Lanztíðindi - 10.02.1851, Qupperneq 1

Lanztíðindi - 10.02.1851, Qupperneq 1
LANZTÍÐINDI. 1§5L Ár ÍO. Febriiar. 40. og 41. Reglugjörð, sem (jilda á fyrst um sinn fyrir presta- skólann. 9. yr. (Framhald). Burtíararpróf skal haldið í viðurvist biskupsins af kennendum presta- skólans, og skiptast J)eir á um, áð hafa til- sjón hjá þeim sem útskrifast, meðan þeir eru að leysa úr hinum skriflegu spurningum. Bæði skrifleg og munnleg svör skal biskup og hinir föstu kennendur prestaskólans dæma, og ákveða þeir hver um sig, jafnskjótt og þeír hafa gefið atkvæði sittíhverri prófgrein, einhverja af þessum einkunnum: afbragðsvel, dável, vel, sæmilega, laklega, illa. Síðan skal leggja saman atkvæði prófdómenda, og gjöra af eina einstaka einkunn í hverri próf- grein; en í þeim greinum, sem prófið erbæði munnlegt og skriflegt í, skal leggja saman atkvæðin fyrir hvorttveggja, og gjöra afeina einstaka einkunn fyrir alla greinina, þó skal prjedikunarlist vera undanskilin, þar skulu vera tvær einkunnir, önnur fyrir að semja ræðuna, og hin fyrir framburð; fyrir prófgrein- ir þær, sem taldar eru, verða þannig gefnar 7 einstakar einkunnir, eða: 1 fyrir útskýringu ritningarinnar, 1 fyrir trúarfræði, 1 fyrir siða- fræði, 1 fyrir kyrkjusögu, 2 fyrir prjedikunar- list, og 1 fyrir barnaspurning. Fyrir kenni- mannlega guðfræði og kyrkjurjett skal þar á mót ekki gefa sjerstaka einkunn, (eins og getið var um í 8. grein) og hefur þá prófið í þessum greinum engin beinlínis áhrif á aðal- einkunnina. 10. yr. Hinar einstöku einkunnir gihla þetta í tölum: afbrayðsvel jafnt 8 dável — 7 vel — 5 sœmileya — 1 lakleya ----f- 7 illa ----F23 Úr hinum einstöku einkunnum skal búa til eina aðaleinkunn, sem heitir: Fyrsta einkunn, Önnur einkunn, eða þriðja einkunn; er hún ákveðin eptir tölugildi hinna einstöku einkunna samtals á þessa leið: til fyrstu einkunnar þarf að minnsta kosti 4 dável og 3vel, eða 43tölur, — annarar einkunnar 4 vel og 3 sæmilega, eða 23 tölur, — þriðju einkunnar 2 vel og 5 sæmilega, eða 15 tölur. Við fyrstu einkunn má bæta þeim viðauka afbrayðsvel, og þarf til þess að minnsta kosti 4 afbragðsvel, og 3 dável eða 53 tölur; á sama hátt skal og skipta annari einkunn í tvo staði, og heitir hið efra stig: önnur ein- kunn með viðauka (anden Characteer með Föie), og þarf til þess að minnsta kosti 7 vel eða 35 tölur. Nái liinar einstöku einkunnir sainanlagðar ekki 15 töluin, má ekki heita, að sá, sem svo stendur á fyrir, hafi aflokið prófi, og getur hann þá ekki gengið undir nýtt próf fyrren að ári liðnu. 11. yr. Tilsjónarmenn prestaskólans taka mann til að rita í bók hin helztu atriði úr yfirheyrsl- unni, skal sú bók vera fullgild. Að loknu prófi gefur forstöðumaður prestaskólans hverj- um þeim, sem hefur aflokið því, vitnisburð- arbrjef, og setur undir það innsigli presta- skólans; þarskal tilgreina bæði aðaleinkunn og allar einstakar einkunnir, og gefa vitnis- burð íyrir yðni, menntun og siðferði, vitnis-

x

Lanztíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lanztíðindi
https://timarit.is/publication/73

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.