Þjóðólfur - 12.03.1909, Side 1
61. árg.
Reykjavík, föstudaginn 12. marz 1909.
M 1 1.
V erkf æravélar
og- smíðatól.
Fd. á I. Sckál,
1 Kjöbenhavn. Gl. Kongevej 1D.
Seyðisjjarðar-kosningin.
Séra Björn Þorláksson kosinn.
Dr. Valtýr Guðmundsson fallinn.
Svo fóru leikar við þingkosninguna á
Seyðisfirði 9. þ. m., að kosningu hlaut
séra Björn Þorláksson
á Dvergasteini með 67 atkv.
Dr. Valtýr Guðmundsson fékk 54 atkv.
og 8 atkvæðaseðlar urðu ógildir. Kosn-
ingin 1 þetta sinn er því ótvíræð, og
þingmennsku dr. Valtýs lokið um sinn.
Hefur hann haft miklar áhyggjur og mikil
umsvif út af þessu öllu saman, og allt
árangurslaust. Og liggur við, að honum
sé vorkunn að verða fyrir jafnsárum von-
brigðum og hrakföllum. Hann hefði átt
að halda þetta pólitiska bindindi, er hann
þóttist genginn í næstl. sumar, er hann
hröklaðist úr Gullbringu- og Kjósarsýslu,
og hefði hvergi átt að bjóða sig fram.
En nú er sannarlega ver farið en heima
setið, og ætti þetta að vera næg áminn-
ing tyrir hann að hugsa ekki til þing-
mennsku hér fyrst um sinn, og snúa nú
bakinu við íslenzkri pólitík, en fara að
leggja meiri stund á vísindaiðkanir sínar
sem danskur embættismaður, eins og hann
sagði fregnrita »Politiken« í sumar, að
hann ætlaði að gera. Hefðihinn pólitiski
skjöldur hans verið hreinni og fágaðri en
hann er, og þar hefðu verið færri svartir
blettir frá liðnum árum, þá mundi dr. V.
ekki hafa orðið jafnhart úti, eins og hann
nú liefur orðið, svo að þetta eru að nokkru
leyti sjálfskaparvíti, en þau svíða optast
sárast. Annars virðist oss, að hinir gömlu
flokksmenn hans — Þjóðræðismenn —
hafi tekið á honum fullhörðum höndum,
■en þeim, sem stöðugt hafa barizt gegn
pólitík Valtýs frá upphafi vega, eins og
t- d. ritstjóra þessa blaðs, getur auðvitað
ekki þótt öðruvísi en vænt um, að augu
hinna áköfustu fylgismanna hans hafa
loksins opnazt fyrir réttri og heilbrigðri
skoðun á pólitiskri starfsemi dr. Valtýs
Guðmundssonar fyr og síðar, því að betra
er seint en aldrei.
Síðan dr. V. varð þingrækur, hefur
hann dvalið á Seyðisfirði, og er sagt að
»Prospero« hafi beðið kosningaúrslitanna
þar 2 daga, til þess að flytja doktorinn
til Reykjavíkur sem nýkjörinn þingmann.
En þar fór allt á annan veg. Nú verður
það kjörbréf séra Björns, sem skipið flyt-
ur hingáð. Séra Björn hefur haldið kyrru
fyrir hér syðra síðan í þingbyrjun. Verð-
ur miklu ánægjulegra fyrir hann að taka
nú sæti á alþingi, eptir þennan sigur á
doktornum, heldur en áður hefði verið
með nokkuð tvísýnum rétti, að sumra
áliti. En nú verður réttur hans til þing-
setu ekki rengdur, og var kosning hans
samþykkt í sameinuðu þingi í gær sam-
kvæmt símuðu bráðabyrgðar-kjörbréfi.
Frumvarpsandstæðingar á þingi verða
því 25 eptir þessa kosningu. Hinir 15
að hinum konungkjörnu meðtöldum. Hlut-
fallið s/8 (frumvarpsandstæðingar) og 3/s
(frumvarpsmenn). Frumvarpsandstæðingar
hafa einmitt */4 hluta þingsins (10 þing-
menn) umfram hina. Það æ 11 i að vera
góður meiri hluti, ef samhent forræði,
samúð og samheldni fylgdist að í þeirri
sveit.
Alþing’i.
IV.
Varabisknp.
Nefndin 1 því máli hefur klofnað.
