Þjóðólfur - 07.04.1909, Qupperneq 1
61. árg.
Alþingi.
vm.
rjárlagr»frnmTarpið
var afgreitt frá neðri deild á laugar-
daginn var og skal hér getið helstu breyt-
inganna, sem orðið hafa á frumvarpi
stjórnarinnar í meðförunum í neðri deild.
Tekjuhallinn á næsta fjárhagstímabili
er nú áætlaður í frumvarpinu 360 þús.
kr. eða 12 þús. kr. meiri heldur en í
frumvarpi stjórnarinnar. í rauninni hefur
deildin þó farið lengra heldur en þetta
fram úr stjórninni 1 kröfunum til lands-
sjóðs, því að útgjöldin eru nú allsáætluð
á fjárhagstímabilinu 3 milj. 15 þús., eða
54 þús. kr. hærri heldur en i stj.frv. Að
tekjuhallinn er samt ekki meiri kemur til
af því, að tekjuáætlunin hefur jafnframt
verið hækkuð um 42 þús. kr. (ábúðar- og
lausafjárskattur um 6 þús., húsaskattur
um 2 þús., pósttekjurnar um 10 þús. og
óvissar tekjar um 24 þús. kr.). Ennfremur
hafa ýmsar fjárveitingar verið fluttar úr
fjárlögunum yfir i fjáraukalög 1908—
1909, enda hafa útgjöldin i þeim hækkað
í neðri deild um 36 þús., upp i 170
þús. kr.
Greiðslur vaxta og afborgana af “/2 milj.
kr. láninu, sem tekið var úm áramótin
siðustu hjá ríkissjóði Danmerkur, eru hækk-
aðar um nærri 15 þús. kr. á næstu 2 ár-
um, en fara síðan lækkandi, i stað þess
að í stj.frv. var gert ráð fyrir jöfnum
greiðslum á ári allan afborgunartfmann.
Útgjöld við læknaskipunina hafa verið
hækkuð um 15 þús., svo að þau verða
nærri 200 þús. kr. Styrkur til sjúkrahúsa
og sjúkraskýla hækkaður um helming, úr
1500 kr. upp i 3000 kr. og bætt við 3
nýjum fjárveitingum, 10 þús. kr. síð. árið
til reksturskostnaðar heilsuhælisins á Víf-
ilsstöðum, 2000 kr. f. á. til aðgerðar
sjúkrahússins á Akureyri með því skilyrði,
að Akureyrarkaupstaður og Eyjafjarðar-
sýsla taki að sér að fullu viðhald spítal-
ans framvegis, og 1500 kr. utanfararstyrk
f. á. handaAndrési héraðslækni Fjeldsted
til að fullkomnast í augnlækning og eyrna.
Útgjöldin til samgöngumálanna hafa
verið færð niður um 1372 þús. Þau eru
áætluð alls 1 milj. 65 þús. kr.
Útgjöld til vegabóta eru hækkuð um
rúml. 30 þús. kr., upp 1 rúml. 280 þús.
kr., 10 þús. kr. fjárveiting síðara árið til
Reykjadalsbrautar er flutt yfir á fjárauka-
lög til þess að koma sem fyrst brú á
Laxá, og sömul. 10 þús. kr. til Grímnes-
brautarinnar, en f. á. er bætt við í fjár-
lögunum 11 þús. kr. fjárveitingu til Hún-
vetningabrautar frá Blönduósi vestur að
Vfðidalsá. í burtu er felld 4000 kr. veit-
ing f. á. til þjóðvegar á Völlum í Suður-
Múlasýslu, en bætt við 10 þús. kr. f. á.
til brúar á Laxá f Hornafirði og 5 þús.
kr. slð. á. til þjóðvegar frá Laxá að Bjarna-
nesi, ennfremur 1000 kr. f. á. til þjóð-
vegar frá Ljárskógum tjl Svínadals, og
hækkuð veiting til annara þjóðvega um
5 þús. kr. í því skyni, að fjölgað verði
Reykjavík, miðvikudaginn 7. apríl 1909.
JHS 15.
vörðum á Þorskafjarðarheiði og bætur
verði gerðar á veginum milli Þingvalla
og Geysis. Þá vill n.d. veita 300 kr. hv.
á. til uragferjuhalds á Lagarfljóti, 5000
kr. f. á. til Hvammstanga kaupstaðarvegar,
2000 kr. f. á. til akvegar frá Dalvík inn
Svarfaðardal, 2000 kr. f. á. til Breiðdals-
vegar, 4500 kr. til brúar á Hölkná í Þistil-
firði og 10 þús. kr. til brúar á Sandá í
Þistilfirði.
Af ritsímafjárveitingum er sleppt 68 þús.
kr. til þess að strengja talsíma milli Borð-
eyrar og ísafjarðar, en inn er sett ný veit-
ing til Siglufjarðartalsíma frá Vatnsleysu
25 þús. kr. gegn 10 þús. kr. tillagi frá
hlutaðeigandi héruðum, og Stykkishólms-
síminn hækkaður um 6 þús. og ætlazt til
að hann verði lagður frá Borgarnesi, en
ekki frá Búðardal.
