Þjóðólfur - 10.08.1907, Blaðsíða 2
134
í>JÓÐOLFUR.
hagi og Ágúst Helgason Birtingaholti.
Lektor Þórhallur Bjarnarson fékk prófess-
orsnafnbót.
Sýslufulltrúar þeir, er voru með kon-
ungssveitinni: Eggert Benediktsson í
Laugardæium og Þorsteinn Thorarensen
á Móeiðarhvoli fengu brjóstnælu úr gulli
með fangamarki konungs. Jón Guð-
mundsson póstur fékk samskonar nælu.
€rlení síraskeyti
til Pjóðólfs frá R. B.
Kaupmannahöfn, 1. ágúst kl. 6 c. h.
Kórea.
Stjórnin í Japan hefur úrskurðað, að
rofinn skuli allur her í Kóreu.
Óeirðir í Marokkó.
Frá Tanger er símað, að miklar óeirðir
séu í Casablanca. Mælt er að 8 Norð-
urálfumenn hafi verið myrtir. Frakkar
hafa sent þangað herskip.
Millilandanefndin.
Dönsk blöð láta vel yfir skipun milli-
landanefndarinnar.
Kaupm.höfn 4. ágúsl.
Olíufélagið í Chicago.
Sambandsdómurinn í Cnicago hefur
dæmt Standardolíu-gróðasamlagið í
29,240,000 dollara sekt fyrir það að
hafa látið greiða sér afslátt af járnbraut-
argjaldi fyrir olíusendingar. Samlagið
áfrýjar dómnum.
Kaupm.höfn 5. ágúst.
Morð í Odessa.
Barangoroff, fyrrum landshöfðingi í
Odessa, myrtur þar á strætum úti með
3 marghleypuskotum. Morðingjarnir fengu
forðað sér undan.
Járnbrautarslys
á Frakklandi. Eimreið hrökk út af braut
og niður í ána Leiru. Þar týndust 50
manns, en 16 stórmeiddust.
Kaupm.höfn 6. ágúst kl. 6.
Keisaramót.
Vilhjálmur keisari og Nikulás keisari
hittust á sjó úti fyrir Swinemiinde 4. á-
gúst. Voru þar sýndar ýmsar heræfing-
ar. Talið er að samfundir þeirra hafi
haft einhverja pólitiska þýðingu. Þeir
höfðu með sér utanríkisráðgjafa sína þá
Biilow og Iswolski.
Óeirðir i Marokkó.
Óeirðirnar í Casablanca (Marokkó) halda
áfram. Frönsk og spænsk herskip hafa
hleypt liði á land og setja vörð um kon-
súlaskrifstofuna. Þau hafa skotið á
Mára-hverfi bæjarins.
Vopn öll tekin af hernum í Kóreu.
Kaupm.hö/n 8. ágúsl kl. 6.
Mörg hundruð manna þarlendra hafa
beðið bana, er skotið var fallbyssum á
Mára-hverfi í Casablanca (Marokkó). Nú
er þar komin á spekt aptur. Víða i
Márokkó er Norðurálfumönnum sýndur
fjandskapur. Frakkastjórn hefur tjáð hin-
um stórveldunum, að hún ætli ásamt
spænsku stjórninni að koma góðri skip-
Un á lögreglu í Casablanca.
Rússakeisari
er kominn í skerjagarðinn við Finnland.
2 hestar
antiað reiðhestur en liinn undir tösku
óskast til leigu í 7 daga ferð strax
eptir helgina.
B. H. Bjarnason
kaupmaður.
Fundizt hafa 4 gullhringir o. fl. Vitja
má til Samúels söðlasm. Ólafssonar.
Verzlun j3jörri5 Kristjárissonar
hetur nú aptur fengið nýjar birgðir af hinum alþekktu góðu
málningarvörum.
Nýkomið með sjs „Vesta“
Mikið úrval af bláum og röndóttum
Peysum,
Fatatau úr góðu, sterku Cheviot etc.
Nopmalföt úr a1u 11.
Plantaðores og giðir Ijamborgar-vinílar
ávallt nægar birgðir í
Brauns verzlun .Haiiiborg'
Aðalstræti 9. Talsimi 41.
<Jutsons-ljósið
er heimsins ódýrasta og bezta Ijós.
Á Kitsonslömpunum hafa nj^skeð verið gerðar svo stórkostlegar
endurbætur, að lamparnir nú orðið ekki útheimta aðra eða meiri
pössun, en venjulegir kolagaslampar.
Öllum eldri Kitsons-lömpum má fá breytt með mjög litlum
kostnaði og óþarft að senda þá út.
Hinar nýju endurbætur hafa þegar verið settar í alla lampana, sem
notaðir eru við verzlun undirskrifaðs, svo hver og einn getur með
eigin augum gengið úr skugga um þessar stórvægilegu endurbætur.
Ititsons-lamparnir eru hinir sterkustu og ódýrustu, eins og sjá má
af vottorði hr. Sv. Sigfússonar kaupm. i Þjóðólfi frá Í2. f. m. Að því
er verðið snertir, þá er mönnum innan handar, að bera það saman
við verð keppinautanna.
Kitsons-lamparnir verða til sölu í verzluninni í næsta mán., en fást
10% ódýrari, ef pantaðir eru fyrir fram.
Einkaumboðssala er í
verzl. B. H. Bjarnason.
