Þjóðólfur - 09.07.1909, Side 1
61. árg.
Reykjavík, föstudaginn 9. júlí 19 09.
29.
V erkf æravélar
og smíðatól.
Fri & Á. Sctaiahl,
Kjöbenhavn. Gl. Kongevej 1D.
Æðardímn.
Umboðsmaður til að kaupa æð-
ardún óskast.
A/s Nordisk Fjerfabrik.
Frihavnen. Kjöbenhavn.
Vildarkjör.
= fyrir tvær krónur =
geta nýir kaupendur fengið síðari
helming þessa ytirstandandi (61.)
árg. Þjóðólfs frá júlíbyrjun til árs-
loka, og þar að auki í kaupbæti:
Vesturförina. Sanna sögu
um Ameríkufara, vel og skemmti-
lega ritaða, og
Hina fróðlegu
íslenzku sagnaþætti,
2. hepti, er allir vilja eiga. í hepti
þessu, sem er 80 bls. að stærð, er
þátturinn af Árna Grímssyni (Ein-
ari sterka í Skoruvík), saga um
Bjarna prest Jónsson í Möðrudal
(f 1716) og frásögnin um hinn
nafnkunna Hjaltastaðarfjanda, eptir
skýrslu prestsins, er þá var á Hjalta-
stað, séra Jóns Oddssonar, og er sú
frásögn því miklu fyllri og áreið-
anlegri en í Þjóðsögunum. í þessu
hepti eru og sögur um Eirík Styr-
bjarnarson á Hauksstöðum og Metú-
salem sterka í Möðrudal. Hepti
þetta er alls ekki til lausasölu,
og geta því ekki aðrir fengið það
en nýir kaupendur, eða skilvísir
eldri kaupendur, sem ekki standa í
skuld við blaðið. — Bókhlöðuverð
á Vesturförinni og Sagnaþáttun-
um mundi vera 1 kr. fyrir hvort-
tveggja °g 1(l P<1 nýú' kaupendnr
blaðið í raun réttri fyrir 1 krónu
frá júlibyrjun til ársloka (rúm 30
tölublöð). En vitanlega er áskript
þá bindandi fyrir næsta árgang
1910.
Ef menn óska heldur, geta nýir
kaupendur fengið i stað »Vestur-
fararinnar«: sérprentun aí siðasta
sögusafni Pjóðólfs (13. hepti) með-
an upplagið hrekkur.
Fylgiritin eru afhent um leið og
borgað er
fy HátAvirtir kanpendnr
blaðsins eru minntir á. aö
g;jalfldag'i blaðsins er 13. þ. m.
Prestasteta á Þingvelli.
Hún var haldin þar föstudag og laug-
ardag 2. og 3. þ. m. og hófst með guðs-
þjónustugerð, er biskup flutti 1 Þingvalla-
kirkju á föstudaginn, en að henni lokinni
var gengið til samkomustaðarins, skála
landstjórnarinnar, er Mikliskáli kallast,
og þar setti biskup prestamót þetta. Skrif-
ari var kosinn séra Jón Helgason lektor.
En þessir prófastar og prestar sóttu presta-
stetnnna:
Ur Norður-Múlasýslu: Sigurður P. Si-
vertsen Hofi.
Ur Vestur-Skaptafellssýslu: Magnús
Björnsson Prestbakka.
Ur Rangárvallasýslu: Kjartan Einarsson
Holti, Eggert Pálsson Breiðabólstað, Þor-
steinn Benediktsson Landeyjum, Skúli
Skúlason Odda og Ólafur Finnsson Kálf-
holti.
Ur Arnessýslu: Kjartan Helgason Hruna,
Valdimar Briem Stóra-Núpi, ÓlafurBriem
Stóranúpi, Ólafur Sæmundsson Hraun-
gerði, Gísli Skúlason Stóra-Hrauni, Ólafur
Magnússon Arnarbæli, Jón Thorsteinsson
Þingvöllum.
Ur Gullbringu- og Kjósarsýslu: Krist-
inn Danfelsson Utskálum, Jens Pálsson
Görðum, Magnús Þorsteinsson Mosfelli,
Halldór Jónsson Reynivöllum.
Ur Reykjavík : Jóhann Þorkelsson dóm-
kirkjuprestur, Haraldur Níelsson, Jón
Helgason lektor, Magnús Helgason, Ólafur
Ólafsson fríkirkjuprestur.
Úr Borgarfjarðarsýslu: Jón Sveinsson
Skipaskaga, Einar Pálsson Reykholti.
