hann glaður og skemmtinn, en einarður og skorin- orður við hvern sem í hlut átti, ef á milli bar. Síð- ustu ár sín var hann orðinn hrumur, en hélt þó heyrn og sjón nokkurn veginn. — Hann var jarðað- ur að Snóksdal 27. febr. þ. á. — Að öllu samlögðu má telja Kristján sál. meðal hinna merkustu bænda-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.