Þjóðólfur - 11.09.1900, Side 4

Þjóðólfur - 11.09.1900, Side 4
i68 hennar vísu, auðsjáanlega í þeirri meiningu einni að kasta skarni á hr. bankastjóra Tryggva Gunn- arsson, eins og að undan förnu, og leitast við að gera hans framkomu miður heiðarlega fyrir aug- um kjósenda bæjarins, þá get eg ekki stillt roig um, að leiða sannleikann £ ljós, og segja frá at- burði þeim, er þessi Saga mun vera spunnin út af. Eptir miðjan ágúst mætti eg kjósanda, er eg þekkti, í biðstofu Landsbankans — að banka- stjóranum öldungis óafvitandi ogfjarverandi, og spyr hann, hvern hann ætli að kjósa á þing, „Jón“, segir hann, og er þó Tryggvi kunningi minn“. „Spyr eg þá kjósandann, hvaða þingmanns- hæfileika hr. Jón Jensson hafi í hans augum fram yfir Tryggva Gunnarsson", Gat þá — að mínu áliti — kjósandinn engu svarað, enda beið eg ekki og gekk út þá þegar. Það sem stendur 1 „ísafold.um þetta framyfir það, sem eg hér hef sagt lýsi ^helber ósann- indi. I sambandi við þetta vil eg geta þess, að eg mun síðar heilsa „Isafold" fyrir framkomu hennar við mig, sem ekki er mér þess meðvitandi, að hafi gert henni neitt til miskahingað til og enn- fremur vil eg geta þess, að eg er öldungis sam- dóma þeirri skoðun, að á „Isafold" skarti bezt ósannindi ein og öfgar, og sú skoðun hefir greini- legast komið 1 ljós hjá fréttasnötum blaðsins, hvort sem þeir nú heíta Pétur, Helgi, Páli eða Jón, er mest braska við að prýða Foldina með ósönnum fréttaburði. Reykjavík 10. sept. 1900. Gísli Þorbjarnarson. Um Vatnsfjörð eru í kjöri séra Páll prófastur Óiafsson á Prestbakka; séra Sigurður próf. Jensson í Flatey og séra Oddgeir Gudmund- sen í Vestmannaeyjum. Auk þeirra sóttu: séra Bjarni Símonarson á Brjánslæk, séra Björn Jóns- son á Miklabæ, séra Eyjólfur Jónsson í Arnesi, séra Guðm. Guðmundsson í Gufudal, séra Páll Stephensen á Melgraseyri, séra Sigurður Stefánsson í Vigur og séra Þorsteinn Benediktsson í Bjamanesi. Um Landprestakall £ Rangárvalla- sýslu eru í kjöri: séra Óleigur Vigfússon í Gutt- ormshaga, Ólafur Briem kandídat (frá Stóranúpi) og séra Richard Torfason á Rafnseyri. Aðrir sóttu ekki. Um Hvamm 1 Laxárdal er að eins 1 kjöri: séra Björn L. Blöndal að Hofi<á Skaga- strönd. Hinn, sem sótti, séra Arnór Ámason í Felli, tók umsókn sína aptur. Nýr sigur. Nú er komin fregn hingað í dagum kosn- inguna í ísafjarðarsýslu: Kosnir voru: Hannes Hafsteinn og Skúli Thoroddsen. Séra Sigurður Stefáns- son fallinn. Fundur mjög fjölsóttur. Um at- kvæðafjölda enn ófrétt. Er nú hniginn að velli annar máttarstólpi Valtýskunnar, þar sem Vigurklerkurinn var. Hver skyldi verða hinn þriðji ? Reykvíkingar ættu að muna eptir því á morgun, að lofa þeiin þriðja að fylgjast með stallbræðrum sínum. Stappið i ,tsafold‘. í magnlausri gremju yfir þvl, að allur þorri fundarmanna stappaði á þingmálafundinum hér um daginn, þá er Björn ritstj. talaði, staðhæfir blað hans, að það hafi ver- ið samantekið ráð þeirra Tryggva manna, sem auð- vitað er helber ósannindi og uppspuni. En sann- leikurinn er, að það greip menn ósjálfrátt — eins og opt ber við á fundum — þessi vanþóknunar- yfirlýsing yfir óskammfeilni þeirri, er B. J. dirfð- ist að bera á borð á opinberum fundi. Það var hún, sem mönnum blöskraði svo, að þeir gátu ekki kyrrir setið. ísafold hefur svo opt stappað framan í sannleikann, ekkert gert annað en stapp- að móti góðum og gildum rökum, að ritstj. henn- ar hefur gott af því að stappað sé á almennum íundi að ósannindafleipri hans, sem ekki var á neinu viti byggt. Hann getur naumast tekið til þess. Og það er ekki til neins fyrir hann að ætla sér að svala gremju sinni með því, að eigna háreysti þessa Tryggva bankastjóra eða hinum öðrum vinum(l) sínum, sem ísafold telur frum- kvöðla að þessu, því að slíku bulli trúir enginn maður. Fundarmaður. Þingmálafundur verður haldinn hér í Iðnaðarmannahúsinu í kveld kl. 8'A Hafa bæði þingmannaefnin boðað til hans. Hafði Jón loks- ins unnizt til að vera