Úr Mýrasýslu: Jóhann Þorsteinsson
Stafholti, Stefán Jónsson Staðarhrauni.
Úr Dalasýslu: Asgeir Asgeirsson
Hvammi.
Úr Barðastrandarsýslu: Magnús Þor-
steinsson Patreksfirði.
Úr Vestur-ísafjarðarsýslu: Böðvar Bjarna-
son Rafnseyri.
Úr Húnavatnssýslu: Eyjólfur K. Eyj-
ólfsson Melstað.
Úr Skagafjarðarsýslu: Björn Jónsson
Miklabæ.
Alls 32 auk biskups,
Mál þau, sem til umræðu komu, voru
þessi:
Skilnaður ríkis og kirkju.
Þar var séra Böðvar Bjarnason máls-
hefjandi, og færði ástæður með og móti
skilnaði. Var sjálfur á móti skilnaðinum.
Nefnd, er kosin var til að íhuga málið
(Böðvar Bjarnason, Gfsli Skúlason, Jón
Sveinsson, Kjartan Einarsson, ÓlafurMagn-
ússon) lagði degi síðar fram eptirfarandi
álit:
„Vér höfðum fyrir oss nefndarálit neðri
deildar alþingis 1909 um aðskilnað ríkis og
kirkju. Vér könnumst við það, að nokkurt
undanfarið árabil hefur talsvert verið ritað
um aðskilnað ríkis og kirkju og það mál
enda nokkuð komið til umræðu einkum á
þingmálafundum og þar jafnaðarlega verið
samþyktar tillögur um þetta efni; en hins-
j vegar dylst oss það ekki, að á slfkum fund-
I arályktunum er fremur lítið að byggja, þar
sem öllum þorra þeirra, er atkvæði greiða,
er naumast fullljóst, hverjar afleiðingarnar
yrðu, ef til framkvæmdanna kæmi. Og að
minnsta kosti er það víst, að meiri hluti vor
nefndarmanna hefur aldrei heyrt á þetta
mál minnst innan safnaða vorra f þá átt, að
þar í lægi ósk um að fá því framgengt — þvert
á móti. Og það, að „verulegar raddir" —
eins og nefnarálit alþingis kemst að orði —
ekki hafa komið fram gegn aðskilnaðar mál-
inu, er án efa vegna þess, að söfnuðirnir
hafa álitið málið svo fjarri því að koma til
framkvæmda, að ekki þyrfti að hefja mót-
mæli.
Vér getum eigi heldur viðurkent, að þjóð-
kirkja sé óeðlilegt fyrirkomulag. Svo fram-
arlega sem þjóðin viðurkennir þann sann-
leika, að siðgæði borgaranna sé þýðingar-
mesta atriðið í hverju mannfélagi og að
trúin sé öflugasti þátturinn í að efla það,
þá er það ekki nema sjálfsagt, að hið opin-
bera styrki trúarfélögin og þá fyrst og
fremst evangelisk lúterska kirkju, sem lang-
mestur hluti -þjóðarinnar nú telst til. Hitt
er rétt athugað, að alþingi ætti engin af-
skipti að hafa af kirkjunnar málum, en því
má kippa í lag með stofnun kirkjuþings.
Vér erum í engum efa um, að sú skoðun
alþingis-nefndarinnar er alveg röng, að ríkið
geti með réttu lagt eignarhald á kirkjueign-
irnar. Þvf þótt mest af þeim hafi gefið
verið til hinnar katólsku kirkju, á meðan
hún var þjóðkirkja hér á landi, þá er það
auðskilið, að tilgangur gjafanna var sá, að
efla kristnihald í landinu, en um aðra trú
en hina katólsku var þá ekki að ræða. Vér
sjáum því ekki, að nokkur vafi geti á því
leikið, að sú kirkjudeild, er á hverjum tíma
hefur flesta áhangendur í landinu, sé réttur
arftaki katólsku kirkjunnar að eignum henn-
ar. Og að því er sölu kirkjuhúsanna snert-
ir, þá getur varla komið til mála að taka
þau af söfnuðum, er þegar hafa á löglegan
hátt fengið þau til eignar og umráða.
Af framangreindum ástæðum leggjum vér
það til:
að kirkjan sé frjáls þjóðkirkja í sambandi
við ríkið.
