Þjóðólfur - 20.03.1908, Side 1

Þjóðólfur - 20.03.1908, Side 1
60. árg. Reykjavík, föstudaginn 20. marz 19 08. JtS 13. Pjóðólfur. "Wýir kaupendur að þessum 160. árgangi blaðsins, fá ókeypis og kostnaðarlaust sent, um leið og þeir borga k kr. fyrir árganginn: 1. Sögusafn Pjóðólfs, 13. liepti með ágætum skemmtisögum (þar á meðal: Unnusta fangans, Á flótta, Þorsteinn sterki o. fl.) 128 bls. í stóru broti, og 2. Yesturförin. Sönn saga um íslenzka útflytjendur. Vel rituð. 4 arkir að stærð. Enginn, sem gerist nýr kaup- andi, fær kaupbæti þennan fyr en hann borgar blaðið, svo að það er ekki til neins, að krefjast hans fyr. Gamlir kaupendur Þjóðólfs, sem skuldla,usir eru við blaðið, eru beðnir að gæta að auglýsingu 20. des. f. á. Samkvæmt henni geta þeir átt kost á að fá: íslenzlta sagnaþætti 2. hepti, gegn því að senda 20 aura í burðargjald (má vera í frímerkjum), ef þeir geta ekki nálgazt það á annan hátt, en skil- vísir útsölumenn, er hafa að minnsta kosti 4 kaupendur, geta fengið heptið gegn 10 a. burðargjaldi fyrir hvern kaupanda. Um þetta dregur engan einstakan, en er gert til þess, að heptið verði ekki s^nt þeim, er alls ekki kæra sig um það. Neðanmálssaga sú (Rodney Stone), sem nú er í blaðinu, er að allra dómi ágætasta sagan, er liinn víð- frægi Conan Doyle hefur ritað, og hefur Þjóðólfur fengið úr ýmsum áttum sönnun fyrir því, að almenn- higi fellur hún vel í geð. Hún verður að líkindum- langt komin á Þessu ári, og verður hún að lok- uin sérprentuð harnla göml uin og nýjuin skilvísum kaupendum blaðs- ins, með sörnu kjörum og sagna- þættirnir. íslenzkar sagnir verður haldið á- fram að birta í blaðinu, ef til vill rifar en áður, eptir ósk margra, og verða þær jafnóðum sérprentaðar. Niþr kaupendur gefi sig fram sem fyrst, áður en kaupbætirinn þrýtur. Vissast að borga blaðið um leið 0" pantað er, til þess að verða ekki af honum. e i I s n h æ I i ð. Alieit, dánargjafir, minningar- sjóðir o. fl. Heilsuhælið hefur auðgazt af gjöf- um víðs vegar að og það heíur orð- lð fynr allmörgum áheitum, en það a Uka að bæta sárasta heilsubrest- lntl> Það á að veita hjálp við þeim sjúkdómi, sem er lang-tíðasta dauða- mein æskulýðsins, það á að verja dauðanum vorgróða þjóðarinnar, og það á aldrei að gera sjer manna- mun; ef tveir drepa að dyrum og beiðast gistingar, annar vel fjáður, en félaus hinn, þá sæmir ekki ann- að en bjóða þá báða jafnvelkomna, taka við gjaldi íyrir greiðann af þeim, er goldið geta, en hýsa hina ókeypis, sem félausir eru. Ýmsir munu geta greitt fulla með- gjöf, aðrir nokkra meðgjöf; en marg- ur mun koma að Vífilsstöðum með veikt brjóstið og tómar hendurnar; og hver vill þá standa í dyrum og segja við komumanninn: „Hér er autt rúm, en þig hýsum við ekki, þér hjálpum við ekki, þú verður að segja þig til sveitar, góður minn, eða fara í gröfina, fyrst þú getur ekkert borgtð. Peningana eða lífið!" Þjóðin hefur tekið heilsuhælinu tveim höndum. En það veit eg, að þetta vill hún ekki. Sönn mannúð spyr ekki um heim- ilisfang, leitar ekki að sveitfesti, þreif- ar ekki í vasa þeirra, sem sjúkir eru og hjálparþurfar. Heilsuhælið á Vífilsstöðum á að verða athvarf allra brjóstveikra manna hér á landi, eptir því sem rúm leyf- ir, án nokkurs tillits til efnahags sjúklinganna. En til þess að veita mörgum