Þjóðólfur - 06.11.1908, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 06.11.1908, Blaðsíða 1
60. árg. Reykjavík, föstudaginn 6. nóvember 1908. JK51. V erkf æravélar og smíðatól. Kjöbenhavn. Gl. Kongevej 1D. Sæla tveggja sálna. Sæla tvegga sálna ei sollinum sprettur hjá — hún er eins og gras sem grær i grjóti, þar sem minnst ber á. Sæla tveggja sálna ei sinnir um kossamál — hún er eins og ylur búms eptir sólarhál. Sæla tveggja sálna er sem hin dimma uótt — þögul, en þar má lita þúsund stjörnur brosa hljótt. V. Stuckenberg. Vísur Friðriks Bryor.s. -Teg mætti stúlku, er harn sitt bar, með blygðunarroða á vanga. I húsgangstötrum hún þrammaði þyrniveginn sinn langa. [þar, Hún átti þó blessað harnið sitt, blysið á veginum auða — jeg vildi að barnið væri mitt, ó, væri jeg konan snauða! G. Fröding. SkattanejnDarálitií er nú fyrir skömmu fullprentað. Er það arka stór bók, og eru 1 henni fyrir utan sjálf álitsskjöl nefndarinnar 17 laga- frumvörp og nokkur önnur fylgiskjöl. Nefndinsat á rökstólum í Reykjavík i1/^ mánuð í vor sem leið, og samdi þá flest af frumvörpum sínum, og var sumra þeirra lttillega getið í blöðunum um þær mundir. Síðan sendi hún frumvörpin Jóni Krabbe yfirréttarmálaflutningsmanni í Kaupmanna- höfn, og lét hann uppi álit sitt um þau, en að því búnu kom nefndin aptur sam- an á Akureyri f ágústmánuði, og sat þar á ráðstefnu hálfan mánuð, og breytti þá í einstökum atriðum frumvörpum þeim, sem hún hafði áður samið, og samdi tvö ný frumvörp í viðbót. Með því að hér er um eitt hið mesta stórmál þjóðarinnar að ræða, ætlast nefnd- in ekki til, að því verði ráðið til lykta á næsta þingi, heldur verði einungis tekið iþar til umræðu og íhugunar, en fullnað- arúrslit ekki á það lögð fyr en á næsta þingi þar á eptir, eptir að nefndinni hefur gefizt kostur á að taka málið til nýrrar athugunar og endurskoðunar eptir þeim bendingum, sem fram kunna að koma frá þjóð og þingi. Með því að búast má við, að mál þetta verði einna efst á dag- skrá þjóðarinnar og þingsins á næstu ár- um, er það hverjum manni nauðsynlegt, að kynna sér það sem bezt. Skal hér nú skýrt frá aðalatriðanum í uppástung- um nefndarinnar. Upphæð skattahækkunarinnar. Hið fyrsta verk nefndarinnar var að gera áætlun um, hversu miklu útgjöld landsjóðs mundu nema á ári hverju næstu 10—20 árin, til þess að geta séð hversu miklar tekjur landsjóður þarfnaðist, og miðað upphæð skattanna þar við. Útgjaldaáætlun nefndarinnar er miðuð við útgjöld síðustu ára, en þó ekki gert ráð fyrir nærri eins mikilli hækkun á þeim, og átt hefur sér stað undanfarið, þar sem útgjöldin hafa tvöfafdazt frá 1893—1904 (á 12 árum) og sömuleiðis frá 1901—1908 (á 8 árum). Gerir nefndin ráð fyrir 1,400,000 kr. útgjöldum á ári að jafnaði. í einstökum atriðum er áætlun nefndar- tnnar um ársútgjöld landsjóðs á næstu árum þannig (áætlun núgildandi fjárlaga — helmingurinn af fjárveitingunni fyrir fjárhagstímabilið allt - — milli sviga tií samanburðar): 1. Kostnaður til æztu stjórnar landsins á ári (50 þús ) 5°Þús. 2. Alþingiskostnaðurog yfirskoðun 66 þús. á fjárhagstímabilinu eða á ári (26 — ) 33 — 3. Dómgæzla og vald- stjórn (104 — ) 110 — 4. Læknaskipun og heilbrigðismál . . (i35 — )i4° — 5. Póstmál .... (90 — ) 100 — 6. Vegabætur . . . (i54 — ) 160 — 7. Gufuskipaferðir (78 - ) 70 — 8. Ritsími og talsími (273 — ) 160 — 9. Vitar og sjómerki . (9 — ) 3° — 10. Kirkja og andleg stétt (28 — ) 3° — 11. Æðri skólar . . (61 — ) 65 - 12. Alþýðufræðsla . . (95 — ) 120 — 13. Vísindi og bók- menntir .... (79 — ) 60 — 14. Verkleg fyrirtæki . (168 — )i7° — 15. Skyndilán til em- bættismanna, eptir- laun og styrktarfé (64 — ) 70 — 16. Til óvissra útgjalda (5 - ) 5 — 17. Utgjöld samkv. sér- stökttm lögum (bygg- ing opinberra bygg- inga 0. fl.) . . . 