Þjóðólfur - 06.11.1908, Page 2

Þjóðólfur - 06.11.1908, Page 2
i86 ÞTOÐOLFUR. því. En ’ þingmenn Arnesinga eru öld- ungis ósmeikir við þessa ögrun blaðsins, því að Arnesingar vita það fullvel, að þingmálafundarályktanir eru engar þing- samþyktir eða fjárveitingar, og að enginn heilvita maður ætlast til þess, að allt verði gert í einu eða komið í framkvæmd af þingmönnum hvers kjördæmis, sem þing- málafundir víðsvegar um land óska eptir eða gera ályktanir um. Það er þingsins að vinsa úr þeim fjárbeiðnum, sem fram eru bornar, og taka hinar nauðsynlegustu og eðlilegustu til greina, svo framarlega sem sanngirni og réttlæti ríkir á þinginu. Þetta ætti hverjum manni að vera ljóst, og þessvegna er það ekkert annað en stórflónska, að fjargviðrast um, þótt kjósendur láti óskir sínar til þings og stjórnar í Ijósi á þingmálafundum, hver fyrir sitt kjördæmi. Sárasta stinginn hefur þó greinar.höf. í »Reykjavík« fengið út af viðbótartillög- unni í sambandsmálinu á Húsatópta- fundinum, þessum viðauka, að vildu Danir ekki unna íslendingum fulls sjálfstæðis, þá legði fundurinn til, að þjóð og þing legð- ust á eitt, að leysa landið sem mest úr fjárhagslegu viðskiptasambandi við Dan- mörku. Þetta þykir höf. afarhættulegt og ósæmiiegt í alla staði, að fara að vinna að því, að beina íslenzku verzluninni aðr- ar leiðir, en til Danmerkur, og fá t. d. peningamál landsins, t. d. bankaviðskiptin, leyst úr læðingi við Danmörku. Þau eru oss hvort sem er svo hagfelld, eða hitt þó heldur, eins og nú stendur, þar sem landsmenn verða að borga margfalt hærri vexti af lánum sínum, vegna þessa tjóður- bands við danska banka, heldur en ella mundi, ef þeir hefðu peningaviðskipti við önnur lönd, t. d. England eða Frakkland, og enda Þýzkaland. En það er eins og klórað sé í opið sár hjá sumum mönn- um, ef á það er minnst eða að því vikið, að vér hugsum til að verða nokkru sinni öðruvísi en ósjálfstæðar og ósjálfbjarga undirlægjur Dana, bundnir á svo öflugan klafa við þá fjárhagslega, að vér getum hvorki hrært legg né lið. Þá hyggja þessir menn, að landinu vegni bezt, enda vita þeir það ofur vel, að allt sjálfstæðishjal verður þá að mestu leyti hégómi einn, er vér verðum að lifa af danskri náð fjár- hagslega. Annars skal þess getið til hugg- unar fyrir þennan »Reykjavíkur«-höf., að viðbótartillaga þessi var flutt af i. þing- manni Arnesinga, og samþykkt með svo einróma ánægju, að það var auðséð, að fundarmönnum var einmitt þ e 11 a atriði hið mesta áhugamál, þrátt fyrir þessa salt- kjöts- og hrossaverzlun, sem greinarhöf. segir, að Arnesingum sé svo einkar arð- vænleg við Dani(!), og fáist hvergi betri. En vitanlega beinist tillagan ekki að því, að slfta öllum verzlunarviðskiptum við Dani nú þegar, heldur að hinu, að vinna að því smátt og smátt að losa íslenzku verzlunina óg fjármál landsins, þará meðal peningavið- skipti bankanna, úr dönskum viðjum. Og i. þingm. Arnesinga blygðast sfn ekki fyrir þá tillögu, það verða fleiri fyigjandi henni en hann, áður en lýkur. Hún á ekki heldur rót sína í nokkurri hefndar- tilfinningu gagnvart Dönum, heldur verð- ur að skoðast sem hæfileg og sjálfsögð sjálfsvörn.er stafarafbeinni nauð- syn fyrir þjóðflokk vorn, ef hann áekki að lifa af »danskri náð« um aldur og æfi. Það er aðalkjarninn í tiilögunni, sem annars mætti ræða frekar um, en þetta verður að nægja að