sjúk- lingum ókeypis vist, þarf mikið fé ár frá ári; það verður hælinu um megn, nema því berist miklar gjafir, auk árstilllaga lélagsmanna í heilsu- hælisfélaginu. Heilsuhælið er gjafa þurfi. íslendingar kunnu fyrrum að gefa. Fyrri alda menn voru ekki fjáðari en við, sem nú lifum. Og þó gáfu þeir hver í kapp við annan. Þeir gáfu til þess, sem þeir þekktu bezt j og töldu þarfast og nytsamast allri alþýðu. Þeir gáfu klaustrum og kirkj- um. Fáfróðir menn ætla að flestar gjafir til kirkna á fyrri öldum hafi verið nauðungargjafir, sprottnar af helvítishótunum og ofbeldi klerkanna. En sannfróðir menn neita að svo hafi verið, heldur hafi flestar gjafirn- ar flotið af einlægri ást á kirkju og kristindómi. Sú ást mun hafa kólnað. Menn hafa hætt að gefa, týnt því niður, gleymt því að miklu leyti. Þetta á ekld heima um aðrar þjóð- ir. í öðrum löndum kunna menn enn að gefa. Þar telja allir stór- efnamenn skyldu sína að láta eitt- hvað af hendi rakna til almennings- heilla. Og dánargjafir eru þar al- gengar enn sem fyr; barnlausir efna- menn láta sjaldnast eigur sínar hverfa í gráðugar hítir fjarskyldra ættingja, gefa þær heldur eptir sinn dag til einhvers góðs og þarflegs. Nú á dögum ganga þó ekki gjai- irnar flestar til kirkna. Nú er mest gefið sjúkrahúsum, eða til þess að líkna á einhvern hátt sjúkum mönnum. Svo mikið kveður að þessu, að í sumum löndum veita flest sjúkra- hús öllum sjúklingum ókeypis vist, hvaðan sem þeir koma; þar berast sjúkrahúsum allskonar gjafir, ótal gjafir, smáar og stórar, frá ríkum og fátækum, sífeldar gjafir, ár eptir ár, svo að gjafaféð nægir fyrir öllum útgjöldum. Mjög margir íslenzkir sjúklingar hafa, vita menn, notið ókeypis vist- ar, hjúkrunar og hjálpar í enskum sjúkrahúsum, einkum í Edinborg (Royal Infirmary). Þar í landi er alstaðar völ á ókeypis sjúkrahúsvist og flest sjúkrahúsin kostuð eingöngu af gjöfum góðra manna. Heilsuhælinu er ætlað að lifa á gjöfum góðra manna. Það er alsiða í Englandi og víð- ar, að menn arfleiða eitthvert sjúkra- hús að aleigu sinni eða ánafna því dánargj'óf\ má sjá minningarspjöld um margar slíkar gjafir í öllum ensk- um sjúkrahúsum. Það er einnig mjög algengt, að j sjúkrahúsum er gefin fúlga, til skilið, að gjöfina skuli varðveita óhrærða, en verja vöxtum til að greiða að staðaldri legukostnað eins sjúklings; er þá opt að gefandi skírir sjóðgjöf sína nafni einhvers látins ættingja síns eða ástvinar. Ýms ensk sjúkra- hús eiga fjölda slíkra minningar- sjóða, og mætti kalla þá sængur- fúlgur, því að víða er venja að letra nafn hvers sjóðs á höfðagafl einnar sjúkrasængurinnar, til merkis um, að sjóðurinn líkni þeim, er þar hvíla. Mjer er t. d. í minni eitt sjúkrahús í Lundúnum, fyrir börn, St. Ormond Hospital; þar sá jeg eirspjöld á af- armörgum höfðagöflum rúmanna og á þau letruð nöfn ýmsra minningar- sjóða eða gefenda. Eitt spjaldið bar nafn Alexöndru drottningar, þann sjóð hatði hún gefið. En mér var sagt, að flest væru sjóðnöfnin heiti látinna barna; hefðu foreldrar þeirra gefið sængurfúlgurnar. „Þessi spjöld eru meira verð en legsteinar í kirkjugarði", sagði ein hjúkrunarkonan við mig. Því munu allir samsinna, einnig hér á landi, og einhverjir, vonandi, láta það ásannast. Rúmin í heilsuhælinu mega ekki vera færri en 50. En af hverjum 50 sjúklingum, sem þangað þurfa að komast, munu jafn- an margir félitlir og sumir gersnauðir. Þeim þarf að líkna. Heilsuhælið þarf að eignast marga minningarsjóði. Og mér er sem eg heyri spurt: »Hversu stór þarf minningarsjóð- ur að vera til þess, að ársvextir lirökkvi fyrir ársmeðgjöf með einum sjúkling og megi helga sjóðnum að fullu og öllu eitt rúm í heilsuhælinu?" 