Þjóðólfur - 07.02.1902, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 07.02.1902, Blaðsíða 1
 54. árg Reykjavík, föstudaginn 7. febrúar 1902. M 6 J I i J Lífsábyrgðarfélagið TRYG Tryg'gring'ar h « f u ð s t« 11 1 miljón kr. Sjúkleika- og slysa-ábyrgðarfélagið TRYG Tryggingnrhöfnðs♦«11 100.000 kr. Það tilkynnist hér með, að hr. cand, phil. Einar GunnarSSOn p í Reykjavík er skipaður aðalumboðsmaður vor fyrir suð-vesturhluta íslands. ^ Kaupmannahöfn i. janúar 1901. ► Virðingarfyllst. ^ \ Félagsstjórnin, ^ Hafnarstjórnarliðið á hrakningi. Mótsagnir og markleysur. Fimmenningarnir frægu frá 6. des. eru nú komnir aptur a stúfana í ísa- fold með eitt bréfið enn stílað til »flokks- biæðra« þeirra. Þykjast þeir nú ekki sja annað rað vænna en að »venda« enn einu sinni og hafna loks valtýsk- unni, er þeir héldu fastast við í sendi- bréfinutil ráðherrans. Að þeir nú neyð- ast til að fallast á konungsboðskapinn - rííðherrabúsetu hér á landi — ætti oss heimastjórnarmönnum að þykja gleðilegt, því ag nú mætti vænta, að alhr gætu orðið sammála. En sá er hængur á þessu, að snúningur fimm- menninganna er svo mjög á huldu, með ýmsum smugum og vafningum, er sýna, að þetta er að eins neyðarúrræði fyr- ir þá til að afla sér kosningafylgis í vor, halda að kjósendur glæpist á því að trúa nú enn einu sinni þeim mönn- uni, sein hvað eptir annað hafa brugð- jzt trausti kjósenda sinna og jetið of- | an í sig annan daginn það sem þeir hafo hrækt frá sér hinn. allt eptir at- vikum og vindstöðu. Geta menn bor- ið nokkuð traust til yfirlýsinga slíkra nianna? Nej t þvf fer fjarri. Það kemur annars dálítið undarlega fytir að heyra þetta Hafnarstjórnarlið fylgifiska Valtýs, vera nú að tönnl- ] ast á þeirri heimskulegu fjarstæðu, að allt sé þeim að þakka, í hversu gott h°rf n’álið sé komið, þar sem það er ölhtm mönnum vitanlegt, að þessi flokk- ur hefur verið svo Htilþægur, að hann vildi sætta sig vj0 frumvarpsómynd Valtýs frá 1897. Það seni hann hef- ur dragnazt burt frá því frúmvarpi er eingöngu Qg engum öðrum að þakka en heimastjórnarflokknum, er fyrst lag- færði frv. 1897, svo að það var naun skárra ^99^ 0g þag fi-umv. lagaðist n.ikið 190^ þgtt grundvallaratriðið — Hafnarbúseta ráðgjafans — væri hið sama. Hafnarstjórnarflokkurinn hefur ávallt hrópað,-þá er hann hefur neyðzt til að sinna kröfum heimastjórn- arflokksins: „Þetta er Valtý og okkur að þakka, þetta höfum vér alltaf vilj- að. Þetta skal ni^ heita valtýska, því að meðan nokkur okkar stendur uppi og hvernig sem allt veltist, skulum við aldrei kannast við, að valtýskan sé dauð“. En ]okf. hafa þeir þó samt neyðzt til að sálga henni sjálfir í orði kveðnu eða um stundarsakir nú í ísa- fold I. þ. m. AHt hjal Hafnarstjórnarliðsins um afrek þess 0g Valtýs getur oss heima- stjórnarmönnum legið í léttu rúmi, af pví að vér höfum tiú borið svo mik- inn sigur úr býtum, sem vér gátum frekast vænzt eptir. Vér getum verið harla ve) ánægðir með árangurinn af sendiför Hannesar Hafsteins, er Hafn- arstjórnarflokkurinn fólskaðist mest út af af því að hann sá, aðhúngatorð- ið hættuleg fyrir gengi Vaitýs og fram- gang valtýska frumvarpsins. Stjórnin atti ekki að fá að vita neitt um hinn sanna vilja þjóðarinnar, nema þetta lít- ilræði, sem að því var vikið í ávarpi efri deildar, er eingöngn var sett inn til að fá ávarpið samþykkt einnig í neðri deild, en alls ekki af því, að Hafnarstjórnarflokkurinn vildi nokkuð á það minnast. Valtýr átti að vera einn urn hituna að fræða stjórnina, eins og fyrri. En í þetta skipti brást sú boga- listin. „H égómamálið“. Það er annars nógu gaman að heyra, hvað aðalstólpi valtýskunnar í sunlar og formaður(?) 