Þjóðólfur - 22.01.1909, Page 1

Þjóðólfur - 22.01.1909, Page 1
61. árg. ])4r Ungraenni og aðrir áhuga- menn, sem láta sér ekki á sama standa, hvernig allt veltisi, og ekki eru enn blindir orðnir af' gömlu (lokksofstœki, œttu ekki að vera lengi að hugsa sig um, hvaða blað þeir eiga að kaupa. Lesið auglgsinguna um vildarkjörin, sem ngjum kaupend- nm Pjóðólfs eru boðin i 1. tölubl. hans þ. á. Þingið — ráðherrann — stjórnin. Fyrsta vetrarþingið, er háð hefur verið hér á landi, hefst að rúmum 3 vikum liðnum. Sá þingtími verður hentugri ýmsum, er þar eiga sæti, heldur en há- sumartíminn, sérstaklega þó bændum, auk þess sem flestum eru eðlilegri inni- setur og bókleg störf að vetrarlagi, en 1 blíðviðrum á sumrum. Nú er samgöng- um einnig orðið svo háttað, að engir erfið- leikar eru á því, að komast á þing eða af þingi fyrir þá, sem fjarri Reykjavík búa, þótt þingið sé haldið um þetta ieyti árs. Aður hefðu engin tök verið á því, vegna samgönguleysis. En vetrar- þingin verða nokkru dýrari en sumar- þingin, sérstaklega vegna hitunar á þing- húsinu, og ef til vill dýrari skripta. Hins- vegar ætti ferðakostnaður þingmanna ekki að verða hærri en áður, því að allur þorri þeirra, sem búa utan Réj'kjavíkur, geta notað skipaferðir á þing og af þingi, og það verður ódýrara heldur en landferðir sumra þingmanna áður. Það er á ferða- kostnaðarreikningunum, er þingmenn bú- settir utan Reykjavíkur hafa »þénað« of- urlítið að undantörnu, þv( að af 6 kr. •dagpeningum verður enginn ofhaldinn. Það er í raun réttri afarKtil borgun, eptir þeim kröfum, sem nú eru gerðar, og eptir því hversu allar lífsnauðsynjar hafa stór- kostlega hækkað ( verði. Það var allgóð horgun fyrir 20 árum, en nú ekki. Með þvl að þingið hefst 15, febrúar, •og á að standa að minnsta kosti 8 vikur, ef allt fer með felldu, getur því ekki erðið slitið fyr en um 12. apríl, en það er 2. í páskum. I’áskavikan (4.—11. apríl) fellur á síðustu viku þingsins, og með þv( að þingfundir verða tæplega þá viku, verð- nr að lengja þingttmann að minnsta kosti sem því svarar', eða til 20. apríl. Annars er sennilegt, að vetrarþingum veiti ekki af að standa frá miðjum febrúar til aprtl- loka, og það mun hafa verið tilgangur þingsins, er það ákvað samkomudaginn 15. febrúar, þv( að hefði verið ætlazt til, að það stæði 8 vikur réttar, mttndi samkomuttminn hafa verið ákveðinn fyr, t. d. 1. febrúar, þV( að þá hefði páska- helgin að jafnaði fallið að þinglausnum. Sumir hafa spáð þv(, að þetta þing, sem nú kemur saman, muni skamma setu eiga, og mttni ef til vill verða rofið rétt eptir þingsetninguna. En slíkir spádómar ná engri átt að vorum dómi. Að senda þingið heim aptur jafnskjótt sem það Reykjavík, föstudaginn 22. janúar 1909. kemur saman og láta þegar fara frara nýjar kosningar með þingi í sumar, mundi mælast svo illa fyrir, að sá ráð- herra, sem þess yrði valdandi, gæti ekki gert sér von um nokkurt fylgi við nýjar kosningar. Að Hannesi Hafstein muni detta sú fásinna í hug, tekur ekki nokkru tali, enda væri það slíkt ofbeldi, er þjóðin öll mundi rísa öndverð gegn. Vér höfum ávallt litið svo á, að það það lægi í hlutarins eðli og leiddi alveg af sjálíu sér, eptir kosningaúrslitin í sum- ar, að Hannes Hafstein legði niður völdin í byrjun þings, öldungis sjálfkrafa, án þess frumvarpsandstæðingar þyrftu að minna hann á það. Hann þarf slíkrar áminn- ingar ekki við, og þægilegra að vera laus við hana. Honum er eflaust fullljóst, hvað þingræði er, og hverjar s k y 1 d u r hann hefur gagnvart þjóð sinni, sem fyrsti ráðherra landsins; að verða ekki fyrstur tii að misbjóða þingræðinu. Þeir sem gruna Hannes Hafstein um slíkt, verða naumast sannspáir að því. Og þeir sem kynnu að stæla hann upp i því, vinna honum mikið óþurftarverk, gera á honum skemmd- arverk, sem seint verður bætt. Og þrátt fyrir allt er hann þó ofmætur maður til þess, að láta hina og þessa pölitiska ang- urgapa leiða sig út í ófæru. I