Þjóðólfur - 06.09.1907, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 06.09.1907, Blaðsíða 2
146 ÞJÓÐÓLFUR. Lög frá alþingi. 23. Um löggilding verzlunarstaðar að Króksfjarðarnesi í Geiradalshreppi. 24. Um löggilding verztunarstaðar að Eysteinsegri við Tálknafjörð. 25. Um breyting á 1. gr. í lögum 3. okt. 1603 um hafnsögugjald í ísafjarðar- kaupstað (að öll fiskiskip, innlend og útlend, séu undanþegin hafnsögu- gjaldi). 26. Um útgáfu lögbirtingablaðs. 27. Um bœjarstjórn í Hafnarfirði. 28. Um breytingar á lögum 31. jan. 1896 um varuir gegn útbreiðslu nœmra sjúkdóma. TiUögnr i alþýðumenntamálinu og prestamálinu með athugasemdum frá ónefndum presti. (Niðurl.). Þákemur flmmta tiltagan um staðsetning prestkennara. Um hana skal ekki fjölyrða mjög. Tilgangur hennar er, að gera allt sem hægast, einfaldast og kostnaðarminnst, og jafnframt sem notadrýgst á allar hendur. Helzt mun verða að því fundið, að kennslu- hús sé haft að funda- eða samkomustað. En eg held, að það komi ekki í bága við neitt. Þing og samkomur í sveitum um kennslutímann eru varla svo opt, eða lengi, að kennslu saki, og svo ekki of gott nem- endum, að fá stöku sinnum „frí". En hvað hollustu eða óhollustu snertir, þá get eg ekki skilið, að nokkra hættu þurfi að óttast af þessu fyrirkomulagi, með sæmilegu heil- brigðiseptirliti. Um 6. atriðið, verkahring prestkennara, held eg að ekki þurfi mikið að segja frá mínu sjónarmiði. Mér finnst, að eg hafi úttalað um þá tillögu'með tillögunni sjálfri. Þó vil eg taka það fram, að með breyt- ingum þeim, sem hér er stungið upp á, er prestkennara að minni ætlan gert vel kleyft, að komast yfir og leysa vel af hendi ætl unarverk sitt, prestsstarf og kennslu, að mér finnst hann hafi sæmilegan tíma til lesturs, til að fylgjast með tímanum, og til undirbúnings ræðuhöldum og daglegrar kennslu. Um miklar heimsóknir þarf tæp- ast að óttast uppi í sveitum um hávetur. Þær tefja hann varla til mikils skaða yfir- leitt. Sérstaka áherzlu vil eg leggja á það í þessari tillögu, að söfnuðunum sé veitt sem fyllst heimastjórn í þeirra andlegu málefnum og meðferð þeirra, eða að hver einstakur söfnuður fengi leyfi til, að hafa hina ytri lögun og framkvæmd þessara málefna, sem eru hugans og hjartans eða andans málefni, eptir eðlilegum óskum og innri og ytri þörf- um sínum. Auðvitað allt innan kristilegra takmarka. Með því móti fengist frjáls pjóðkirkja, jafn frjáls eða frjálsari en mörg fríkirkjan, og mundu þá færri en nú kalla á kirkju, sem köliuð er fríkirkja, en getur þó varla eða ekki verið „frí". Annars ann eg fríkirkju, og það er af fríkirkjulöngun, að eg legg þetta til með þeírri sannfæring, að þessi tilhögun, eða einhver henni lík, muni vera framkvæmanlegri og gefast betur upp í hinu fámenna og fátæka strjálbýli sveitanna, heldur en regluleg, vanaleg frí- kirkja. Eg skal svo ekki tefja lengur með því, að útlista frekar þessa hugmynd < þetta sinn, en bfð átekta, og vildi þá, eftilkæmi reyna að gera frekari grein fyrir henni. Þá kemur hið næsta, um laun og kjör prest- anna. Launin mega ekki vera minni og kjörin ekki lakari, en hér er lagt tii, fyrir menn, sem ætlað er svo mikið, vandasamt og veglegt starf. En eg tel þó þessi laun og kjör það sæmileg, að góðir og nýtir hæfileikamenn mundu að þeim laðast og við þau una. En bezt væri, að launin og kjörin væru enn betri. Svartfjallasynir hafa flestir sína presta fyrir lýðkennara og launa þeim einna bezt sinna embættismanna. Og fáar þjóðir eiga frægari sögu né meira af föðurlandsást, dáðum og þjóðlegum dyggð- um. En