5 mannaráðsins, lögfræð- ingurinn Kristján Jónsson, sagði í sum- ar um ráðherrabúsetu hér á landi. Hann segir svo (Alþt. 1901 A bls. 90): »—— Búseta ráðgjafa hér er ómógu- leg, nema því að eins að jarl eða ann- arumboðsmaður konungs, ábyrgðarlaus fyrir öðrum en konungi, vetði þá hér á landi líka og standi í broddi fyrir stjórn landsins. Búseta ráðgjafa hér er því að eins möguleg, að skipaður sé um leið landstjóri (eða vísikonungur) hér á landi —------. Eg held að það sé hreint og bemt hégómamál ad vera að berjast fyrir búsetu ráðgjafans hér á landi o. s. frv«. Það er því gleðilegt, a > þessi lög- vitringur hefur nú fengið betri þekk- ingu síðan í sumar. H r i 11 g: s 11 n 11 i n g 11 r I s a f 01 <1 a r. Það er naumast ómaksins vert að minnast á það, sem ísafold sjálf eða ritstjóri. hennar hefur lagt til þessara mála síðan í sumar, því að það er svo mikillhaugavaðall, byggður á fullkomnu skilningsleysi í pólitík, sem ritstj. henn- ar er svo orðlagður fyrir, að það er hreinasti óþarfi að færa sönnur fyrir því. En örfá dæmi virðist þó rétt að taka: Þá er ritstj. komst á snoðir um, að stjórnin mundi vilja sinna 10 manna- frumvarpinu eða aðalatriði þess — ráð- herrabúsetu hér á landi,— eins og nú er komið á daginn, brást hann mjög reiðurvið, kallaðiþetta »uppsuðu« úr 10 mannafrumvarpinu »aflagaða útgáfu« af því »annað og verra en það, enn verra og óaðgengilegra fyrir oss« (sbr. ísafold 19. okt. f. á.), Og svo held- ur ritstjórinn áfram í þessu sama blaði 1. bls. 2. dálki: »Þeir vilja lofa oss að'hafa svonefnd- an Islandsráðgjafa búsettan hér, og lofa oss að laitna homnn og gjalda honum eptirlaun og reisa handa hon- um veglegan bústað hér og kosta skrif- stofuhald handa konum hcr. Þetta vilja þeir allt lofa oss og Lyfa — leyfa oss að lctta þeim kostnaði 'öllum af sér, af ríkissjóði, þótt tekið hafi hann að sér með stöcful'ögunum«. Og þetta er nú maðurinn, sem nú er að telja fólki trú um, að honumog flokksmönnum hans sé full alvara að fá ráðherra búsettan hér. Svo kemur sendibréfið þeirra 5 menn- inganna til ráðherrans 6. des., þar sem þeir halda öðrum þræði í valtýskuna, er sé »oss hagfelldust eptir atvikum«. Ráðgjafabúsetu hér fordæma þeir. Hún getur ekki komið til greina, kostnað- ar vegna Og annara annmarka, og þó þykjast þeir vera að biðja um land stjóra, sem aðalkröfu(l). » Vér þekkjum enga tiltcekilega milli- leið milli þessarar tvennskonar tilhög- unar á stjórnarýyrirkomulagivm (þ. e. landstjóra eða valtýsku), segja menn- irnir í þessu merka bréfi. Og2i.des. hnykkir ritstj. sjálfur á naglanum á þessa leið (ísafold 80. tölubl. 