Að öðru leyti leggjum vér til, að presta-
stefnan Iýsi yfir þvf, að hún sé algert mót-
fallin aðskilnaði ríkis og kirkju. En ef
skilnaður reyndist óhjákvæmilegur, þá verði
hann þó að eins framkvæmdur með þeim
skilyrðum, er hér greinir:
1. Að skilnaðurinn sé borinn undir at-
kvæði þjóðarinnar, þar sem öllum 15 ára
að aldri sé gefinn kostur á að greiða at-
kvæði, og 3/5 hlutar greiddra atkvæða sam-
þykki skilnaðinn.
2. Að skilnaðarmálið sé undirbúið af
kirkjuþinginu.
3. Að öllum eignurn kirkjunar sé vr.rið
til viðhalds og styrktar kristnum trúarfélög-
um í landinu eptir ákveðinni tiltölu.
Hinn naumi tími leyfir oss því miður
ekki að taka meira fram þessu máli við-
víkjandi, svo mikil nauðsyn sem þó hefði á
því verið að íhuga þar margt og mikið.
Vér höfum að eins bent hér á aðalskekkj-
una í nefndaráliti neðri deildar og tekið
fram í aðaldráttum þau atriði, er oss virðist
prestastefnan ekki mega víkja frá. Þó vilj-
um vér að sfðustu taka það fram, að vér
fáum ekki séð, að þjóðkirkjufyrirkomulag í
sjálfu sér þurfi að hafa deyfandi áhrif á
kirkjulífið í landinu, sé því viturlega og
frjálslega beitt, og þeir menn fái um kirkj-
unnar mál að fjalla, er mestan áhuga hafa
á þeim. Og vér höfum heldur ekki sann-
færzt um, að fríkiikjufyrirkomulag hafi þá
kosti fram yfir þjóðkirkju, að það sé eptir-
sóknarvert fyrir oss. Og þótt það fyrir-
komulag hafi gefizt allvel, t. d. f Ameríku,
þar sem kirkjan hefur frá því fyrsta starfað
án sambands við ríkið, þá er það ekki víst,
að það gæfist vel hér á landi, þar sem
þjóðkirkjufyrirkomulag er jafn gamalt kristn-
inni og staðhættir og allar kringumstæður
svo gagnólíkar; enda virðast þær tilraunir
f frfkirkjuátt, sem gerðar hafa verið í sveit-
um hér á Iandi, ekki hafa gefizt vel. Það
er og jafnan varhugavert að breyta því
fyrirkomulagi. sem orðið er jafn samgróið
þjóð og þjóðlífi, eins og þjóðkirkjan er hér
á landi".
Allmiklar umræður urðu um þetta nefnd-
arálit, og voru prestarnir yfirleitt skilnað-
inum mótfallnir. Breytingartill. er séra
Eggert Pálsson bar upp 1 fríkirkjuáttina,
var felld með öllum þorra atkvæða. En
tillaga nefndarmanna um að kirkjan sé
frjáls þjóðkirkja í sambandi við ríkið, var
samþykktmeð 25 atkv. gegn 2 ogskilnaðar-
skilyrðin í nefndarálitinu voru samþykkt
með 22 atkv. gegn 4.
Uþpsagnarvald safnaða.
Með því mælti einkum séra Kjartan
Helgason og var samþykkt svolátandi td-
laga:
sPrestastefnan telur nauðsynlegt, að
biskup beitist fyrir því að fá prest leystan
frá embætti, þar sem þorri safnaðar af
réttmætum ástæðum vill losna við hann,
og ítrekaðar tilraunir til að bæta sam-
komulagið, hafa reynzt árangurslausarx.
Um kirkjuþing
flutti séra Sigurður P. Sivertsen alllangt
erindi, og var að ræðulokum kosin nefnd
1 málið (Haraldur Níelsson, Kjartan Helga-
son, Kristinn Daníelsson, Valdimar Briem,
Sig. P. Sivertsen). Var eptirfarandi till.
samþ. með 26 samhljóða atkvæðum:
„Prestafundurinn álftur, að vor kirkjulegu
mein stafi ekki af því, að kirkjan er í sam-
bandi við ríkið, heldur af öðrum orsökum,
meðal annars af því, að sambandi ríkis og
kirkju er óhaganlega fyrirkomið, og að
kirkjan hefur ekki nægilegt frelsi til þess
að ráða síoum eigin málum. Fundurinn
skorar því á alþingi, að samþykkja lög um
kirkjuþing fyrir hina íslenzku þjóðkirkju, er
komi saman annaðhvort ár, sé skipað prest-
um og leikmönnum, hafi fullt samþykktar-
vald í sínum eigin innri málum og tiUögu-
rétt í öllum þeim almennum löggjafarmál-