Ný tíðindi - 06.11.1852, Page 3
87
koma í auknu og endurbættu útgáfuna af
Messusöngsbókinni stiptsprentsmiðjunnar, sem
einatt stendur til, eða í nýja sálmabók frá
Akureyri.
— Viðvíkjandi Islandi sendi nú stjórnin með
póstskipinu nýtt búnadartöflusnid prentað og
reglur sem þar til heyra, og Játum vjer það
hvorttveggja koma í næsta blað, hverjum sem
vill til glöggvunar.
— Dulsmálid frá Skálbolti, sem nefnt var
í seinasta bl. N. T. er nú komið fyrir lands-
yfirrjettinn, og verður því skýrt frá því síðar.
P ó s t s k i p i ð kom hingað hinn 27. f. m. Með
því höfum vjer fengið blöð og frjcttir septembcrmánuð
út. Frá Dönum er ekki að heyra annað en frið og
árgæzku. I tilliti til stjórnaraðgjörða höfum vjer þaðan
engar teljandi nýlundur heyrt, nje heldur frá öðrum
ríkjum Korðurálfunnar. Danir eru nú að leggja frjetta-
fleygi um Sjáland í gegn um Kaupmannahöfn, og rýfa,
niður Rendsborgarkastala. Mælt er og að þeir ætli
bráðuin að fella niður borgarveggina umhveríis Kaup-
mannahöfn, og fylla með þeiin varnardíki þau, sem
liggja þar um að utan, til þess að borgin haíi meira
svæði að byggjast út á. Ekki segjum vjer þó neinar
sönnur á þessu. — það er og haft fyrir satt, að Eng-
lendingar sjeu farnir að safna fje til þess að leggja
frjettafleyginn mikla um Færeyjar, Island og Grænland
til Vesturálfu, og er því ætlanda að þeir muni ekki
ætla að heykjast á stórvirki þessu, sem varla sýuist
mennskum mönnum unnt. *— Mörgu er enn spáð um það,
hvort L. Napoleon muni ætla að verða keisari í Frakk-
landi, og hafa menn enga vissu um það. — Sömu kvað
enn vera uppgripin af gullinu á Nýja- Hollandi, og áður.
það er sagt til merkis um það, að í einni náihu fund-
ust þar í sumar 2 gulihnausar, og vóg annar þeirra 314,
en hinn 142 lóð.
K ó 1 e r a var í Posen í septembermánuði, og það
harla inannskæð. I Warschau hafði hún og verið, en
fór þá batnandi. Á spítölunum einum voru þar þá
dánar úr henni 5000 manna, og frá 8. til 22. ágúst 1662
Gyðingar. — I Gothenbergá Svíþjóð hafði og brytt
á henni snemma í septeinbermán., og eíns í Berlinni.
E I d g o s. 20. dag ágústm. í haust kom eldur upp
í Etnu á Sikiley, og hafði hun þá ei gosið síðan árið
1843. Hefur hún í þetta skipti ollað mikils tjóns, eink-
um á vínekrum þeim, sem umhverfis hana eru í hlíð-
uuum neðanverðum. — I seinastliðnum febrúarmánuði
var og eldur uppi í Mauna Loaá Hawaii.
R í k i s þ i n g Dana átti að hefjast 4. dag október-
mánaðar þ. á.
I sumar, 14. d. septem. dó hertoginn af
Wellington í Walmercastle í Englandi. Ilann
var fæddur I. dag maím. 1769 í Dýflinni, gekk
í enska herþjónustu 1787, var meö í herferð-
inni til Hollands 1794; 1787 barðist hann á
Indlandi; hann var og með fiegar Englending-
ar heimsóttu Dani 1807; þar á eptir barðist
bann nokkur ár við Frakka á Spáni og Portú-
gal. Eptir það að Napoleon kom aptur frá
Elbu tók hann við æðstu herstjórn móti hon-
um og vann orustuna við Waterloo, og studdu
að því ýms atvik fremur en hreysti hans eða
dugnaður. Harm hafði optar en einusinni haft
æðstu ráðgjafarvöld á hendi, og þar að auki ýms
önnur há embætti; þótti hann sumum heldur
ófrjálslyndur og liliðdrægur liöfðingjum. 2
af sonum lians eru enn á lífi.
í hitt eð fyrra þegar jeg var að íslenzka Eðlis-
fræðí Fischers, sem bókmenntafjelagið gaf út í Kaup-
mannahöfn í vor, duttu mjer ýms tól og smíðvjelar
(Maskiner) í hug, sem jeg hjelt að verða mættu að liði
hjer á landi, ef þær yrðu búnar til. Jeg hugsaði opt
um þetta í fyrra vetur, en gat þó ekki látið smíða neitt,
bæði vegna þess að inig skorti fje til þess, að eyða svo
miklu sem þurfti í tilrauuir, sem óvíst Yar hvernig fara
mundu. En þegar jeg heyrði getið um sláttuvjelina frá
Vesturheimi, sem sýnd var í Lundúnaborg í fyrra, þá
fór jeg að hugsa um hvernig viðlíka vjel myndi verða
gjörð til þess, að verða notuð hjer á landi. Jeg vissi
þá ekkert hvernig hin var í hátt, og veit ekki enn.
þó rjeðist jeg í að láta smíða mynd af þeirri, sem jeg
hugsaði upp, og herti það á mjer, er jeg heyrði að
Árnesinga langaði til að vita um tilbúning á sláttuvjel
Vesturheimsmanna. þetta mót mitt sýndi jegfyrstýms-
um mönuum. og breytti því síðan tvisvar, einkum eptir
bendingum konlerenzráðs þ. Sveinbjörnssonar,
sem gjörði sjer allt far um, að laga það sem bezt, og
hjálpa mjer til að sjá á því gallana. því næst lagði
jeg mótið fram á húss- og bústjórnarfjelags fundi í
sumar, og bað um álit þess, og slíkan styrk, sem það
gæti og vildi veita mjer td þess að fá vjel þessa smið-
aða til reynslu í fullri stærð. Fjelagið svaraði mjer á
þann veg, að það hefði ekki fje til að styrkja mig með,
og væri ekki fært um að álykta neitt um gagnscmi tóls
þessa, en rjeði mjer helzt til, að senda mótið til land-
bústjórnarfjelagsins í Kaupmannahöfn. Tók jeg þá við
mótinu aptur og geymdi það. Hef jeg síðan sýnt það
ýmsuui mönnum, svo það er nú orðið hljóðbært um slátfu-
vjelarmynd þessa til og frá um landið ; hafa ýmsir spurt
eptir henni munnlega, og einn maður brjeflega. Yfir-
kennari hr. B. Gunnlögsen hefur samið um hana nikvæma
ritgjörð, en með því hún cr flcstum af lesendum N. T. of
þungskilin, þá lætjeg ekki prenta hana í þetta sinn. En
vel lýst honum á vjelina, og það heldar hann að kost-
andi sje upp á að smíða hana svo stóra, sem þarf til
reynslu. Hann hcldur og að hún muni geta orðið notuð
jafnvel á nokkuð ósljettri jörð, og eptir útreikningum hans,
mætti nú enn laga hana í ýmsu tilliti. — það eru þvi
líkindi til, að verkfæri þetta geti hjer orðið að góðum
notum, en varla held jeg að það verði smíðað hjer á landi;