hvaðan á að taka öll þessi laun, hvað eru okkar efni handa svo mörgum ? Launin eiga að veitast af öllu því gjaldi, sem nú og síðar gengur til launa núverandi presta eða þeirra, sem ráðgert er að verði á öllu svæðinu fyrir utan kaupstaði og sjó- þorp; en það, sem þá vantar á fullsæmileg laun, takist af fé því hinu mikla, sem geng- ur nú og mundi ganga framvegis til nú- verandi og ráðgerðrar alþýðukennarastéttar á sama svæði. Það sannast á sínum tíma, að ef koma skal upp sérstakri, fullkominni og fullnægjandi alþýðukennarastétt, með viðunanlegum launum og kjörum, eins og sjálfsagt er, þá tekur sú stétt upp meira en tvöfalt fé á móts við allt það fé, sem nú gengur til prestastéttarinnar. Svo að það væri býsna mikill fjársparnaður, að sameina hvorttveggja starfið og launa það þá sæmi- lega, auk þess, sem kennslufyrirkomulagið getur naumast orðið einfaldara, viðráðan- legra né notadrýgra öllum lýð með nokkru öðru móti, en hér er farið fram á. Að m. k. get eg ekki fundið né skilið betur. Eg ætla ekki að hætta mér út í að nefna marg- ar tölur, en langar til að láta það sjást, að nú sem stendur er talið, að til allra sóknar- presta landsins gangi alls 158,200 krónur, en til núverandi alþýðukennslu utan kaup- staða 56,775 kr. Ætla eg svo að geyma rnér eða öðrum að segja frekar um þetta, en minnast lítið eitt á 8. tillöguna um aldur og fjölda nemenda. Það er sannfæring mín, byggð á nokkurri reynslu, að það sé fremur illt verk, eða þó gagnslítið, að taka mjög ung börn til stöð- ugrar kennslu, en að því meiri og betri árangur verði af kennslunni, sem nemandinn er þroskaðri. Eg vil því engu opinberu fé eyða, til litils gagns eða ógagns við kennslu barna, meðan þau eru mjög óþroskuð, og ætla sveitaheimilunum að sjá sjálf fyrir tilsögn barna sinna, þangað til nokkur þroski er fenginn; en mikill er þroskinn ekki almennt fyr en um 12 ára aldur. Auk þessa er það trúa mín, að hollast sé heima að alast og fræðast á þessum yngstu árum, í skauti móður og föður o. s. frv., og að heimilin geti vel, með eptirliti og aðstoð kennslustjórnar, veitt börnunum hina fyrstu og einföldustu fræðslu, er þau væru móttækileg fyrir. Og enn- fremur tel eg það heill og blessun fyrir heimilin, að mega algert lifa og starfa með og fyrir börnum sínum á þessum árum. Með því nú að sleppa þessu óholla og gagnslausa opinbera kennslukáki á börnum allt til 12 ára, mundi sparast mikið fé, til gagnsmeiri fræðslu stálpaðri barna og ung- menna. En 12 ára aldurinn tel eg tiltæki- legan til opinberrar kennslu; þá er þroskinn orðinn nokkur og heldur áfram, og fer að þola stöðuga, reglubundna tilsögn, og fræðslan að bera árangur. Þessu held eg fram fyrir sveitabörn. Öðru máli er að gegna með kaupstaðabörn, sem komið er mjög ungum í skóla, opt aðallega til þess, að hafa hemil á þeim frá solli o. s. frv. En frá þessum aldri, 12 ára, legg eg til, að börnin séu tekin á kennsluarma hins opin- bera, og þeim síðan kennt svo mikið, sem þau geta á móli tekið, alls í 24 mánuði til tvítugs o. s. frv. Minna finnst mér varla nóg, en meira ekki nauðsynlegt. Mætti þá kalla alþýðumenntun vel komið, ef hver maður og kona fengi góða almenna fræðslu svo langan tíma. Hvað tölu nemenda snertir, þá er hún byggð á þeirri áætlun, að 300 manns framleiði árlega 25—30 nemendur að jaínaði. En flokkun þeirra eptir aldri eða lærdóms- og þroskastigi á að vera til hægri verka og nytsemda. Þá kemur næst að 9. títlögunni, um náms- tímann, og finnst mér, að ekki þurfi að fjölyrða um hann. Eins og áður er á drep- ið, legg eg til, að 25—30 