Útgjöldin til kirkju- og kennslumála
hafa hækkáð um rúml. 8 þús. kr.
Viðbót við eptirlaun fátækra presta og
prestsekkna hefur verið hækkað um 500
kr. á ári upp í 4000 kr.
Við læknaskólann er bætt 300 kr. á
ári, þóknun til Þórðar Sveinssonar fyrir
kennslu f lagalegri læknisfræði, en þókn-
un fyrir aukakennslu á lagaskólanum er
færð niður um 1000 kr. á ári (niður 1
800 kr.).
Styrkur til kvennaskólans 1 Reykjavík
til kaupa á húsbúnaði o. fl. er færður
niður um þriðjung (niður í 2000 kr.).
Ennfremur er annar styrkur til sama skóla
færður niður um 2000 kr. á ári, en styrk-
urinn til kvennaskólans á Blönduósi færð-
ur upp um nálegu 2000 kr. á ári, svo að
þeir eru nú báðir jafnir (hafa 3000 kr.
styrk og 2000 kr. námsstyrk).
Styrkurinn til gagnfræðaskólans í Flens-
borg hefur verið hækkaður um helming
(upp í 7000 kr. hv. á.) og auk þess veitt
nokkurt fé til viðgerðar f. á., og styrkur
til unglingaskóla utan kaupstaða hækkað-
ur um 1500 kr. hv. á.
Loks er bætt við styrk til Ingibjargar
Guðbrandsdóttur til að veita stúlkum leik-
fimiskennslu 480 kr. á ári.
Útgjöldin til vísinda og bókmennta eru
hækkuð um 21 þús. kr. upp í 144 þús.
Styrkur Sigfúsar Blöndals til dansk-ís-
lenzkrar orðbókar er lækkaður um helm-
ing niður í 300 kr. hv. á., og styrkurinn
til Boga Melsteðs felldur burtu síð. á.
Aftur á móti er styrkurinn til Þorsteins
Erlingssonar hækkaður um 700 kr. (upp
í 1500 kr.), til Guðm. Magnússonar um
200 kr. (upp í 800), til Helga Jónssonar
til mýrarannsókna um 300 kr. (upp í 1500).
Ennfremur hefur verið bætt við þessum
nýjum styrkveitingum: 1500 kr. á ári til
Einars Hjörleifssonar, 600 kr. á ári til Guðm.
skálds Guðmundssonar og 300 kr. á ári
til Guðm. Friðjónssonar, 1000 kr. f. á.
til Guðm. G. Bárðarsonar til utanfarar
til jarðfræðisrannsóknanáms, 1500 kr. f. á.
til ísólfs Pálssonar til utanfarar til að afla
sér tekniskrar menntunar, 1000 kr. á ári
til Jóns Ófeigssonar til að gera þýzk-ís-
lenzka orðabók og 1200 kr. á ári til Ein-
ars Jónssonar myndasmiðs.
Útgjöldin til verklegra fyrirtækja eru
hækkuð um 7 þús. kr. 27 þús. kr. fjár-
veiting til byggingar skólahúss á Hólum
hefur verið felld niður, en bætt við 20
þús. kr. byggingarstyrk til Eiðaskólans.
Auk þess hefur verið bætt við nokkrum
fleiri nýjum fjárveitingum: 1000 kr. á
ári til húsmæðrakennslu á Eiðum, 1000
kr. á ári til Jónínu Sigurðardóttur til mat-
reiðsluskólahalds, 2000 kr. á ári til Ung-
mennafélags Islands til íþrótta og skóg-
græðslu.
Alþingiskosningar.
Nefndin 1 því máli í e. d. vill ekki að eins
færa kjördaginn heldur gera líka nokkrar
frekari breytingar á kosningalögunum, að
aukakjörskrá verði samin nokkru síðar
heldur en aðalkjörskrá, ekki fyr en
skömmu fyrir fardaga og hjúaskildaga, og
að þegar svo ber undir, að frambjóðandi
deyr áður en kosning fer fram, en eftir
að framboðsfrestur er liðinn, þá megi
annar bjóða sig fram 1 stað hans, ef helra-
ingur af meðmælendum hins látna eru
honum fylgjandi.
Manntalið 1910.
Jón Þorkelsson flytur þingsályktunartil-
lögu um, að neðri deild alþingis skori á
landsstjórnina, að hún gangist sjálf fyrir
því að taka manntal það, er fram skal
fara hér á landi árið 1910, og geri sjálf
allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess, svo
og að hún sjálf sjái um, að unnin sé úr
þvf allur sá hagfræðislegi fróðleikur, sem
þörf er á, en Hagfræðisskrifstofan (Stati-
stisk Bureau) í Kaupmannahöfn sé upp
héðan leyst af þeim starfa.
(Jnðbrandsbiblía.
Neðri deild samþykkti 5. þ. m. þings-
ályktunartillögu Jóns Þorkelssonar um
hana, er getið var í sfðasta blaði.