sinni, enda er nú mestu endileysunum í »Reykjavlkur«- greininni gerð full skil, og í raun réttri rækilegar en vert var. Það voru aðallega rangfærslurnar á fundargerðunum, sem leiðréttinga þurftu, fyrir þá, sem kynnu að trúa því, að blaðið væri alveg hætt að vera »málgagn sannsöglinnar« á Jóns Ólafssonar vísu. Konungkjörnir þingmenn eru orðnir Lárus H. Bjarnason lagaskólastjóri í Rvík og Stefán Stef- ánsson gagnfræðaskólastjóri á Akur- eyri, en dr. B. M. Ólsen hefur sagt af sér þingmennsku. Því hefði lítt verið trú- að fyrir tæpu ári, að þau endaskipti gætu orðið í pólitíkinni, að Hannes Hafstein skipaði einmitt Stetán kennara 1 konung- kjörnu sveitina í staðinn fyrir dr. B. M. Ólsen. Það hefði þótt ótrúlegur spádóm- ur. En nú er einmitt seilzt eptir hon- um, nýdubbuðum skólastjóra. Hann getur verið fjarverandi frá þessu embætti sínu nær helming skólaársins. En hvað ger- ir það til ? Baðir föllnu n e f n d a r- m e n n i r n i r skulu inn á þing saman, hefur stjórnin hugsað. Úr því að ekki tókst að »ríða miskunnarlaust ofan« við kosningarnar, nema að eins örfáa af fram- bjóðendum frumvarps-andstæðinga, en svo margir frumvarpsmenn féllu, þá var það leitt, að ekki voru fleiri konungkjörin sæti á iausum kili, því að hásetaskortur hefði naumast orðið á þeirri fleytu. Skyldi landlæknirinn t. d. hafa verið ófá- anlegur í þá vist, eða þá Guðlaugur o. fl. o. fl.? Sá sem harðast verður þó úti er Jón Jensson, eptir alla þægðina og sendiferð- irnar 1 sumar. Hvers á hann að gjalda, manntetrið, að lúta nú í lægra haldi fyrir Stefáni ? €rlenð simskeyti til Pjóðólfs. Kaupmannahöfn 30. okt. kl. 3 e. h. Sambandsmálið. Berlin neitar harðlega, að Danir sam- þykki fullveldi Islands. Grœnlenzka verzlnnin. Ráðaneytið boðar sakamálsrannsókn út af grænlenzku verzluninni. 5. nóv. kl. 12. Forsetakosning í Bandaríkjunum. Taft kosinn Bandaríkjaforseti af 302 kjörmönnum. Bryan fékk 181. * # * Það eru að vísu ekki óvænt tíðindi, þótt Knud Berlin sé enn að streitast við að færa allt til verri vegar fyrir oss íslend- ingum. Hann er óþreytandi 1 því starfi, og virðist vera höfuð-átrúnaðargoð dönsku stjórnarinnar í því máli. Það skiptir því alls ekki litlu, hvað hann leggur til mál- anna þar ytra. í blaðagrein þeirri, sem hér mun átt við í skeyti þessu, virðist hann hafa lagt fastlega á móti, að Dan- ir samþykktu nokkru sinni fullveldi ís- lands. En áður hefur bæði hann og | sum helztu blöð Dana tekið það skýrt fram, að í frumvarpinu hafi ekki ís- landi verið ætlað fullveldi. Það er ó- hætt að láta það uppi nú, úr því að þjóðin glæptist ekki á því, að taka gagn- stæðar skýringar nefndarmannanna og fylgifiska þeirra um fullveldið fyrir góða og gilda vöru, sem betur fór. Sakamálsrannsóknin út af grænlenzku verzluninni, er að iíkindum, eptir því sem ráða má af síðustu dönskum blöðuro, stýluð aðallega gegn Ryberg nekkrum, er haft hefur yfirstjórn grænlenzku verzlunar- innar á hendi síðan 1902. Og var farið að kvisast ýmislegt um ailathugaverðar mis- fellur í þessari stjórn, en Sigurður Berg ráðherra dró fjöður yfir það, og hélt hlíf- isskildi yfir Ryberg, setti hann t. d. í ann- að enn æðra embætti, rétt áður en hann fór frá völdum, og varð fyrir þungum á- kúrum út af því á þingi. Og nú hefur nýja ráðaneytið ekki séð sér annað fært, en að hefja sakamálsrannsókn um þetta. Það gengur margt erfiðlega