Þjóðólfur - 28.05.1918, Page 4
40
ÞJÓÐÓLFUR
ar þarfnast manns, er vinnur verzl-
un þeirra slíkt gagn sem Hall-
grimur Krístinsson hefir, að sögn,
unnið kaupfélagsskap Eyfirðinga.
Meutir og1 fræði.
Jón Helgason: Fra
Islands Dœmrings-
tid. Kpbenhavnl918.
117 bls.
(Dansk-islandsk
Samfunds Smaa-
skrifter nr. 2).
Biskupinn okkar, dr. Jón Helga-
son, er dugnaðar- og fræðimaður,
eins og margir fyrirrennarar hans.
Það er ekki lítið, sem eftir hann
liggur. Nýlega hefir komið út eftir
hann á dönsku bæklingur um aft-
urelding íslenzkrar menningar eða
fyrsta viðreisnartímabil i sögu
þjóðar vorrar eftir niðurlægingu
hennar, er hefst með siðbótinni,
Endurreisn menningar vorrar tel-
ur biskup byrja, þá er Eggert Ól-
afsson kemur fram á leiksvið ís-
lenzkrar sögu og þylur þjóð sinni
siðijóð sín og pródikanir. Segir
biskup í bæklingi þessum sögu
vi^reisnarbaráttu'vorrar frá Eggert
Ólafssyni til þess, er Jón Sigurðs-
son þrífur merkisstöng í hönd sér,
og íslendingar skipa sér undir
merki hans — þá lýkur hann máli
sínu. Er ritlingurinn bæði almenns
sögulegs og bókmentalegs efnis.
Segir þar lauslega frá æfi allra
helztu foringja vorra — og aðeins
þeirra — á þessum tíma, frá Egg-
ert Ólafssyni, Skúla Magnússyni,
Hannesi Finnssyni, Magnúsi Step-
hensen, Jóni Þorlákssyni og loks
frá Fjölnismönnum, aðallega Tóm-
asi Sæmundssyni og Jónasi Hall-
grímssyni, og styr þeim, er stóð um
Fjölni, og er ger nokkur grein fyrir
áhrifum þessara manna á samtíð og
íramtíð. Hér er, með öðrum orð-
um, sagt frá verzlunarbaráttu vorri,
uppfræðingartímabilinu, upphafi
„rómantisku1-' stefnunnar og fæð-
ingarhríðum hennar. Er þessi kafli
sögu vorrar girnilegur til fróð-
leiks, einkum fræðslutimabilið. Það
er altaf hressandi að lesa menn-
ingarsögu seinna helmings 18. aldar.
Svo stórar og djarfmannlegar hugs-
anir vorn þá hugsaðar og hraust-
lega ráðist á marga aldagamla
hleypidóma og hindurvitni. En því
fer fjarri, að um eins auðugan
garð sé að gresja í sögu þessa
menningartímabils með oss og í
sögu annarra þjóða á sama menn-
ingarreki, eins og eðlilegt er.
Frumgróður er þá lítill á landi
voru. Alt fyrir það er gaman af
að kynnast honum. —
í upphafi bæklings síns segir
biskup frá verstu niðurlægingar-
tímum þjóðar vorrar; fræðir Dani
a, hvernig einokun þeirra og ein-
veldí lék oss. Ritlingur biskups er
þannig til orðinn, að hann flutti
fjögur erindi um afturelding menn-
ingar vorrar í dönskum lýðskóla
sumarið 1916. Þar sem þannig er
ástatt, má ekki búast við, að sagt
sé rækilega frá nokkru, enda hafa
áheyrendur biskups ekki vitað neitt
— að kalla — áður um þetta
efni. En höf. má eiga það, að
hann flatmagar hér ekki fyrir Dön-
um. Hann segir hispurslaust frá
misfellum á stjórn þeirra, rang-
sleitni og yfirgangi, er þeir sýndu
oss, og ber lítt í bætifláka fyrir
þeim. Hann segir t. d. frá „kríu-
málinu“ og kjörum konungsland-
seta. Mega Danir hór sjá, hversu
þeir hafa stýrt „hjálendu" sinni,
er þeir svo kalla.
Og annars má geta um bækling
þenna. íslendingar þurfa ekki að
una því illa, hversu höf. ber skáld-
um vorum og framfaraforingjum
söguna. Hann lofar þá yfirleitt
mjög. Þó segir hann það — og
segir það vafalaust satt — um
Eggert Ólafsson, að hann hafi naum-
ast verið mikið skáld. Úr skáld-
gáfu Jóns Þorlákssonar gerir hann
aftur sennilega ofmikið. En rím-
ari hefir Bægisárskáldið verið
geysimikill.