þessu sambandi skiptir það litlu eða engu, hvort H. H. fær nokkrar ívilnanir eða breytingar hjá Dönum á sambands- lagatrumvarpinu, því að enda þótt breyt- ingar þessar væru svo víðtækar, sem eng- inn væntir, að frumvarpsandstæðingar gætu fallizt á þær, þá yrði H. H. engu slður að fara frá völdum nú, með því að þann úrskurð felldi þjóðin með kosning- unum í haust gagnvart hinni harðsnúnu baráttu hans fyrir sambandslagafrum- varpinu öldungis óbreyttu, eins og það kom frá nefndinni. Á því féll hann svo greinilega, sem nokkur ráðherra getur fallið, og það fall verður ekki að engu gert eða úr því bætt, þótt Danir gefi nú vonir um einhverjar ívilnanir eptir á, þá er fullséð er, að Islendingar vilja ekki líta við þessu, sem allra náðarsamlegast átti að gæða þeim á. Þvl er meira að segja svo háttað, að afstaða H. H. gagnvart breytingum á frumvarpinu nú, verður 1 rauninni harla kynleg, og nán- ast fremur óþægileg fyrir sjálfan hann, eptir allt kappið ( sumar. Og þv( fer svo fjarri, að þetta geti orðið nokkur valda-bjarghringur fyrir hann, að það er jafnvel undarlegt, ef hann hyggur frum- varpsandstæðinga svo glámskyggna, að hánn geti villt þeim sýn með einhverju lítilsháttar breytingakáki, sem vitanlega verður hvorki heilt né hálft. Danir bjóða oss ekki að fyrra bragði þau boð, er aðgengileg geti verið í þessu máli. Það þarf enginn að ætla. Og boð þau, sem þeir kynnu nú að bjóða, standa auð- vitað óhögguð, hver sem ráðherrann verð- ur. Engum óvitlausum manni geturdottið < hug, að Danir gefi oss kost á betri kjörum að eins með því skilyrði, að Hannes Haf- stein sitji kyr að völdum, en annars ekki! Þeir sem kröfðust þess, að H. H. legði niður völd þegar eptir kosningarnar, höfðu að vfsu mikið til síns máls, þvl að það hefði eflaust verið réttast, að hann hefði gert það þá, en eins og Þjóðólfur hefur áður tekið fram, mátti vel við það una, að ráðherrann biði þingsetning- a r, og tilkynnti þá brottför slna fyrir þingheimi öllum, ótilknúður frá þingsins hálfu. Það ætti bezt við, og mundi verða báðum málsaðilum, þinginu og ráðherra, þægilegast. Þyrfti þá til engra hörku- bragða að koma á hvoruga hlið, og ráð- herrann héldi sæmd sinni fullri gagnvart þjóð og þingi, þjóðræði og þingræði. En annars kostar gæti til harðræða horft og ýmissa óþæginda, er gæti haft athuga- verðar afleiðingar í för með sér, og væri því betur, að hjá því yrði sneitt í tíma. En þótt ráðherrann segði af sér í þing- byrjun, mundi hann gegna ráðherrastörf- um á þingi og utan þings, þangað til nýi ráðherrann væri skipaður af konungi og og tæki við embættinu. Það er síður en svo, að nokkur verði I öfundsverður af því að setjast í ráðherra- sessinn á eptir H. H. Það verður enginn ofsæll af því, ekki svo mjög vegna þess, að aðra skorti svo marga hluti á við H. H. til að standa jafnvel í þeirri stöðu, heldur vegna ástandsins 1 landinu, hversu ískyggilegt það er á marga lund, svo að það hetur naumast nokkru sinni lakara verið á síðustu áratugum. Það er mikill munur á því, að taka nú við stjórn lands- íns, eða var 1904, þá er H. H. tók við. Vitanlega verður stjórninni ekki einvörð- ungu kennt um ástandið, eins og það er. Það er margt, sem hún hefur ekki getað ráðið við, þótt hún hefði viljað, en vitan- lega hefði hún getað verið nokkru ráð- I settari og gætnari, en hún hefur reynzt; hefði þá ekki verið krækt upp ýmsu hrófatildri, sem ekki stóð á tryggri undir- undirstöðu, heldur meira og minna í lausu lopti. Og fer svo jafnan í fyrirhyggju- litlu framfarabraski og busli, þá er mest er um það hugsað, að spenna bogann sem hæst, án tillits til þess, hvort fram- kvæmdirnar séu í raun réttri hagkvæmar, og farsælar fyrir þjóðina í framtíðínni. En það skal enginn ætla, að ný stjórn kippi því öllu eða flestu í lag, er aflaga hefur farið á slðustu árum, eða geri nokk- ur furðuverk í því, að ráða fram úr þeim vandræðum, sem nú eru fyrir hendi. Hlut- verk þeirrar stjórnar