Þjóðólfur - 29.06.1900, Page 4

Þjóðólfur - 29.06.1900, Page 4
120 hin nýja valtýska náðarsól eigi enn eptir að skína á ritstj. stj.málgagnsins, og þá sé gott að hann geti skammtað sér sjáifur launin, sem einn af Islands fjármálastjórum ásamt bændúm!] þá eru það íslenzk- ir bændur og atvinnuveitendur [heyr!] sem verða að afla launa handa þeim [eg held það sé dýrmætt, handa þeirn embættismönnum, sem „sýna að þeir vita, að jafnvel þótt“ fjármálin séu í versta ólagi, þá geti þeir alltaf haft nóg að bíta og brenna] og að það borgar sig bezt að greiða fyrir þeim afla“ [nfl, að brauðbítirnir, embættismennirmr, þekkji sinn vitjunar- tíma, og styðji að því í orði og verki, að öll stjórn fjármála Islands komist úr höndum þessarar ofboð litlu „samkundu", sem enginn veit hvar er]. Öll Isafoldargreinin er jafnviturleg og jafnvel rituð, sem þetta sýnishorn, er hér hefur verið tek- ið með ofurlitlum athugasemdum. Að „ísafold" flytur annað eins erkirugl, sýnir ljósast, hve djúpt og lágt hún er fallin. En sumum þykir sennilegast, að höfuðpaurinn sjálfur hafi skrifað þetta, því að hann sé í seinni tíð orðinn bersýnilega ófær að hugsa og rita og hljóti að vera orðinn eitthvað bilaður í höfðinu. Og eru allar líkur fyrir, að það álit manna hafi við góð rök að styðjast. £ptlrmseli, Hinn x. þ. m. (júní) andaðist hjá syni sínum að Stóru-Skógum í Stafholtstungum Sigrídur Guðmunds- dóttir frá Grenjum og Sigríðar Asmundardóttur hrepp- stjóra frá Elínarhöfða Jörgenssonar Hanssonar Klingenbergs hins auðga á Krossi á Akranesi (-þ1785) Jörgenssonar; sá Jörgen var ættaður frá Hamborg. Sigríður var fædd á Grenjum 1829 og ólst þar upp hjá móður sinni,, þar til hún giptist Guðmundi bónda á Litla-Fjalli, Ásbjarnarsyni frá Melshúsum á Skaga. Pau eignuðuðust 12 börn, og lifa nú aðeins 4, eitt af þeim er Árni bóndi í Stóru-Skógum. — Sigríður var umhyggjusöm móðir og vel látin af öllum, er hana þekktu; hún var skýr vel og minnug og all- vel fróð í ættum og sögum. Guðmundur, maður Sigríðar lifir enn, og er nú til heimilis í Einarsnesi. ____________ (70- Hinn 8. þ. m. (júní) andaðist að heimili sínu Stórahofi í Gnúpverjahrepp Vigfús Pálsson, er þar bjó lengi, en var hættur að búa fyrir nokkrum árum. Vigfús sál. var á 80. aldursári, er hann lézt. Hafði verið hinn mesti atorkumaður, bætti mjög jörð sína og bjó mesta sómabúi. Hreppstjóri varhann um nokkur ár, og hinn röggsamasti í allri sveitarstjórn. Honum var jafnan viðbrugðið fyrir ráðdeild og hrein- lyndi, kjark og skörungskap, og var jafnan í miklu áliti. Allan síðari hluta sinnar var hann þjáður af meinsemd (krabbameini í kinninni), þjáðist mjög mikið og lengi; en bar það með stakri karlmennsku. Kona Vigfúsar var Katrín Þorsteinsdóttir frá Vindási, sem enn lifir. Þau áttu 2 dætur, Vilborgu kona Sigfúsar Sigurðssonar á Stórahofi, og Sigríði konu Þorsteins Jónssonar á Húsatóptum. (V.). Leiðrétting. I eptirmælum Ofeigs heit. í Fjalli í 28. tölubl. Þjóðólfs hafa fallið úr nokkrar línur, og á þar að standa: „En fyrri kona Ofeigs Vig- fússonar ríka og móðir Ofeigs yngra var Ingun Eiríksdóttir dannebrogsmanns á Reykjum á Skeiðum Vigfússonar og síðari konu hans