1. bls. 3. dálki efst): »Nú höldum vér merkinu svo hátt, sem það hefur nokkurntíma komizt í allri stjórnarbaráttu íslendinga fullan helming aldar. En hÖIdlim jöfnum höndum fast fram frumvarpi þingsins frá í sumar, ef hitt fæst ekki, þ. e. skýlaus heimastjórn, svo sem því fyrirkomulagi, er hennigengur næst[!!J en andæfum kákinu eptir mætti, tíu- mannafrumvarpinu og allri uppsuðu úr þvi« [nfl. ráðherrabúsetu hérj. Og svo bætir ritstj. við, svo feiki- lega hróðugur yfir allri frammistöðu sinni í þarfir valtýskunnar: „ Mundi nú ekki þurfa frámunalegan aulaskap til að hrópa þá að valtýskan sé dauð — eða þá dæmafáa tröllatrú á aulaskap lesenda sinna". Þetta er skörulega og fallega mælt allt saman, talað frá hjarta mannsins með innilegri sannfæringu. Geta menn nú haft mikla trú á því, að þessi sami herra mánuði síðar sé í alvöru að jarð- syngjn hina elskulegu valtýsku sína, eins og hann þykist gera f bréfinu til flokksbræðra sinna 1. þ. m. Það má vera mikill einfeldningur sem trúir því. Nei, valtýskan á að sofa hjá þeim fram yfir næstu kosningar, og svo ætla þeir að reyna að vekja hana til lífsins, ei unnt er. Til þess eru refarnir skornir. Eða lítum á Skúla, er tekur konungs- boðskapnum með mestu ólund og kall- ar hann „mikil vonbrigði" m. fl. í blaði sínu 28. f. m. en skrifar þó scima dag- inn(i) undir bréfið í Kafold, þar sem hann fellst á stjórnartilboðið — ráð- herrabúsetu hér á landi — en hafnar valtýskunni. Er það ekki ágætt? Smug'au. En allt er nú samt með ráðum gert. Þessum herrum hefur ,þótt vissara að orða bréfið svo, að þeir gætu smogið frá loforðinu, er á þing kæmi, og ef þeir sæju sér það fært. Það er auð- séð, með hve mikilli ólund og ólyst þeir fallast á „prógram" vor heima- stjórnarmanna. Þeir segja meðal ann- ars, að „ verði búsetu ráðgjafans hér svo fyrir komið, eptir hinu væntanlega frumvarpi stjórnarinnar, að hagsmun- um vorum í Kaupmannahöfn verði fyllilega borgið, viljum vér, sem ritum undir brcf fiXX-A fremur hallast að þessu frumvarpi« o. s. frv. með ýmsum ef- um, sem eru svo handhæg til að smjúga gegnum síðar meir, því að ávallt má sundra öllu með því að segja, að frum- varp stjórnarinnar sé svo og svo gall- að, að valtýskan sé miklu betri. Og þá er tækifæri til að halda gjundroð- anum og illdeilunum áfram, og ef til vill að smella valtýskunni gegnum þingið, hafandi fyrirheit um staðfestingu frá stjórninni. Þess vegna ríður kjósendum á því nú í vor öllu framar að hafa vaðið fyrir neðan sig og hafna undantekn- ingarlaust 'ól/um, sem samþykktu Val- týsfrumvarþið næstl. sumar, jafnvel þott þeir lofi öllu fögru, því að það er vissara sem vissara er og engu spillt, þótt þeir séu látnir sitja heima nú. Þlnginu er bezt farið svo, að sem allra fæstir þessara manna komi þangað aptur. Þetta verða kjósendur að hafa hugfast, og velja eingöngu þá menn er til heimastjórnarflokksins heyra, og eindregið fylgja þvf »prógrammi«, að fá ráðhcrrann búsettan hér á landi, fa þannig æztu stjórnina inn í landið — menn, sem aldrei hafa flækzt í neti Valtýs eða verið bendlaðir við hina óhappasælu „pólitík" hans. En það er ekki eingöngu stjórnar- skrármálið, sem taka verður tillit til við kosningarnar í vor, heldur einnig bankamálið. Þar eru Valtýingar sjálf- um sér samkvæmir að vilja leggja niður þá peningastofnun, er landið á, en selja oss útlendu auðvaldi f hendur. Það er allt á sömu bókina lært hjá þeim. Þess vegna er lífs nauðsynlegt að kjósendum skiljist, hvílíkt voðamál bankamálið er, og hversu áríðandi er að kjósa þá menn eina, er ekki vilja drepa landsbankann heldur efla hann. Vetður nánar vikið að þessu alvarlega máli síðar. Opt er þörf en nú er nauð- syn. Það hefur aldrei reynt meir á

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.