Asfaltpappi
og allar byggingarvörur, eru langódýrastar í verzlun undirritaðs.
t. d. Asfaltpappi * * rúllan 21 Q al. á 2,45.
Stofuskrár á 70 aur. stk. og annað eptir því.
B. H. Bjarnason.
Mollerups-Motorar
hafa unnið álit alstaðar. — Vélarnar eru smíðaðar úr bezta efni og með
mestu vandvirkni.
Nýjasti og- fullkomnasti frág’ang'ur.
Aðalverksmiðja í Esbjerg í Danmörku. — Útibú á ísaflrði.
Aðalumboðsmaður fyrir Reykjavík og nágrennið er hr. G. Sch. Thor-
steinsson, Peder Skramsgade 17. Kjöbenhavn, og upplýsingar lætur í té
og fyrir pöntunum greiðir Helgi Zoega, Reykjavík.
Repræsentant,
Et stort dansk Manufakturfirma
söger en dygtig, flittig og energisk
Repræsentant til at overtage Agen-
turet for Island mod Provísion. Ved-
kommende maa være nöie kendt
med islandske Forhold og godt ind-
fort hos de islandske Kobmænd.
Billet mrk. »1220« indeholdende Op-
lysninger om tidligere Virksomhed
og Kopi af Anbefalingcr modtager
§ylvester Ilvíd,
Nygade 7, Köbenhavn.
Eigandi og ábyrgðarm.:
Hannes Þorsteinsson.
Prentsmiðjan Gutenlierg.
Bæjarins stærsta, fjölbreyttasta
og ódýrasta lampaúrval er ný-
komið í
verzl. 3. ?. Bjarnasoti.
Kúpplar & g’lös
IiveiKir og allt lömpum tilheyr-
andi, et langódgrasl í verzlun
B. H. Bjarnason.
Christensen & Wedel.
íslenzk umboðsverzlun.
Kaupmannahöfn K.
Símnefni: Wedelclirist.
BARIAKEȤLA.
Kennarastarfið við barnaskólann
á Þingeyri auglýsist hér með til
umsóknar. Árslaun eru kr. 400.
Umsóknir um starfann sendist til
skólanefndarinnar fyrir lok næstk.
ágústmánaðar.
Söndum 17. júlí 1907.
Pórðui' álafsson.
40 teg., eru nýkomnar.
Niðursuðuvörur, fyrirtaks Telauf
á 2,00 pr. ÍB — Cacao — Hveiti —
Ávextir í dósum.
Ósköpin öll af Eldhúsgögnum og
Járnvörum, sem allt að vanda er
langódýrast í
verzl. 3- 3jarnas°n-
íslandsför hans hátignar kon-
ungsins hefur gefið tilefni til þess,
að mótuð hefur verið ein hinna
svonefndu minningarskeiða, og, er
eins og kunnugt er fyrir hendi all-
mikið af þeim. Hans Tegner pró-
fessor hefur á heppilegan hátt hag-
nýtt sér fyrirliggjandi verkefni:
livíta fálkann á bláum grunni.
Stimplarnir á skeiðunum eru grafn-
ir af Lindahl hirðgrafara, en allt
annað verk við skeiðarnar er unn-
ið hjá Michelsen hirðgimsteina-
meistara, og eru skeiðarnar fagurt
smíði, ogmunu með hinu konung-
lega fangamarki og ártalinu 1907
vei'ða eptirspurð minningargjöf.
(Berl. Tidende).
Verð 15 Krónur.
Hofjiivelér A. Michelsen
Bredgade nr. 11. Ivöbenhavn.
€irikur Xjerúlff
læknir.
Vesturgötu 22. Tiilsítni 93.
Heima virka daga frá kl. 10—11
f. m. og 2—3 e. m.
Gr&r hestur með mark blaðstýft fr.
vinstra, brennim. Jakob á hófum, er í óskil-
um hjá Brgnjólfi Magnússgni í Nesjum í
Grafningi. — Hver sem hest þennan á,
verður að borga auglýsingu þessa og ann-
an áfallinn kostnað, þangað til hestsins verð-
ur vitjað.
í Krísuvík er gráskjóttur óskilahestur,
járnaður, marklaus, S. B. á hófum.
Kýr til sölu. Um 10 mismunandi tíma-
bærar að velja. Ritstj. vtsar á.
Óútgengin peninyabudda með pen-
ingum, í Hafnarstræti 4 (sjá síðasta bi.).
Tapazt hefur peningabudda með pen-
ingum o. fl. í 5. þ. m. frá Jötu í Ytrihrepp
að Birtingaholti. Ráðvandur finnandi slcih
henni á skrifstofu Þjóðólfs gegn fundat-
launum.
Þakkarorð. Þegar eg á síðastliðnu
sumri varð fyrir þeirri þungu sorg að missu
minn elskaða eiginmann, þá urðu margir til
að rétta mér örláta hjálparhönd bæði með
gjöfum og mannhjálp. Það yrði oflangt mál
að nafngreina hvern sérstakan mann hér, en
um leið og eg þakka þeim innilega þeiiTý
göfuglyndu hjálp, bið eg þann sem heyr't
bænir ekkna og munaðarleysingja að launa
þeim sínar velgerðir á hagkvæmri stund.
Hamri í Flóa í júlí 1907
Guðbjörg Guðmundsdóttir.