Meiri hlutinn (Sig. Gunn. og Egg. Páls-
son) vilja samþ. frv. og láta kalla hann
vígslubiskup, en minni hlutinn (J. Þork.)
vill fella það, og kemur með frv. um
að endurreisa
Hólabiskupsdæmi
og láta biskup þar hafa 4000 kr. laun.
En þar til það fyrirkomuiag kemst á, vill
hann láta vera tvo officiales sinn í hvoru
biskupsdæmi, er nefnast vígslubiskupar
og skulu þeir vera kosnir af prestum og
hafa biskupsvígslu.—Hólabiskup felldur i
Nd. í fyrra dag, við 2. umr., en tveir
officiales samþykktir. — Frv. um einn
varabiskup því 1 raun réttri fallið. —
Varabiskupsnefndin flytur frv. um að land-
sjóður kaupi
Skálholt
jafnskjótt og sú jörð íæst til kaups.
Fræðsla barna.
Dr. Jón Þorkelsson flytur frv. um breyt-
ing þeirra laga frá 22. nóv. 1907. Vís-
að til kennslumálanefndar.
Fiskiveiðar á opnmn skipnm.
Jón Magnússon flytur frv. um, að á-
kvæði laga 14. des. 1877 og 10. nóv.
1905 nái einnig til þiljaðra mótorbáta,
sem gangi í Vestmannaeyjum, og eru ekki
stærri en 15 smálestir.
Fuglaveiðnsamþykkt i Vestmannaeyjum.
Jón Magnússon flytur frv. um breyting
þeirra laga 13. apríl 1894.
Báðlierra-eptirlann.
Frv. þeirra dr. Jóns Þork. og Bjarna
frá Vogi, er getið var um í 9. tbl. Þjóð-
ólfs, hefur komið fram í breyttri mynd
og er nú farið fram á, að eptirlaun ráð-
herrans verði 1000 kr. og megi ekki
hærri vera.
Kornforðabúr til skepnufóðurs.
Frv. flytja Sig. Sigurðsson og Þorleifur
Jónsson, er heimila sýslunefndum að
gera samþykktir fyrir einn hrepp eða
fleiri innan sýslu viðvíkjandi korntorða-
búrum til skepnufóðurs.
Sala kirkjujarða.
Stef. Stefánsson (Eyf.) flytur breyting
við þau lög 16. nóv. 1907, um að heim-
ild ráðherrans skuli einnig ná til hjá-
leigna þeirra, sem eru sérstakt ábýli.
Lögg'ildingr verzlunarstaða
við Skaptárós og Kúðaós flytur Gunnar
Ólafsson. — Nefnd: Gunnar Ól., Ág.
Fl. og Sig. Stef.
Klettsvík í Neshreppi innan Ennis. Flm.
Sig. Gunnarsson.
Hjallanes í Staðarfellslandi og Skarfs-
staðanes við Hvammsfjörð. Flm.: Bjarni
frá Vogi og Ben. Sveinsson.
Skipun læknabéraða.
Skúli Thoroddsen vill skipta Isafjarðar-
læknishéraði í tvö læknishéruð: Isafjarð-
arhérað og Nauteyrarhérað.
Viðaukatillaga frá Eggert Pálssyni og
Einari Jónssyni um, að stofnað verði sér-
stakt læknishérað, er nefnist Eyjafjalla-
hérað, og nái yfir Eyjafjöll og Landeyj-
ar, og sé læknissetur sem næst Markar-
fljóti.
Nýtt læknishérað, er nefnist Norðfjarðar-
hérað, vilja þeir fájón Jónss. S-M. ogjón Ól.
Kosningarréttur og kjörgengi.
Skúli Thoroddsen flytur frv., er fer
fram á, að ákvæði laga 22. nóv. 1907, að
því er kemur til kosningarréttar og kjör-
gengis o. fl. í bæjarmálum í Reykjavík
og Hafnarfirði skuli og gilda í öðrum
kaupstöðum landsins, sem og 1 hrepps-
félögum hér á landi. Vinnuhjú skulu og
hafa kosningarrétt, ef þau að öðru leyti
fullnægja þeim skilyrðum, sem þar eru
sett, að þvl er snertir karla og konur,
sem eigi eru öðrum háðir sem hjú.
Prentnn Þingtíðindanna.
Björn Jónsson, Björn Kristjánsson, Hálf^
dan Guðjónsson, Sig. Gunnarsson og
Bjarni Jónsson flytja frv. um að nema 49.
gr. Þingskapanna úr gildi, er fyrirskipar
prentun Þingtíðindanna. — Nefnd: Björn
Jónss., Jón Ól. og Bjarni Jónss.
