Ný tíðindi - 28.06.1852, Side 8

Ný tíðindi - 28.06.1852, Side 8
60 Stiptamtmaður greifi af T r a m p e er nú á ferð fyrir austan heiði að skoða amt sitt, og biskup H. G. Thordersen er á kirkjuvitjunarferð á Vestfjörðum. Embœttaveitinga r. 23. d. seinast liðins aprílm. hefur Hans Hátign kon- ungurinn allranáðugast veitt: Sýsluin. í Kjósars. og hjeraðsdómara og sýslum. í GuIIbringus. Vilhjálmi Finnsen landfógeta em- bættið áíslandi og bæjarfógetaeinbættið í Reykjavíkurbæ, frá 1. degi júlímánaðar þ. á. ; — Candid. juris NielsWal d emar Lassen Borg- arfjarðarsýslu, frá 6. degi júnímán. þ. á. ; — og Examinat. juris Arna Gíslasyni Skaptafells- sýslur báðar, frá 6. d. júním. þ. á. Prestaköll. Oveitt: Staðurí Grunnavík, S t ö ð í Stöðv- arfirði, MeðalIandsþingogEyvindarhólar. M a n n a l á t. J ón þorvarðsson, bóndi á Svíra í Andakýl, dó 19. d, scinast liðins maím. Hafði hann þá búið í Svíra í 30 ár, en alls búið í 52 ár. Ekkjumaður hafði hann verið í 9 ár. A yngri árum sínum var hann um hríð „fálkafangari.“. Hann var fæddur 1762. þorsteinn Jónsson, bóndi á Broddanesi í Strandasýslu, dó vofeiflega 22. d. seinastliðins maímán. Auglýsingar. Hjá undirskrifuðum er nú til sölu: Eölisfrœöi rptir .1 G. Fischer, sbr. 51. bls. iijer aá framan, hept á 2 rbdd. Skírilir þessa árs á prentpappír á 32 skk. Reykjavík 28. dag júnim. 1852. ./. Arnason. M. Grímsson. Biflíukjarni. Undir þessum titli hefi jeg áformað að láta prenta að vetri, ef áskrifendur fást nógu margir, bók útlagða úr 5ýzku (.Geschichten und Lehren der heil: Schrift, bearbeitet von Kohlrausch“), og hvar af 1 örk er þegar prent- uð, og send nú á lestum sem sýnishorn, út um allt land til allra prófasta, með þeirri bón, að láta hana berast til hvers prestakalls. Verð bókarinnar verður fimm skildingar örk- in, en stærð bókarinnar hjer um bil 36 örk; getur skeð að fyrri hlutinn, sem nær yfir G. T., og verður hjer "um bil 2S örk, komi fyrst út, af því jeg hafi ekki ráð til að láta prenta nteira í einu. Hver, sem safnar áskrifendum og stendur skil á andvirðinu, fær 10. hverja bók í ómakslaun; en ávísan um það, hve marg- ir vilja eignast bókina, er mjer áríðandi að fá, ef inögulegt væri, strax í haust, til þess þar eptir að geta ákveðið stærð upplagsins. Reykjavik 21. dag júním. 1852. Asm. Jónsson. HEjallhvít, æfiqtýri handa börnuin, nieð 17 myndum , fæst hjá Egli bókbtndara Jónssyni hept fyrir 24 skk. Hjá sama manni mun og í sumar fást XTý Félag'srlt, 12. ár, 1 káPu á 64 skk. þingvallafundur er af þjóðfundarmönnum í Reykjavík ákveð- inu að byrja skuli 11. dag næstkom. ágústmán. I prentsmiðju' landsins er nú verið að prenta: H a n d- bókpresta, og Hugvekjur Sveinbjarnar Hall- grímssonar. — Barnamóðirin: í sókninni St. Servais í Luttich er 33 ára gömul kona nýlega búin að ala 22., 23. og 24. barnið sitt. Hún hefur verið gipt í 9 ár, og á þeim tíma alið 24 börn, með því hún heíur 8 sinnum fætt þríbura, sem allir lifa og líður vel. Öll þessi 24 börn eru dætur. — Kaffiaflinn: er eptir áætlun manna 176 mill- íónir punda á ári hverju. þar af eru frá Brasiliu 176 mill., Java 124 mill., Ceylon 40 mill., St. Domíngo 35 mill., hinu enska Vesturindlandi 8 mill., og Costa Rica 9 mill. punda. — Risnvaxiðdýr. I mergelgryfjunum við Ilúð- sonarflóa í Vesturheimi er fundin beinagrind af dýri, sem kallað 'er M a s t a d o n. Dýr þetta hefur verið 13 feta hátt og 31 fet á lengd. Iljer um bil 100 raanns var í marga mánuði að grafa upp bein þess; síðan voruþaufest saman, og beinagrindin sett upp í náttúru- gripasafninu í Fíladelfíu. þar keypti dr. Beach hana og flutti hana til Nýju - Jórvíkur, en þaðan komgt hún til Lundúnaborgar, og er þar nú til sýnis. þetta dýr, eða dýra tegund sú, sera það heyrir, er eldri en synda- flóðið. Leiðrjetting: Á 49. bls. 2. dálki 13. línu a. n. h i n u m, á að vera h i m n u m, og á sömu bls. sama d. 4. 1. a. n. h o r f i n, á að vera h vorfin. Rítstjóri: M. Grimsson.

x

Ný tíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.