Ný tíðindi - 25.02.1852, Page 2

Ný tíðindi - 25.02.1852, Page 2
18 hún þó áríðandi og skilyrði fyrir allri verulegri notkun landsins; f>ví hún er fólgin í þekk- ingunni á efninu í jarðveginum, eðli hans og náttúru, og á öllu því, sem fólgið er í fylsn- um jarðarinnar, mtilmum, mó, kolum og stein- tegundum. Undir þessari þekkingu er öll jarðyrkja komin; því hún kennir hvaða rækt bezt eigi við þann og þann jarðveg, og hvaða jarðtegund sje hentugust fyrir þann og þann gróða. Jegar menn vita nú hvaða efniíjarð- veginum eru, þá er hægt að segja til hvers hann verði notaður; því vjer þurfum þá ekki annað, en fara eptir reynslu annara þjóða. En til hvers er oss nú sem stendur að fræð- ast um þessa reynslu á meðan vjer þekkjum ekki jarðtegundirnar? Hvaða nothöfumvjer t. a. m. af því, þó oss væri sagt frá reynslu annara þjóða um gæði mergelsins, sem kall- aður er, á meðan vjer göngum í efa um hvort hann sje til hjá oss, eða ekki? Ef vjer þar á móti þekktum þessa ágætu jarðtegund og vissum af henni hjá oss, þá væri slík fræðsla ágæt og ómissandi; því þá þyrftum vjer ekki annað en ganga að voru vissa verki með liana. Öldungis eins er og mörgu öðru hjer að lút- andi varið; t. a. m. um blöndun jarðtegund- anna og meðferð. 3>að er ekki til neins að tala um neitt þess konar, fyr en menn þekkja jarðtegundirnar sjálfar og vita hvert og hvar þær eru til. En slík þekking fæst ekki, nema með kostnaði og fyrirhöfn, eins og hver önn- ur gæði lifsins, enda er hún og á eptir grund- völlur mikillar hagsældar og vegs. Um leið og vjer skiljumst við þetta mál að sinni, tökum vjer það fram, að vjer skorum á landa vora, að leggja allan hug á það, fyrst að gjöra sjálfum sjer grein fyrir nauðsyninni á hinni ytri og inriri þekkingu landsins sins, og síðan, að hitta á haganlega og góða að- ferð til þess að afla sjer hennar, og eru oss allar slíkar uppástungur mjög svo kær komn- ar. Vjer erum vissir um, að þær mundu fá inntöku bæði í „jþjóðólf-* og eins í BNýTíðindi“. Gullnámur í Nýja Hollandi. Aý/a Ilolland er stæsta eyjan í Eyjaálf- unni; það er nærri því eins stórt og Norð- urálfan, eða hjer um bil 140,000 □ mílur. Að austanverðu liggur Suðurhafið að landi þessu, en á hina þrjá veguna Indlandshaf. Strendurnar á Nýja Hollandi eru mest allar flatar, sendnar og þurrar, en hærra uppi í því eru fjallgarðar töluvérðir. Loptslag og veð- uráttufar er hjer all gott, en Iiitj^ býsna mik- ill; því steingeitarbauguriun gengur um mitt landið. Ýms eru örnefni á hjeruðum lands þessa, sem siglingamenn Norðurálfunnar hafa gefið þeim, jafnóðum og þeir hafa uppgötvað þau. í>annig kallaði hinn víðfrægi Kook austur- ströndina á Nýja HoIIandi, er hann fann 1770, iVj'ja - Suðurvales (Ny - Sydwales). Jar stofnuðu Bretar síðan nýlendu (1788) með því, að þeir fluttu þangað alla óbótamenn og illþýði heiman að frá sjer, og fyrir nokkrum árum voru nýlendubúar þessir orðnir alls 131,000 (þar af nærri því 30,000 útlagir ó- bótamenn). Helztu atvinnuvegir þéirra eru akuryrkja, kvikfjárrækt, skógarhögg, fiski - hvala - og selaveiðar. — Höfuðborg nýlendu þessarar heitir Sidney, og eru þar meira en 30,000 innb. — Fjallgarðurinn sem liggur fyr- ir ofan nýlenduna, og skilur hana frá meg- inlandinu, heitir Bláfjoll. 1813 komustmenn fyrst yfir þau, og fundu þar fagurt land og frjófsamt. Var þar þá þegar reist byggð og kallað í Bathurst. Siðan hafa Bretar mjög eflt og fjölgað nýlendum sínum á eylandi þessu, einkum á suðurströndinni. Á árinu, sem leið, er þessi óbótamannasveit Breta orðin að gullkistu þeirra; því þar eru fundnar gulinámur svo miklar, í Nýja- Suður- vales, að Bretar þora varla að trúa sjálfum sjer um auðæfi þeirra. Segja þeir, að þessar námur muni vera töluvert ineiri og betri, en þær í Kaliforníu, og nú hljóti gullið bráðum að lækka i verði. Jað er sagt, til merkis um auðæfi gullnáma þessara, að i byrjuninni á júnímán. (1851) liafi verið búið að finna 30 þúsund pund af gulli á þeim staðnurn, sem menn komu fyrst ofan á það. Var þá og bú- ið að uppgötva fleiri gullnámur til og frá um landið, svo Bretar kalla þær takmarkalausar og ótæmandi. Jað er gamalt orðtak íslendinga, að þangað sæki fjeð sem fjeð er fyrir, og hefur það nú sannast á Bretum og Vesturheims- mönnum, tveimur hinum voldugustu þjóðum í heiminum, þar sem gullið nærri því kepp-

x

Ný tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.