nemendum sé skipt í tvo námsflokka. Það geri eg af því, að eg tel 25—30 nemendur of mikið í einu fyrir einri mann, sem jafnframt sé prestur, en c. helming þeirra mátulegt; ennfremur í því skyni, að spara kennsluhús eða stóra og dýra vistarveru (yrir nemendur, og erfiði og kostnað við skólahaldið. Og ennfremur til þess, að sem mestur hluti nemenda komist niður á næstu býlum; því að auð- veldara er að koma niður fáum en mörgum; og ef flestir eða allir nemendur kæmist niður á nábýlin, þá þyrfti ekki mikið skóla- vastur o. s. frv., en allt yrði þá svo ofur- einfalt, auðvelt og sveitalegt, sem er svo skemmtilegt og gagnlegt. Hvað snertir fullnaðarpróflð og réttindamissinn við það, að standast það eigi eða vanrækja það, þá er það uppástunga frá öðrum en mér(B J.), sem eg fellst á og vil koma þarna að. Því eg tel hana gagnlega. Það gæti verið missir kosningarréttar að einhverju leyti t. d. Þá er 10. atriðið, um vist, fæði og þjón- ustu nemenda. Um vistina eða verustaðinn er að nokkru talað, og tel eg lítinn vafa á því, að ef prestkennarasetrið væri þar, sem þéttbýlast er í kalli hverju, þá veitti yfirleitt hægt, að koma einu og tveimur börnum niður á hvern einasta næsta bæ um 4mán- aða tíma í einu, með því fyrirkomulagi, sem hér er lagt til, og einnig fyrir unglingana, að sækja daglega heim og heiman frá kennslunni. Þar að auki telja flestir það hollt og hreystivænlegt, að ungmenni hafi sem mest útilopt og útihreyfingar, og það fengju þau að góðum mun með því, að fara á milli með hæfilegu eptirliti. Sama er að segja um það, að þau sjálf hjálpi sér mest með matreiðslu og þjónustu; það ven- ur þau og æfir ( sjálfstæði og sjálfsbjörg, og á að kenna þeim reglusemi og þrifnað, góða og skynsamlega meðferð efnanna og sæmilega umhirðu um sjálfa sig. Og auk alls þessa, sem eg tel mjög mikils virði, mundi þetta létta öllum allt og spara stór- fé og fyrirhöfn. Auðvitað ber að heimta eptirlit og tilsögn allra hlutaðeigenda, for eldra, húsbænda, kennara og síðast kennslu- stjórnar í hverju fylki. Um 11. tillöguna, um fræðslumálastjórn ( hveriu kennslufylki, finnst mér fátt að að segja. Mér finnst hún vera sjálfsögð. Eg legg til að prestkennari sé ekki sjálf- sagður í þessa stjórn, svo að ekki þurfi að hræðast of mikið veldi af honum. Þann I varnagla tel eg reyndar óþarfan, þar sem prestkennari hefur erindisbréf og yfir sér tvöfalda stjórn, o: kennslustjórn fylkis síns og kennslumálastjórn landsins. Um síðustu, 12. tillöguna, er ekkert að segja, nema það, að hún væri sumstaðar komin í framkvæmd nú þegar, ef unnt væri, ef til væri heimild og fé til slíks. En þá heimild og það fé vantar. En hvað á þá að gera við alla alþýðukenn- arana, sem nú eru í öllum sveitum landsins utan kaupstaða ? Þeir voru 1901 alls á landinu 415; þar af sjálfsagt um 300 eða eða fleiri í sveit. Og eflaust enn fleiri nú, 1907. Þeir af þessum kennurum, sem finna hjá sér köllun og hæfileika til kennslu, ættu að geta fullkomnað sig til að verða prestkennarar o: hinir yngri; og prestaskól- inn ætti að breiða faðminn á móti þeim, þótt þeir skilji ekki grísku og latínu; en hinir eldri góðu kennarar skyldu vera við sitt embætti, endurbætt og betur launað, þangað til þeir falla frá. En allir hinir eiga að hætta; þeim gerir minna til um hungurskennslulaunin o. s. frv., og fara að vinna alla ærlega vinnu með höndum sín- um, og leita sæmdar og uppbyggingar í því, fyrir sjálfa sig og aðra. Þv( seint verða þeir ofmargir, sem þetta gera, og þá er og verður því betra, sem hinn líkamlega vinn- andi lýður er betur uppfræddur og mann- aður. En með fyrirkomulagi því, sem hér er lagt til, er tilgangur minn sá, og virðist allvel framkvæmanlegur, að hvert einasta mannsbarn meðal alþýðu um tvítugt, verði jafnvel uppfrætt og mannað og yfirborðið af núverandi alþýðukennurum, og betur en ýmsir þeirra. Guð gefi, að það verði — verði sem fyrst. Frá fréttaritara Pjóðólfs. Vikuna 12.