Þjóðólfur - 10.10.1902, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 10.10.1902, Blaðsíða 1
54. árg. Reykjavík, föstudaginn 10. október 1902. Jfo 41. Bið j ið ætí ð um OTTO M0NSTED'S DANSKA SMJÖRLÍKI, sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör. Yerksmiðjan er liín elzta og- stærsta í Danmörkn, og býr til óefað hina beztn vörn og ódýrnstu í sainanbnrði við græðin. ■c: Fæst hjá kaupmönnum. ^ Útlendar fréttir. Kaupmannaliöfn 27. september. Búaforingjarnir (Botha, de Wet og Delarey) eru nú farnir burtu af Englandi yfir til Hollands. Með því að þeir fengu ekkert fullnægjandi svar hjá Chamberlain, hafa þeir nú afráðið að snúa ser í aðra átt. Þeir hafa sent út áskorun til Ev- rópu og Ameríku um að hlaupa nú und- ir bagga með Búum með fjárframlögum. Eymdina þar í landi segja þeir meiri en með orðum verði lýst. »Hús vor og allt iausafé er brennt eða eytt á annan hátt, ávaxtatrén höggvin niður, mylnurnar skemmdar og öll alidýr annaðhvort drep- in eða flutt á brott. Vér hötum ekkert eptir, landið er auðn ein. Stríðið hefur einnig útheimt margar slátrunarfórnir, og um allt landið kveður við eymdaróp ekkna og munaðarlausra barna«. Styrkur sá (3 milj. pd. sterl.) sem Englendingar veittu Búum við lok ófriðarins, nær því harla skammt. En hálfóviðkunnanlegt er það fyrir Englendinga, að leita þurfi til ann- ara til þess að bæta úr því tjóni, sem hlotizt hefur af ófriði, er þeir hafa varið svo hundruðum miljóna punda skiptir til að heyja. Auðvitað leggja Englendingar sjálfir til drjúgan skerf, ef þeir þá ekki skyldu firtast af því að foringjarnir sendu áskorunina út frá Amsterdam, en ekki meðan þeir voru á Englandi. Jarðarför Henríettu Belgíudrottn- ingar fór fram 22. þ. m. Einungis kon- ungur og nánustu ættmenn voru viðstadd- ir, en aptur á móti engir fufltrúar frá öðrum ríkjum, eins og vandi er við slík tækifæri. — Meðan drottning var á lík- börunum kom fyrir atvik, sem vakið hef- ur töluvert hneyksli. Eins og áður er getið dó drottningin skyndilega og voru engir ættmenn hennar nærstaddir í Spa, þar sem hún lézt. Þá er þeir fengu fregn- ina flýttu þeir sér að koma, og meðal þeirra var Stefanía dóttir hennar, er forð- um var gipt Rudolf ríkiserfingja í Austur- ríki. En þá er hún var nýkomin og hafði kropið niður við banabeð móður sinnar, kom Leopold konungur. En er hann fékk að vita, að Stefanía dóttir hans væri fyrir, neitaði hann að fara inn, fyr en hún væri farin í burtu. Hún varð auðvitað að gera það. Orsökin til þessa var sú, að Stefanía prinsessa hafði eptir dauða Rudolfs prins giptzt aðalsmanni einum, Lonyay greifa, og sleppt þar með prinsessutigninni. Þetta þótti konungi svo mikil niðurlæging fyrir dóttur sína, að hann vildi ekki leyfa henni að vera í návist sinni eitt augnablik. Hún fók auðvitað heldur ekki þátt 1 jarðar- förinni. Bandarlkjastjórn hefur sent stórveldun- um, sem skrifuðu undir Berlfnarsáttmál- ann 1878, tilkynningu um það, að Gyð- ingar sættu ranglátri meðferð í Rúmeníu, þótt svo væri til orða tekið í sáttmálan- um, að fullkomið trúarbragðafrelsi skyldi vera þar 1 landi. Þetta ákvæði hefur um langan tíma verið brotið. Gyðingar þar 1 landi eru um 400,000. Þeir eru útilok- aðir frá öllum embættum, og þeim yfir höfuð bægt frá allri æðri menntun. Einn- ig eru ýras höpt lögð á atvinnufrelsi þeirra. N'ú er eptir að vita, hvort stór- veldin skeyta þessu og hlutast nokkuð til um mál Gyðinga í Rúmeníu. Austan til á Sikiley, í héruðunum Cat- anfa og Modica hefur geisað hvirfil- bylur, er gert hefur allmikið tjón á hús- um og járnbrautum. Einnig hafa nokkr- ir menn farizt. Eldgos hafa komið upp á tveim stöðum í Evliaeyjunum og menn eru jafnvel smeikir við, að Etna fari að láta bæra á sér. Jarðskjálptar hafa verið allmiklir í Turkestan 1 lok ágústmánaðar og byrj- un septembermánaðar. Fjöldi