verður, að reyna að gæta þess, að ekki snarist alveg yfir um á landsjóðsdróginni, að láta ekki allt of mikinn baggamun verða milli tekna og útgjalda, en það er hægra sagt en j gert, eptir þvf sem í haginn er búið, eptir alla þá skóla og öll þau embætti, er stofn- uð hafa verið, að stórfyrirtækjum sleppt- um. Nú er svo komið, að það er ekki lengur unnt að spara, eyðslan verður að halda áfram og aukast með ári hverju. Það er ekki efnilegt, en svona er því hátt- að. Og svo er hrópað á þingið, að það eigi að bjarga öllu við, sem óhagsýn stjórn, og óviðunanlegt bankafyrirkomu- lag, hefur komið í kreppu. En þingið hefur svo fá ráð í höndum til þess, t. d. ( bankamálum. Eða hvernig verður ætl- azt til þess, þá er hlutaðeigandi stofnanir gera ekkert og þykjast ekkert geta gert, engan veg sjá til að ráða bót á ástand- inu. Það verður allt að fara niður fyrir bakkann þeirra vegna. Bankarnir geta ekki og vilja ekki við því sporna. Og meðan þingið er að hugleiða, hvað gera þurfi til að hjálpa atvinnuvegum landsins, svo að allt fari ekki í kaldakol, og hamla fólkinu frá brottflutningi, þá er verið að berjast fyrir því með hnúum og hnefum, að svipta landsjóð stærsta tekjuliðnum, vínfangatollinum, og koma kvennfólki inn á alþing, svo að það geti nú farið að »gera graut« í pólitfkinni. Þetta er helzta ráðið til viðreisnar landinu(l). 4. M sainheldni er sigurs m Kosningar þær, sem fram fóru síðasl. haust, sýndu svo skýran og eindreginn vilja þjóðarinnar f sambandsmálinu, sem þær aðallega hafa snúizt um, að ákveðn- ara svar mun hún naumast hafa gefið nokkurntíma fyrri, og má það þó nærri undrum sæta, hve hún hefur ratað þar rétta leið ( gegnum það moldviðri, sem þyrlað var upp og hún hafði að feta sig 1 gegnum. Svarið er með öðrum orðum þetta; Sambandslaganefndin — meiri hlut- inn — hefur brugðist mér: hún hefur gengið inn á þá samninga, sem eg álít blindsker ein ; henni og hennar flokki get eg því ómögulega treyst til að halda fram mínum fulla rétti, sem eg vil engan veginn gefa eptir. Þessvegna hlýt eg að skipta tim fulltrúa og taka þá eina, sem skýrust loforð hafa gefið að halda mín- um rétti fram til fullkominnar sjálfstjórn- ar í öllum mínum málum. Þetta svar gaf þjóðin 10. september 1 haust, eins og kunnugt er, með því að kjósa yfirgnæf- andi meiri hluta frumvarps-andstæðinga. Nú hefur þjóðin gert hreint fyrir sínum dyrum, hún hefur sagt sinn ákveðna vilja, meira getur hún ekki gert að sinni. Þá kemur til þingmanna kasta, hvort þeir geti sýnt, að þeir séu verðir þess trausts, sem hún hefur veitt þeim, hvort þeir séu færir um að halda saman sem einn mað- ur 1 þessu máli, gagnvart útlenda vald- inu, og láta nú ei villa sér sýn á réttu máli, né flokkinn klofna af sundurlyndi sín á milli, því þá er ósigurinn vís og úlfurinn stendur reiðubúinn til að gleypa hvern þann, sem út úr fylkingunni hrökkl- ast. Nei, þjóðin vonar, að eins og hún hefur einum rómi neitað þvf, að nokkuð af málum hennar væri gefið útlendu valdi í hendur, um aldur og æfi, eins verði meiri hluti hinna nýkosnu þing- manna samtaka sem einn maður, að upp- fylla vonir þjóðar sinnar af fremsta megni. Snorri Vestfirðingur. Miinpr Ijrir l-i áim Smápistlar eptir M. J. III. I Svefneyjum bjuggu þá þeir feðgar Eyjólfur dannebrogsmaður og Hafliði. Voru þeir þá helztir bændur f öllum Breiðafirðii Var Ej'jólfur fornmaður í skapi og ýmsum háttum, harðlyndur og óvæginn, en drengskaparmaður, ef hann mátti ráða, heilráður og trúfastur í lund. Hef eg nokkuð minnzt á þetta mikil- menni áður í þessu blaði, enda er enn til af honum allmikil saga í Breiðafirði; erfði hann forræði bænda í Breiðafirði eptir hina gömlu Hergilseyinga, einkum Eggert ólafsson, -j- 1819, er saga er til af eptir Gísla Konráðsson, Hann byggði fyrstur f Hergilsej', er verið hafði óbyggð að sögn frá dögum Gísla Súrs- sonar, þá er Börkur hinn digri gerði af

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.