—17. ágúst síðastl. héldu* esperantistar alþjóðlegan fund í háskóla- bænum Cambridge á Englandi. Fundur þessi var hinn þriðji slíkur fundur, sem esperantistar hafa haldið. Hinn fyrsti var haldinn í Boulogne-sur-Mér á Frakklandi sumarið 1905, en annar var haldinn f Genf (Genéve) í Sviss 1 fyrra sumar. Fundinn í Cambridge sóttu um 1500 manns úr flestöllum löndum Norðurálf- unnar, og ennfremur nokkrum löndum utan Norðurálfunnar. Næstu dagana fyrir fundinn tóku menn að safnast til bæjar- ins úr öllum áttum, og daginn áður en fundurinn var settur (sunnudaginn 11. ág.) var haldin guðsþjónusta á esperantó fyrir komumenn í þrem kirkjum í Cambridge (í einni eptir katólskum sið, f tveimur eptir sið ensku kirkjunnar). Á mánudaginn 12» ág. kom loks aðalþorri fundarmanna og þar á meðal höfundur málsins dr. L. Zamenhof frá Varsjá á Póllandi. Bæjarstjórnin í Cambridge hafði léð esperantistum ráðhús bæjarins til þess að halda í fundi sína, og var bæði það og torgið fyrir framan allt fánum prýtt, og yfir ráðhúsinu blakti esperantófáninn. Esperantófaninn er grænn (litur vonar- innar), en hvítur ferhyrndur reitur í einu horninu (ofanvert næst stönginni) með grænni stjörnu í miðjunni. Víðsvegar annarsstaðar í bænum sáust líka esperantó- fánar blakta á húsum bæjarmanna. I ráðhúsinu og torginu fyrir framan það varð ekki þverfótað fyrir esperantistum. Mátti þar sjá margskonar svipi og ólíkt andlitsfall, en hvarvetna blasti við græna stjarnan (merki esperantista) og hvarvetna kvað við sama tungumálið: um allt ráð- húsið heyrðist ómurinn af esperantó, er hundruð radda runnu saman í eitt, og um allar götur bæjarins mátti heyra esper- antó bregða fyrir. Ki. 2 a mánudaginn (12.) kom dr. Zam- enhof með konu sinni til bæjarins. Bær- inn gerði allt, sem í hans valdi stóð, til að gera móttöku hans svo hátiðlega, sem unnt var, og hefði hvaða konungur sem. er, verið fullsæmdur af slíkum viðtökum,. enda sagði telpa ein, sem spurð var aðT á hverjum væri von, að það væri kongur- inn í Esperantó; hún hefur auðvitað haidið, að það hlyti að vera kongur, sem svo mikið væri haft við, og af því að hún hefur hvarvetna heyrt orðið Esper- antó kveða við, hefur hún haldið, að það væri nafnið á landinu, sem hann kæmi frá. Jámbrautarstöðin og gatan, sem dr_ Zamenhof atti að aka eptir frá járnbraut- arstöðinni, var öll fánum prýdd. Bæjar- stjórnin með borgarstjórann f skínandi skarlatsskikkju í broddi fylkingar, ók til járnbrautarstöðvarinnar til móts við dr. Zamer.hof til þess að bjóða hann velkom- inn í nafni bæjarins, en múgur og marg- menni hafði þyrpzt saman allt í kring og laust upp fagnaðarópi, er eimlest- in kom inn á stöðina og dr. Zamenhof sté út. Frá járnbrautarstöðinni ók dr. Zamenhof til Fitzwilliam Museum, þar sem vísikanzlarinn, sem er hinn eigin- legi stjórnandi háskólans, bauð hann vel- kominn í nafni háskólans. Brátt fylltist forsalurinn og óstöðvandi fagnaðaróp- kváðu við enn á ný. Fyrir dr. Zamenhof hlýtur þessi mót- taka bæjarins og háskólans að verða minnisstæð. Hann hefur ekki hingað til átt að venjast slíkum opinberum sæmdar- atlotum, að því undanskildu, að kennslu-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.