fyrir »þjóð við Eyrarsund« um þessar mundir. Kosningabardaginn í Bandaríkjunum var í þetta skipti einna svæsnastur sem hann hefur nokkru sinni verið, ásakanir um mútur og atkvæðakaup á báða bóga, og sjálfur Roosevelt forseti ekki sloppið við óráðvendnis-aðdróttanir vegna liðsinnis hans.við Taft. í Dresden 1908. S t u 11 u r ú t d r á 11 u r eptir Jón Guðbrandsson. Á alþjóðafundi esperantista í Cam- bridge 1907 var það ákveðið, að næsta fund skyldi haida á Þýzkalandi; lengi voru menn í efa um, hvort heldur bæri að velja Leipzig eða Dresden sem sam- komustað, með því að báðir bæirnir hafa mörg af þeim skilyrðum, sem slíkir samkomustaðir þurfa að hafa, en frá þeim tíma að staðurinn var ákveðinn, fyrir hálfu ári síðan, hefur nefnd sú, er kosin var til að stjórna fundinum, starf- að með frábærum dugnaði og hvorki sparað tíma né fyrirhöfn til að gera mót- tökuna sem bezta og dvölina sem ánægju- legasta. Þó er þar eitt nafn öðrum frem- ur sem geta má í þessu sambandi og það er bankastjóri Arnhold, sem gengið hefur ótrauðlega fram í því, að allt væri sem bezt í haginn búið. Auk þess sýndi bæjarstjórnin velvilja sinn til málsins með því, að veita 3000 mörk til móttökunnar, og lána fundinum þau stórhýsi, sem hún hafði yfir að ráða; en það, sem mest var þð um vert var það, að allir fundarmenn gátu notað alla spor- vagna bæjarins ókeypis meðan á fundin- um stóð, en það kom að mjög góðum notum með því að sökum mannfjöldans urðu eingöngu notuð stærstu samkomu- hús bæjarins, sem liggja langt hvert frá öðru og bústaðir manna voru mjög dreifð- ir um bæinn. Það sem fundarmenn spöruðu í heild við þessa hugulsemi, hef- ár eptir áætlun numið nær 5000 mörk. Dresden, sem er höfuðborgin 1 kon- ungsríkinu Saxlandi hefur rúml. 500,000 íbúa, og hefur orð á sér sem ein af feg- urstu borgum Norðurálfunnar; þó er borg- in sérstaklega þekkt fyrir safn-rlki sitt, sem er aðalorsökin til þess mikla ferða- mannastraums, sem leitar þangað árlega. Einn af mest virðu stöðum borgarinn- ar er höfuð-skemtigöngustaðurinn, sem nefndur er sSvalir Norðurálfunnar«, enda er útsýni þaðan mjög fagurt, bæði yfir fljótið og allan hinn nýrri hluta bæjar- ins og handan yfir fljótið til sveitanna, má þar á meðal nefna »Weisser Hirsch«, sem er mjög aðsóttur baðstaður og heilsu- hælisstaður, sem í seinni tíð hefur feng- ið nafnið »Esperantó-sveitin«, sökum þess, hve margir af gestunum þar notuðu esper- antó daglega. Strax þegar komið var á járnbrautar- stöðina sunnudaginn 16. ágúst, mátti sjá á öllum þeim hundruðum forvitinna and- lita, sem þar voru fyrir, að eitthvað ný- stárlegt var um að vera fyrir mönnum, allir vildu sjá mennina frá Esperantó- »landinu«, sem enginn vissi hvar var, en allir vissu að var einhverstaðar, og svo konunginn, sem ekki hafði tekið landið sitt herskildi, hafði ekki fengið það að erfðum, hafði aldrei verið krýndur, en naut samt einna mestrar lýðhyili af öll- um konungum heimsins. Það sem flestir veittu þegar eptirtekt, þrátt fyrir manngrúann, var flokkur stæltra og stæðilegra lögregluþjóna, sem báru stóra, græna stjörnu á erminni, sem merki þess, að þeir töluðu esperantó, reiðubún- ir til að svara hverri spurningu, sem að þeim var rétt, og vísa þeim veg, er þess óskuðu, og voru þeir undir ýmsum kring- umstæðum hjálparhellur fundarmanna með- an á fundinum stóð, þá er upplýsinga