Þar sem farið er jafnfljótt yfir
sögu og hér, og fræðslan er ætl-
uð mönnum, er með öllu eru
ókunnir efninu áður, er þess ekki
að vænta, að lesendur rekist á
nýjar skoðanir á efninu. Þó
eru þar á stangli athugasemdir,
sem eg hygg, að rithöfundar seinni
tíma hafi gagn af.
Um engan þeirra merkismanna,
er sagt er frá í riti þessu, hefir
verið ritað nákvæmlega, nema
Skúla Magnússon. Leikur enginn
efi á, að um þá alla verður skrif-
að mikið og margt, er þjóð vorri
vex fiskur um hrygg og íslend-
ingar með rithöfundhæfileikum
geta notið sín, meira en nú tíðk-
ast. Sumir þessara manna eru og
hin skemtilegustu rannsóknar- og
ritsmíðarefni, ekki sízt Magnús
Stephensen, enda eru til ekki lítil
gögn til æfisögu hans. En vandi
verður að segja vel æfisögu þessa
fjölþætta og margblandna manns.
Hefir hann áreiðanlega haft mikil
og djúptæk áhrif á framfarir þjóð-
ar vorrar, líklega miklu meiri en
menn hafa til þessa gert sér grein
fyrir. Um hann má segja líkt og
sagt var um danskt skáld, að hann
hafi verið „stor i Fortrin, stor i
Fejl“, svo mikill blendingur sem
hann var af eirðarlausum áhuga
á að efla framfarir fósturjarðar
sinnar, af mentafýsn og hégóma-
skap. Þorsteinn Erlingsson hefir
gerla séð mikilleik hans:
„Mun ei djarfhuga öld meta Magnúsar
sjón,
.þegar morguninn- vaknar og tindana
roðar?“
kveðjir hann.
Ekki er ólíklegt, að bæklingur
þessi auki ofurlítið þekking Dana
á bókmentum vorum og sögu, að
minsta kosti meðal lýðskóiamanna.
íslendingar geta og flestir numið
mikinn fróðleik af honum.
Ritstjóri:
Signrdnr dnðmnndsson.
Sími 709.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Arni Eiríksson.
Heildsala — Smásala.
I
I
\
Pósthólf 277.
Talsími: 265.
Vefnaðarvörur, Prjónavörur
mjög f Jöll»reytta,i*.
Sanmavélar
með hraðhjóli.
Verksmiöju-
ábyrgð til 5 ára.
Smáyörur er snerta saumavinnu og hannyrðir.
hrotta- og lireinlætisvörnr, beztar og ódýrastar.
Gosdrykk]a og aldinsafagerðin
,SAN ITAS‘
í Reykjavík
mælir með vörum sínum. Notar að eins ný
aldini og beztu efni.
Alt vatn er dauðhreinsað og jafnan gætt hins
mesta hreinlætis í hvívefna.
Guðm. Björnson, landlæknir, er eftirlitsmaðui-.
Spyrjist fyrir um verð og biðjið um 'sýnishorn.
Vatnsaflið vinnur fyrir Sími 404.
bændur landsins. Símnefni: Álafoss.
Klæðaverksmiðj an
„Álafoss“
hefir þá ánægju að geta tilkynt sinum heiðruðu viðskiftavinum,
að hún heldur áfram að vinna í fullum gangi, og getur tekið
á móti afskaplega miklu af ull til vinnu í
lopa, plötu og band,
fyrir 1 æ g r i vinnulaun en tiltölulega nokkur önnur vinna fæst
unnin hér á landi.
Bændur! f*að borgar sig eigi að nota handafiið til að
kemba. Látið Álafoss gera það — þér sparið stórfé með því.
Allar upplýsingar viðvíkjandi flutningum o. fl. fást hjá umboðs-
mönnum vorum.
Sendið því ull yðar strax til Afgrciðslu verKsmlð|unnar
á Laugaveg 34, Reykjavík.
Klæðaverksmiðjan „Álafoss“, Rvík.
og
(hvor tegund fyrir sig) í
Vöruhúsn u,
Alla afgreiðslu Þjóðólfs
annast Björn Björnsson bókbind-
arl, Laugaveg 18, Sími 286. —
Hann tekur við öllum auglýs-
ingum og hefir á hendi öll reikn-
ingsskil blaðsins. Ef vanskil
verða á því, eru menn beðnir
að snúa sér til hans.
DAGSBRÚM
kemur út á laugardögum, og er að
jafnaði 4 -síður aðra vikuna en 2 hina.
Árg. kostar 3,00. kr. og borgist fyrir-
fram.
Afgreiðsla og, innheimta í Lækjar-
götu 6. (Sími 263.)