27 — Það sést á þessu 1,400 þús. yfirliti, að nefndin hefur ekki mikið hækkað útgjaldaáætlun- ina frá því setn nú er, en víðasthvar eitt- hvað ofurlítið. Þar sem áætlun nefndar- innar í 8. og 13. lið er lægri heldur en síðasta þings, stafar það af sérstökum kostnaði á þessu fjárhagstímabili, sem ekki helst árlega (þ. e. kostnaður við síma- lagningu og kostnaður við landsbókasafnið). Á sfðustu árum hefur ávallt orðið nokk- ur tekjuafgangur, þrátt fyrir áætlaðan tekjuhalla, og hefur það mest stafað af því, að tekjurnar hafa reynzt meiri en á- ætlað var. Nú vill nefndin háfa tekju- áætlun sína svo varlega, að líkt eigi sér stað framvegis, og að slfkur tekjuauki geti þá jafnað upp ýmisleg óvænt útgjöld, sem fyrir kunna að koma á næstu árum og ekki er gert ráð fyrir 1 áætlun nefnd- arinnar. I núgildandi fjárlögum eru tekjur land- sjóðs áætlaðar rúmar 1160 þús. kr., og vantar þá 240 þús. kr. til þess að tekjurnar standist á við gjöldin, samkvæmt áætlun nefndarinnar. Ætlast nefndin því til, að landsjóðsskattarnir hækki um þessa upp- hæð frá því sem nú er (auk þeirrar toll- hækkunar, sem lögleidd hefur verið á síð- ustu þingum til bráðabirgða, og ætlazt er til að haldist að mestu leyti). Þessar skattaálögur eiga eptir tillögum nefnd- arinnar að jafna hallann: 1. Fasteignaskattur (nýr) 60 þús. 2. Tekjuskattur (nýr). .60 — 3. Eignaskattur (nýr) ■ 60 — 180 þús. Þar frá dragast hinir beinu núgildandi skattar, semnefnd- in vill nema úrj gildi: a) ábúðarskattur . .17 þús. b) lausafjárskattur . 26 — c) húsaskattur . . .10 — d) tekjuskattur . .18 — þós. Hækkun á beinum sköttum 109 — 4. Stimpilgjald (nýtt) ... 25 — 5. Hækkun á aukatekjum . . 15 — 6. -------- erfðafjárskatti . 3 — 7. -------- vitagjaldi . . 10 — 8. —— - tollum . . . 78 — Samtals 240 — Það sést á þessari áætlun, að gert er ráð fyrir töluvert aukinni gjaldabyrði til landsjóðs, þar sem skattarnir eru hækkaðir alls nálega um þriðjung, en beinu skatt- arnir 2— 3-faldaðir. (Meira). ðlunðin í ,Reykjavik‘. Afbakaðar fundargerðir. »Reykjavíkin« síðasta er mjög ólundar- full og ill f skapi út af þingmálafundum Arnesinga í f. m., og lætur vanþóknun sína í ljósi yfir flestu, er þar gerðist. Með- al annars þykir blaðinu það mjög óvið- kunnanlegt, að fundirnir skyldu ekki í héraðsmálum(l) taka »tillit til krafa og sjálf- sagðra þarfa annara kjördæma« en Arnes- sýslu. Hingað til hefur það verið venja á þingmálafundum í hverju kjördæmi, að vera ekki að gera þar ályktanir fyrir önn- ur kjördæmi. Árnesingum kemur ekki til hugar að halda þingmálafundi t. d. fyrir Snæfellinga eða Eyfirðinga, heldur fyrir sig. Þessi meinloka blaðsins er því hreint og beint hlægileg, hreinasta fjar- stæða. Til þess að gera sem mest úr því, hvað Árnesingar séu kröfuharðir 1 fjár- beiðslum til þingsins, hefur greinarhöf. leyft sér að afbaka og rangfæra fundar- gerðirnar, auðsjáanlega sumstaðar vísvit- andi, en sumstaðar líklega af vanþekkingu Vísvitandi rangfærsla er það, að fundirn- ir hafi heimtað járnbraut