þurfti að leita; en auk þess báru um 1000 esperantistar, búsettir 1 Dresden, sérstakt merki, svo jafnan mátti þekkja þá úr, sem kunnugir voru 1 bænum. Hinn vfð- áttumikli bær var allur fánum skrýddur, hvert sem litið var blöktu flögg og al- staðar' hafði »Vonarstjarnan« heiðurssæt- ið; á einu húsi t. d. hengu 27 flögg út um glugga, þar af helmingur esperautó- flögg. Allur bærinn bar það með sér, næstum hvert andlit bar það með sér, að hér vóru aufúsu gestir á ferð. Verzlanir, hótel, listleikahús og önnur samkomuhús höfðu látið prenta auglýs- ingar á esperantó og festa upp á götu- hornum, og þar stóðu gamlir og æruverð- ir gráskeggir borgarinnar, sem með bæj- arins velferð fyrir augum gjarnan vildú vita, hvað auglýst væri opinberlega; þeir lásu og lásu, en skildu ekki eitt orð, og þótti súrt í brotið, því til þessa dags höfðu menn látið sjer nægja móðurmálið til auglýsinga í Dresden. Á strætum og gatnamótum var engan frið að hafa fyrir augiýsingum og flug- ritum: allir vildu ná 1 viðskipti ferða- mannanna. En brátt urðu menn þess varir, að þeir voru ekki fáir útsölustað- irnir í bænum, þar sem esperantó var talað, og var það auglýst með stóru letri 1 gluggunum, enda varð það að samn- ingi með mönnum, að láta þá njóta við- skiptanna, að svo miklu leyti sem unnt var, öðrum frekar. Um morguninn voru guðsþjónustur í tveim stærstu kirkjum borgarinnar, bæði lúterskri og katólskri, sem fóru að öllu leyti fram á esperantó. Daginn notuðu menn til að sjá sig um í bænum, skoða hinar merkustu bygging- ar, söfn o. s. frv., nema 1 tíma um eftir- miðdaginn, er menn komu saman til að velja fulltrúa, einn frá hverri þjóð, til að flytja ræðu daginn eptir, þá er fundurinn skyldi hefjast. Um kvöldið var stór fundur til að gefa borgarbúum þeim, sem enn ekki höfðu kynnt sér málið, tækifæri til að fræðast: nokkuð um það. Þar talaði prófessor A. Schmidt á þýzku um: »Hvers vegna er esperantó mál framtíðarinnar ?« Og svo var aðsóknin mikil að fundinum, að marg- falt voru þeir fleiri, sem frá urðu að hverfa, en hinir, sem inn komust. Fyrir esperantista hélt söngfélagið »Esperantó« í Dresden stóran og fjölbreyttan samsöng, en á eptir tóku menn að skeggræða um »heimsins gagn og nauðsynjar«, svo að* alláliðið var orðið, þá er gengið var til hvílu, þótt þreyttir væru flestir eptir ferða- lagið og fyrir dyrum stæði, snemrna næsta morguns, höfuð-viðhafnarhátíð fundarins.. (Frh.). Kosningin í Suður- Múlasýslu. Merkur maður þar eystra ritar 26. f. m.. um hana meðal annars á þessa ieið : »Það er enginn vafi á því, að andstæð- ingar frumvarpsins eru hér 1 meiri hluta, þótt kosningarnar féllu svona. Það eru til þess ýmsar orsakir, þar á meðal og einna helzt það, að sumir af okkar mönn- um hér á tjörðunum voru svo blindaðir, að þeir gátu ekki fengið sig til að kjósa Svein Ólafsson fyrir þá sök, að hann er ekki með þvl, að banna algerlega hvala- veiðar hér við land. Þetta er auðvitað eitt hið mikilsverðasta mál fyrir útgerð- armenn, því við erum allir sannfærðir um það, að hvaladrápið hér við Austur- land eyðileggur fyrir okkur síid- og fiski- veiðar, hvað sem hinn háttvirti fiskifræð- ingur okkar segir um þaðmál; hann hef- ur ekki, frekar en við, lifað með fiskin- um í sjónum, svo hann geti sagt um það, hvaða áhrif það hefur á fiskigöngur, þeg-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.