Bankavaxtabréf.
Eiríkur Briem flytur frv. um, að veita
landsbankanum heimild til að gefa út
þriðja flokk (seríu) bankavaxtabréfa. Nefnd:
Gunn. Ól., Eir. Br., Ari Jónss.
Úrskurðarvald sáttanefnda.
Frv. frá nefndinni um verzlunarmál og
atvinnumál.
1. gr. í skuldamálum, er nema eigi
meiru en 50 krónum, skal sáttanefnd, ef
skuldheimtumaður krefst þess, kveða upp
fnllnaðarúrskurð :
a. Þegar kærði þrátt fyrir löglega birt-
ingu fyrirkallsins mætir ekki og sátta-
nefndin hefur eigi ástæðu til að ætla, að
hann hafi lögleg forföll, er hindri hann
frá að mæta eða láta mæta fyrir sig.
b. Þegar skuldunautur eptir áskorun
sáttanefndar um að gefa skýlaus svör um
skuld þá, sem hann er krafinn um, við-
urkennir afdráttarlaust, sð hann sé skyld-
ur að borga hana, eða skrifleg viður-
kenning liggur fyrir, en hann vill þó eigi
sættast, eða eigi er auðið að koma á
sætt milli málsaðila um aukaatriði, svo
sem borgunartíma, vexti og þóknun til
skuldheimtumanns fyrir ómök og kostnað
við málið.
Sáttanefndin ritar í sáttabókina og les
upp fyrir málsaðilum kröfur skuldheimtu-
manns, viðurkenning skuldunauts og mót-
mæli hans, svo og sáttaboð þeirra beggja.
2. gr. Ákvæði 1. gr. gilda þó eigi:
a. Þegar skuldheimtumaður hefur, til
að tryggja kröfu sína, beitt kyrsetning
eða banni, sem mótmælt er af skuldu-
naut.
b. Þegar fleiri en einn hafa verið
kærðir fyrir sáttanefndinni um sömu
skuld, og allir kannast eigi við að hún
sé rétt.
Þjóðjarðir.
Björn Kristjánsson vill veita ráðherran-
um heimild til að selja ábúendum jarð-
irnar Hólm og Lambhaga í Kjósarsýslu.
Fellt í nd. í fyrradag.
Sóknargjöld.
Flm.: Jósep Björnsson, Stgr. Jónsson og
Aug. Flygenring. Nema skal úr gildi
bæði preststíund og kirkjutíund af fast-
eign og lausafé o. s. frv., en í þess stað
skal hver maður, sem er 15 ára að aldri,
hvort heldur er karl eða kona og telst
til þjóðkirkjunnar, greiða 1 kr. 50 a. ári í
prestlaunasjóð. En jafna skal niður á
hvern mann, sem er 15 ára eða eldri,
kirkjugjöldum. — Allir teljast til þjóð-
kirkjunnar nema þeir, sem eru í því
kirkjufélagi, er hefur prest eða forstöðu-
mann, sem hefur fengið konungsstaðfest-
ingu.
Hæstiréttnr.
Jón Þorkelsson flytur frv. um, að stofna
hæstarétt í Reykjavlk. Skulu þar vera
dómstjóri með 5,500 kr. launum og 4
meðdómendur með 3,600 kr. byrjunar-
launum, er hækka um 400 kr. á hverj-
um 4 árum, þar til þau eru orðin 4,800
kr. — Enginn getur orðið dómandi nema
hann hafi tekið lagapróf með 1. eink. —
Þegar lög þessi ganga 1 gildi, skallands-
yfirrétturinn lagður niður.
Gagnfræðaskóliun á Akureyri.
Stefán Stefánsson kgk. þm. flytur frv.
um, að kennarar skólans verði 4: skóla-
meistari roeð 3000 kr. launum, fyrsti
kennari 2,200 kr., annar 2,000 kr. og
þriðji 1,800 kr. Nemendur, sem hafa
heimavistir, skulu greiða 5 kr., en allir
aðrir nemendur 1 kr. árlega í skólasjóð,
er varið skal skólanum til stuðnings og
eflingar,
Kennaraskólinn.
Sig. Sigurðsson flytur þá breytingu við
lög hans, að námstími skuli byrja fyrsta
vetrardag og enda síðasta vetrardag.
Gfedveikrahælid.
Jón Magnússon flytur frv. um, að við
geðveikrahælið skuli skipa sérstakan lækni
með 2,700 kr. launum, auk ókeypis bú-
staðar, eldsneytis og ljósmetis. Auk lækn-