Guðrúnar Kolbeins- dóttur prests í Miðdal Þorsteinssonar. — Var Ingun heitin eptir fyrri konu Eiríks Ingunni Eiríksdóttur frá Bolholti Jónssonar o. s. frv., eins og sagt er í eptirmælunum. JMT Þjóðólfur kemur tvisvar í næstu viku, þriðjudagr og föstudag. Látúnsbúin svipa með nafninu „JónSvein- bjömsson" á stéttinni hefur tapazt hér í bænum, Finnandi skili svipunni annaðhvoit til Jóns Magn- ússonar kaupm. á Laugaveg eða á skrifstofu Þjóðólfs. sem aftappað er hér, seljum við undirritaðir fyrst um sinn: í smákaupum \2 fl. á 1 2 aura, ístærri —'\2 fl. á 1 1 aura. Reykjavík ‘9/6—1900. J. G. Halberg. W. Ó. Breiðfjörð. Th. Thorsteinsson, IIHIHIIHIIIIIl ■niimmniinmmm mhiiii Glasgow-prentsmiðjan tekur til prentunar fyrir mjög væga borgun, allskonar blöð, og smáritlinga, einnig bæk- ur, reikningaeyðublöð, kvittanir, bréfhausa, grafskriptir, erfiljóð, markaskrár o. m. fl. Með því að prentsmiðjan hefur mik- ið og margbreytt letur, þar á meðal mikið af skrautletri, getur hún leyst prentunina jafn smekklegaaf hendi sem aðrar prentsmiðjur hér í bænum, og auk þess töluvert ódýrar. I»eir, sem þurfa að láta prenta ýmislegt smávegis, geta hvergi komizt að betri kjörum en í GLASGOW-PRENTSMIÐJUNNI. Yín, vindlar og reyktóbak frá Kjœr & Soxnmerfeldt fæst hjá Steingrími Johnsen. Ætíð nægar birgöir. Chartreuse Og Benediktiner púlver á 1 krónu hver pakki. Ur þessu má búa til »likör« dldungis samkynja hinum ekta. Bröd r. Berg. Amagertorv 14. Köbenhavn. Saltfiskur vel verkaður, stór og smár, og ýsa, verður keyptur í sumar fyrir þeninga við verzlunina „EDINBORG" í Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík. Ásgeir Sigurðsson. Smátt te á 1 krónu 60 aura pundið. Þetta smágerða te, sem hr. Bernhard Phil- ipsen hefur haft til sölu meir en 20 ár, er eingöngu sald úr hinum fínustu tetegundum og fæst nú jafn á-gœtlega gott hjá Brödr. Berg. Amagertorv 14. Köbenhavn. Kristján Þorgrímsson s e 1 u r: ELDAVÉLAR og OFNA frá beztu verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups- verð, að viðbættri fragt. Þeir, sem vilja panta þessar vörur, þurfa ekki að borga þær fyrirfram, aðeins lítinn hluta til tryggingar því, að þær verði keyptar, þegar þær koma. 0 11 *»» 0 SUNDMAGAR vel verkaðir verða keyptir fyrir þeninga við verzl. „EDINBORG" í Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík. ÁSGEIR SIG URÐSSON. VOTTORÐ. Eg undirrituð hef mörg ár þjáðst af móðursýki, hjartslætti og þar af leiðandi taugaveiklun. Hef eg leitað margra lækna, an árangurslaust. Loksins kom mér til hug- er að reyna Kína-lífs-elixír frá Waldemar Petersen í Frederikshavn, og er eg hafði brúk- að úr 2 flöskum, fann eg stóran bata. Þúfu í Ölfusi. Ólafía Guðniundsdóttir. KINA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum katip- mönnum á íslandi. , Til þess að vera vissir um, að fá hinn elcta. Kína-lífs-elixír, eru kanpendur beðnir að líta vel V.P. eptir því, að—þý" standi á flöskunum I grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínverji með glas I hendi, og firma- nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Glasgow-prentsmiðjan

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.