manna í mörgum þorpum þar beið bana. Markverður forngripur hefur fund- izt fyrir skömmu hér í Danmörku (í Odsher- red). Það er mynd af sólinni 1 vagni með hesti fyrir. Myndin er öll úr bronze, en sólin er lögð gulli öðrumegin. Af skrauti því, sem er á sólarmyndinni ráða menn, að myndin muni vera gerð hér um bil 1000 árum f. Kr., og því um 3000 ára gömul. Til viðbótar skal þesss getið, að áð- ur en »Laura« fór frá Leith fréttist, að frakkneski rithöfundurinn Emile Zola hefði látizt 29. f. m., hafði kafnað í gas- lopti, sem opt hefur orðið mörgum að bana, þá er það gleymist að skrúfa fyrir gasið, áður en menn fara að sofa. Zola var 62 ára gamall, og frægastur skáld- sagnahöfundur Frakka síðan Victor Hugo leið. Síðasta skáldsaga Zola, semveriðvar að gefa út, er hann lézt, heitir »Verité« (»Sannleikurinn«) Og er skáldleg frásaga um Dreyfusmálið. Alexander Kjelland, sem lengi hefur ver- ið borgmeistari í Stafangri, er orðinn amt- maður í Romsdalsamti. ísland. Eptir K. A. Benediktsson. II. (Síðari kafli). Til þess að ísland komist inn á braut framfara og velmegunar, þá þarf þjóðin að umskapast. Hún þarf að menntast, og nýr hugsunarháttur þarf að festa rætur hjá henni, vaxa upp og bera ávexti. Það er svo sem ekki mót von, þó þjóðin sé þröng-( sýn og hægfara. Orsakirnar finnast á hverri blaðsíðu í sögu hennar. Engu síður er til gull í þjóðinni eins og landinu, og hún á fullt eins mikla hæfileika fólgna í sér, eins og nokkur þjóð í heimi. — Fyrir breyt- ingu á hugsunarhætti þjóðarinnar verða einstaklingarnirað gangast. Þeir verða að gera það með menntun, og sýnilegum og áþreitanlegum dæmum í verkfræði oghag- nýtni landsins. Það þarf að fá meira starf- svið handa þjóðinni, meiri starfslaun, skemmtilegri vinnuaðferð, og notkun verk- véla, og umfram allt meiri ánægju og trú á landinu og sjálfri sér. Það er lffsspurs- mál, að lækna ótrúna og vonleysið hjá öll- um þjóðum, er þjást af þeim sjúkdómi.— Til að byrja á stórum fyrirtækjum þarf ísland að fá sér peninga, og þá má til að fá í byrjuninni. Eg get ekki séð nokkuð á móti því, að ísland fái sér starfsfé sem önnur lönd. Ef allt fer eins illa og það getur farið, þá yrði landið gjaldþrota. Þá er þó tilraunin að bjarga sér, til í sögunni, og allt er betra en deyja ráðalaus. En eg er viss um, að slíkt kæmi ekki fyrir. Is- lendingar eru eins góðir búmenn og aðr- ir, þegar þeir eru búnir að læra búskapar- lagið af nágrönnum sínum. Svo mundu þeir reynast í þessu máli. En sé þeim sem þjóð virkilega ómögulegt að lifa upp á sínar eigin spýtur, þá er bezt að fá að vita það sem allra fyrst, því þá verður þjóðin ómöguleg sem þjóð, og þá er bezt að hún hverfi sem allra fyrst inn í aðrar þjóðir. En slíkt eru fjarstæður sem engri átt ná. ísland ætti að taka Nýja Sjálands stjórn- arfarið sér til fyrirmyndar, að svo miklu leyti, sem það getur átt við á íslandi. Næst þvf verklega þarf Island að efla peninga- magn í landinu og bæta verzlunarviðskipt- in. Það þarf að láta heimsmarkaðinn taka meira tillit til sín en hann hefur gert hing- að til. Island þarf að koma upp öflugu bankafyrirkomulagi, oglofaöllum peninga- verzlurum að hafa frjálsan aðgang að pen- ingaverzlun. Með lögum og stjórnmennsku ætti það að geta tryggt landsbúum holl peningaviðskipti og peningamönnum sæmi- lega arðberandi viðskipti. Sömuleiðis ætti landið að eiga nægilega stór ogöfluglífs- ábyrgðarfélög fyrir þjóðina, með aðgengi- legum kjörum. Það ætti að koma á fót brunabótafélögum fyrir alla í landinu. og útlánsfélögum, er lána peninga út á hús og lóðir í bæjum og kaupstöðum, er gerði viðskiptin auðveldari og fljótari. Þessi fé- lög heldu peningunum í landinu, og gæfu mörgu fólki atvinnu, sem vel yrði þegin. I.andið þyrfti að efla landbúnað og sjá- arútgerð á allar lundir. Koma upp sýn- ingum og veita verðlaun þeim sem bezt