með Tryggva á fundarboð- inu, þó allnauðugur. Hann hefur ekki svo mikla ánægju af þessum fundahöldum. Vonandi er, að kjósendur fjölmenni á fund þennan, og láti ekki atkvæðasmala Jóns fleka sig þar í laumi. Eittlivert flugrit eða kosningableðil kvað „Isafold" ætla að senda út í fyrra málið fyr- ir kjörfundinn, að því er heyrzt hefur. Það má geta nærri, hve samvizkusamlega hann verður úr garði gerður. En auðvitað dettur engum í hug, að taka nokkurt mark á því, sem undan Isa- foldar rif jum • er runnið við þessa kosningu, eða láta það ráða atkvæði sínu. TEINOLÍA (Royal Daylight) fæst í verzlun Sturlu Jónssonar Hvað er Gramophon? Gramophon er vél sem syngur, spilar, talar og yfir höfuð getur haft allt mögulegt eptir, alveg eins og Fonograf, en Gramophon er mikið fullkomnari vél og heyrist allt í hon- um miklu greinilegra en í Fonograf. Með Gramophon eru brúkaðar plötur en ekki valsar. Gramophon kostar 100 kr. og hver plata 2,25 aura, sem er sama útsöluverð og hann kostar alstaðar um allan heim. Einkaútsölu fyrir Island hefur Leonh Tangs verzlun á ísafirði. Allskonar sultutau nýkomið í verzlun Friðriks Jónssonar. Látin er 2. þ. m. að heimili gullsmiðs Benedikts Ásgrfmssonar í Reykjavík, tengdamóðir hans ekkj- an Guöný Guðmundsdóttir, fædd 27. október 1828, gipt 5. nóvember 1847, Gunnari Jónssyni bónda í Eyrarkoti í Vogum í Vatnsleysustrandarhreppi, þar sem þau bjuggu í farsælu hjónabandi til 31. janúar 1899; þeim varð 6 barna auðið, hvar af 3 lifa: 1 son- ur ókvæntur og 2 dætur giptar, báðar í Reykjavík. Guðný sáluga var trúrækin, bjartagóð og góðgerða- söm, sæmdarkona í sinni stöðu og £ alla staði vel látin. x. Bútungur, þurr og vel verkaður og allskonar tros fæst í verzlun STURLU JÓNSSONAR; » i'ilinTiiiiiiiiiiinnminnnnintiiTlj | | Yín, vindlar og reyktóbak frá Kjær & Sommerfeldt fæst hjá Steingrími Johnsen. Ætíð nægar birgðír. Kúmen fest í verzlun Sturlu Jónssonar. Fuglafræ fæst í verzlun STURLU JÓNSSONAR. Rammalistar hvergi eins fallegir og í verzlun Friðriks Jónssonar. UNGUR MAÐUS, sem hefur verið við verzlun, óskar eptir atvinnu við verzlun eða skrif- störf hér í Reykjavík nú þegar, eða við októberbyrj- un. Ritstj. vísar á. Harðfiskur fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Hábær í Holtamannahreppi í Rangár- yallasýslu 5 hundr. að dýrl. er til sölu. Lysthaf- endur snúi sér til Klemens Egilssonar í Minni- Vogum. Álnavöruna er langbezt að kaupa í verzlun Gisla Þorbjarnarsonar. irninnnmnii Kristján Þorgrímsson selur: ELDAVÉLAR og OFNA frá beztu verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups- verð, að viðbættri fragt. Þeir, sem vilj'a panta þessar vörur, þurfa ekki að borga þær fyrirfram, aðeins lítinn hluta til tryggingar því, að þær verði keyptar, þegar þær koma. Ekta anilinlitir P1 3 j p ' fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og f verzlun STURLU JÓNSSONAR Aðalstræti Nr. 14. ■UIIÍUB 1 1 ’-P 1 5 : s • u > í mörg ár hef eg þjáðst mjög af tauga- veiklun og illri meltingu og leitað árangurslaust við því ýmsra ráða. En eptir að eg nú í eitt ár hef neytt hins heimsfræga Kína-lífs-elixírs, sem hr. Waldemar Petersen í Frederikshavn býr til, er mér ánægja að geta vottað, að Kína-lífs-ellxír er hið bezta og öruggasta með- al við allskonar taugaóstyrk og slæmri melt- ingu, og framvegis mun eg taka bitter þenn- an fram yfir alla aðra bittera. Reykjum. Rósa Stefánsdóttir. KÍNA-LIFS-ELIXlRINN fæst hjá flestum kaup- mönnum á íslandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixlr, eru kaupendur beðnir að líta vel V.P. eptir því, að-þA standi á flöskunum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínveiji með glas 1 hendi, og firma- nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn. Þ EIR sem verzla mikið, fá 5% afslátt við verzlun Gisla Þorbjarnarsonar, Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Glasgow-prentsmiðjan

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.