10,000 krónur. G. Bjórnsson. íslenzkar ‘►límur. Illnftaka í ólympsku lcikunum. Glímufélagið ))Aimann« sýndi glímur hér i Iðnaðarmannahúsinu 14. p. m., og átti ágóðinn að ganga til að styrkja för íslenzkra glimumanna til íþróttamóts- ins — ólympsku leikanna — i Lund- únum í sumar. Skemmtunþessivar frem- ar laklega sótt, eða miklu ver en vænta mátti. Fyrst glimdu drengir um ferm- ingaraldur eða lítið eldri, en síðan þroskaðri menn, bæði lausa glímu og bændaglímu og glimdu þeir margir vel. Fræknastir og æfðastir glímumenn eru þeir Hallgrímur Benediktsson, Sigurjón Pétursson, Jónatan Þorsteinsson, Guð- mundur Sigurjónsson og Guðmundur Stefánsson. En meðal hinna yngri eru efnilegastir glímumenn: Snorri Einars- son, Magnús Tómasson og Ólafur Magn- ússon (Ijósmyndara), auk fl., er vér kunnum ekki að nefna. 7—8 hinna beztu glímumanna hér munu eiga að æfa sig til væntanlegrar hluttöku i íþróttamót- inu á Englandi, en naumast munu héð- an úr Reykjavík fara fleiri en 4 eða 5, enda skortir farareyrir, þótt samskota sé nú þegar leitað viðsvegar um land, og fengið dágóðar undirtektir, auk þess sem stjórnin liefur lofað að veita 2000 kr. af almannafé (gegn væntanlegri fjár- veitingu eptir á). Vitanlega fara ekki íslendingar til þessa íþróttamóts i Lund- únum til að keppa þar um verðlaun við aðra þjóðflokka i nokkurri alþjóðlegri íþrótt. Til þess erum vér ofskammt eða réttara sagt ekkert á veg komnir í slikum íþróttum, að nokkur sigurvon sé þar á móti hinum allra völdustu iþróttamönnum annara þjóða. Það nær ekki nokkurri átt. En vér eigum að senda til mótsins liina liprustu glímu- menn vora til að sýna þar íslenzkar glímur, þessa þjóðlegu íþrótt vora, sem geymzt hefur svo að segia óbreytt frá fornöld og er nú hvergi tíðkuð nema hér. Mundi það óefað verða til þess að vekja eptirtekt annara þjóða á oss og hnekkja þeirri allsherjarvillu, að vér séum danskir, enda er sjálfsagt fyrir sendimenn vora, að láta það sjást greini- lega, að svo sé ekki. Æskilegt væri, að þeir, sem sendir yrðu af vorri hálfu til þessa íþróttamóts væru vel vaxnir og geríilegir drengir, og er sjálfsagtað taka mikið tillit til þess, samfara glímufim- leik, þá er valdir verða menn til far- arinnar. Sögufélagið hélt aðalfund sinn 16. þ. m. Það gef- ur út í ár áframhald af Tyrkjaránssögu, Biskupasögum séra Jóns Halldórssonar og Guðfræðingatal (eptir Hannes Þor- steinsson). Samþykkt að kaupa handa félagsmönnum 250 eintök af bók dr. Jóns Þorkelssonar og Einars Arnórs- sonar um »ríkisréttindi íslands«, stór- merka bók, sem nú er að koma út, og verður 15—16 stórar arkir að stærð. Hafði útgefandinn Sigurður Kristjáns- son bóksali lofað að selja félaginu hvert eintak aðeins á 1 kr. Félaginu liafði verið gefinn kostur á að fá til prentun- ar verðlaunaritgerð Olafs heit. Daviðs- sonar um galdra og galdrabrennur á íslandi. En félagið sá sér ofvaxið að

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.