Löggilding Viðeyjar.
Agúst Flygenring hefur stungið upp á
að bæta henni við aðrar löggildingar
verzlunarstaða og hefir efri deild fallizt
á það, en málið er ekki komið aptur fyrir
neðri deild.
l'inghlé
vegna bænavikunnar var gert í fyrra
dag og stendur yfir til þriðja í páskum.
Þingmenn,
þeir er eiga heima hér nærlendis hafa
flestir farið heim til sín, sömuleiðis hafa
þeir séra Eggert á Breiðabólsstað og Einar
á Geldingalæk farið austur.
Erlend tíðindi.
Bandaríki Snðnr-Afríkn.
Það hefur óefað verið mjög viturlega
ráðið af frjálslynda flokknum enska, þegar
hann kom til valda, að veita Búaríkjun-
um gömlu, Transvaal og Oranje, sem þeir
lögðu undir sig í Búastríðinu, svo víðtæka
sjálfstjórn sem þær brezkar nýlendur hafa
fengið, er frjálsastar eru, svo sem Kanada,
Ástralía ng Höfðanýlendan (Kapland).
Það virðist svo sem rígurinn gagnvart og
óttinn við Englendinga hafi rénað mik-
ið hjá Búunum hollenzku við þetta, svo
að þeir eru nú miklu fúsari en áður að
blanda reitum slnum saman við þá og
gera félagsskap við þá á grundvelli jafn-
réttisins.
Fyrir nokkru völdu allar sjálfstjómar-
nýlendurnar í Suður-Afríku (Höfðanýlenda
Natal, Oranje og Transvaal) millilanda-
nefnd til að ráðgast um bandalag á milli
nýlendnanna í líkingu við það, sem er í
Kanada ng Ástralíu. Nefnd þessi lauk
störfum slnum fyrri hluta febrúarmánað-
ar og kom með frumvarp til sambandslaga
sem nú verður lagt fyrir þing allra ný-
endnanna, en þau áttu að koma saman
síðast í fyrra mánuði (marz).
Frv. gerir ráð fyrir, að allar nýlendurn-
ar sameinist í bandalag eða bandaríki er
er nefnist Suður-Afríka og lýtur brezka
ríkinu. Stjórnin verður í höndum land-
stjóra með ráðaneyti og þings í tveimur
deildum. Laun landstjóra eiga að vera
180 þús. kr. um árið. Sambandið ræður
yfir öllum þeim málum, sem ekki eru bein-
línis ákveðin sérmál hinna einstöku ný-
lendna, en auk þess getur það bæði þrengt
og fært út sérmálasviðið.
Sérmálum nýlendnanna stjórnar ný-
lendustjóri, sem skipaður er af landstjóra,
með ráðaneyti og þingi. Það ereinkenni
legt, að ráðaneyti þessi eiga ekki að vera
valin at meiri hluta þinganna, heldurmeð
hlutfallskosningu, svo að í stjóm nýlendn-
anna verða æfinlega menn úr ýmsum
pólitiskum flokkum.
Það sem nefndin átti örðugast með að
verða sammála um, var hver skyldi verða
höfuðborg sambandsríkisins, því að allar
nýlendurnar vildu gera sína höfuðborg að
aðalhöfuðborg. Loks varð endirinn sá, að
málum var miðlað, þannig að stungið var
upp á að láta sambandsstjörnina sitja í
Pretoriu (í Transvaal), en sambandsþingið í
Höfðaborg og hæstarétt í Bloemfontein (í
Oranje), en annars átti að bæta höfuðborg
unum í Oranje og Natal skaðann með því
að borga fyrir þær nokkurn hluta af skuld-
um þeirra.
Bæði málin, enska og hollenzka, eiga að
verða jafnrétthá í sambandsríkinu.
í öldungadeildinni eiga að sitja 8 kjörn-
ir menn úr hverri nýlendu (valdir af þing-
inu og stjórninni þar) og 8 menn valdir
af landstjóra til 10 ára. Þó deildin sé
nefnd öldungadeild þurfa meðlimir henn-
ar ekki að vera eldri en 30 ára. í full-
trúadeildinni eiga setu 121 fulltrúar og er
þeim skift á milli nýlendnanna í hlutfalli
við tölu fullorðinna karlmanna af Norður-
álfuættum, en það fer eftir löggjöfinni í
hinum einstöku nýlendum, hvort innfædd-
ir menn fá að taka þátt í kosningunum
(enn sem komið er er það einungis í
Höfðanýlendu). Fyrst um sinn er ákveð-
ið, að 51 þingmenn verði frá Höfðaný-
lendu, 17 frá Natal, 17 frá Oranje og 36
frá Transvaal. Ef deildirnar verða ekki
sammála kemur málið f sameinað þing og
ræður þá afl atkvæða.
Frv. þessu hefur yfirleitt verið tekid
mjög vel, neroa 1 Natal virðist vera tölu-
verð mótspyrna gegn þvl, en þó aðNatal
skerist úr leik, eru öll lfkindi til, að hinar
nýlendurnar stofni sambandið sín á milli