austur í Ar- nessýslu, því á þeim fundinum, sem mál þetta kom til umræðu, var ekkert annað samþykkt í því máli, en að fundurinn væri hlynntur járnbrautarlagningu austur í Árnessýslu, svo framarlega sem land- sjóður kæmist að hagkvæmum tilboðum um lagninguna, og kostnaðurinn yrði land- sjóði ekki ókleifur (sbr. Þjóðólf 23. f. m.). Tillagan var einmitt svona orðuð til þess að vera sem allra vægilegust, úr því að ekki þótti hlýða, að fundurinn þegði al- veg um jafn-þýðingarmikið mál, Önnur lakasta rangfærslan, sem ef til vill er með- fram sprottin af vanþekkingu, er sú, að fundirnir hafi heimtað af landsjóði flutn- ingabraut upp Grímsnesið, alveg eins og þetta væri einhver vegur, sem landsjóði kæmi ekkert við, en nú heimtuðu Árnes- ingar hann lagðan á landsjóðs kostnað. Nú þykir rétt, að gefa höf. þær upplýsingar, úr því að hann virðist þessu gersamlega ókunnugur, að þessa flutningabraut upp Grímsnesið, alla leið til Geysis, er land- sjóði skylt að leggja að öllu leyti á lands- ins kostnað, samkvæmt vegalögum síðasta þings. Það er hrein og bein lagaskylda, sem fullnægja verður, og krafa fundanna er því ekki önnur en sú, að byrjað verði nú þegar á þessari vegarlagningu, að fé verði veitt á næsta þingi til þess, eins og brýna nauðsyn ber til. Hér er því ekki til annars mælzt, en að landsjóður reyni sem fyrst að fullnægja skýlausri laga- skyldu. Það er allt og sumt. Þá er það ennfremur dálítið álappalegt og óviður- kvæmilegt hjá höf., að taka til þess, þótt bændur vilji koma afurðum sínum ó- skemmdum á erlendan markað, með því að krefjast kælirúms í millilandaskipun- um. Það er skárri ósvífnin(l), að ætlast til þess, að landstjórnin geri eitthvað til að greiða fyrir góðri sölu íslenzkra af- urða. Það er líklega í augum höf. móðg- un við hið sameinaða d a n s k a gufu- skipafélag, að fara fram á annað eins og þetta fyrir hönd íslenzkra bænda! Þá er það ennfremur rangt, að heimtað hafl verið fé til stofnunar lýðháskóla í Árnes- sýslu, þar sem að eins var farið fram á, að stofnun þessi, ef völ væri á álitlegum forstöðumanni, yrði styrkt með einhverju fjárframlagi af landsjóði. Það er allt ann- að. Sé hlutdrægnislaust og hleypidóma- laust á málið litið, er sannleikurinn sá, að kröfur Árnesinga eru allar sanngjarnar og á réttum rökum byggðar, hver ein og einasta. FJða hvf skyldu t. d. austursýsl- urnar (Árness- og Rangárvalla) fjölmenn- ustu og blómlegustu héruð landsins, ekki eiga heimtingu á, að fá eina aðal-síma- línu lagða gegnum héraðið á landsjóðs kostnað, þá er ófrjósöm og strjálbyggð útkjálkahéruð hafa notið þeirra hlunninda? Og hvað er t. d. athugavert við það, að Árnesingar ætlist til, að aukalínur þar séu kostaðar að 2/3 úr landsjóði, úr því að það er einmitt sú regla, sem þingið sjálft hefur viðurkennt að réttust væri og fylgja ætti ? Það er ekki sjáanleg mikil ósvífni í þeirri kröfu. Svona er allt á sömu bókina lært, hjá þessum »Reykja- víkur«-höf., tómar blekkingar, misskiln- ingur og rangfærslur á skýrorðum fundar- gerðum, svo að það liggur við, að það sé ekki svaravert. Tilgangurinn með greininni er auðsjáanlega sá, að gefa það í skyn, að þingmennirnir hafi 1 o f a ð að fá þessu öllu framgengt á þann hátt, er blaðinu segist frá, en það verði líklega minna um efndirnar á þvf, og lætur mjög drýgindalega yfir, að það segi seinna frá

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.