gerðu. Það er að segja landsstjórnin þarf að búa þjððbúinu og efla einstaklinginn, í staðinn fyrir þann öfuga landsstjórnarbún- að, að láta einstaklinginn búa fyrir lands- sjóð og embættismenn. Slíkt athæfi er langt á eptir þessum tíma. Landsstjórntn ætti að gera aðskilnað á ríki og kirkju sem allra fyrst, — fækka prestum en fjölga læknum, — afnema að mestu eða öllu sveitarútsvörin, sem eru argasta hneyksli þessa tíma. Aptur ætti landssjóður í sambandi við kaupstaði og sveitirað komaupp munaðarleysingja-heim- ilum, — afnema sem allra mest af lands- sjóðs bitlingum, og einkanlega skáldastyrk, sem er hróplegt hneyksli, og engu ærlegu skáldi samboðinn (Um það skrifa eg síðar). Um samgöngur innanlands og utan þurfa Islendingar að breyta, auka vegi og bæta innanlands, en fá tfðari of fljótari ferðir á milli útlanda,ogkringum landið. Sömuleiðis að koma upp fregnsambandi við umheim- inn hið allra bráðasta. Af líkum að ráða, er firðboða aðferð signor Marconi sú lík- legasta, sem ísland gæti tekið upp um þess- ar mundir. Að öllu þessu þarf þjóðin að flýta sér, ef hún ætlar ekki að deyja og hverfa út af þjóðtölulistanum. Verklega þekkingin þatf að ganga á undan öllu, og ætti Is- land að fá hana sem mest frá Ameríku. Það er auðveldast. Hún er fullkomnust og mest til þar. Þar eiga íslendingar nokkurskonar nýlendu. Það væri hollasta menningarstefnan, sem Islandi gæti hlotn- azt, ef sú stefna og löngun kæmist inn hjá þjóðinni, að ungir menn færu til Ame- ríku 2—6 ár, og lærðu þar verkfræði og þessa tíma búverk, flyttu þá þekkingu heim til ættjarðarinnar, og létu hana njóta ávaxt- anna af lærdómi sínum. En til þess þarf hugsunarhátturinn að breytast bæði austan hafs og vestan. Austur-íslendingar skoða oss hér langt fyrir neðan sig, skoða oss jafnvel fyrirlitlega og einskis nýta, en standa oss þó hvergi á sporði, ef til þrautarætti að leika í þessa tíma þekkingu. Við er- um komnir fram úr þeim, þó þeir geti ekki viðurkennt það. Á hinn bóginn hefur Island fengið hnútur frá sumum' og jafn- vel álas, héðan að vestan. Þess vegna er samvinna engin á meðal þjóðflokkanna. Enda passa Austmenn sig með það að láta oss ekki offitna af vinskap sínum og bróð- urlegum atlotum. Það er því ekki árenni- legt fyrir mann héðan að vestan, að rétta föðurlandinu hjálparhönd, hversu vel sem hann væri fær til þess, og langaði til að gera það. Samt eru margir góðir dreng- ir hér, sem unna ættlandi sínu af alhug og einlægni, og vildu fegnir verja kröpt- um sínum í þjónustu þess, ef nokkuru tauti væri hægt að koma á við málspartana.— Stjórnin á íslandi gerir ekkert til að laða að sér fólk héðan að vestan. Það er ekki svo mikið, að hún komi því til leiðar við fólksflutningafélögin, að menn héðan geti komizt til íslands fyrir sama fargjald og hingað. Það er henni auðvelt, og mundi leiða til mikils, ef hún gerði það. Og það mundi verða öflugt spor 1 þá átt, að Is- lendingar hyrfu heim aptur, þegar þeir væru búnir að læra hér verkfræði og iðnað. Þegar Island væri komið í líkt horf og hér er bent á, þá er það ekki ólfklegt, að um innflutninga mætti fara að ræða. Sú stefna rlkir nú meðal mestu framfaraþjóð- anna, að undirrót framfara og auðsæld- ar sé fólksfjöldinn og innflutningar. Það er nóg landrými á Islandi, og kæmi þar fram námavinna — sem kemur fyr eða sfð- ar — þá geta fleiri miljónir manna lifað á íslandi. Það er engum efa undirorpið, að fá mætti þá fjölda fólks að flytjaþangað. Og ekki mundi skörpum og duglegum inn- flutninga agentum í Amerlku blæða það 1 augum, að fá nokkra tugi þúsunda til að flytja til Islands úr Norðurálfunni og víðar. Þegar þjóðin þar væri komin inn á sömu braut og aðrar þjóðir, er standa í þessa tíma sambandi við menningarstrauminn, þá yrðu innflutningar til fslands ekki ein-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.