Ný sumargjöf - 01.01.1861, Page 25
25
Fór Perseifur þvínæst með Andromedu til föður hennar
og fékk hennar í launa skyni fyrir afreksverk þetta.
þaðan reið Perseifur með konu sína á Pegasus til
Serifoseyjar. Sókti hann þar illa að, þvi móðir hans og
Diktys fóstri hans voru burtflæmd og flúin að altari
Aþenu undan ofsóknum Polydektesar. Ætlaði liann ekki
heldur að þyrma þeim í sjálfum helgidóminum og ruddist
þángað með vopnaða menn, en Perseifur stóð við dyrnar
og brá upp Gorgóarhausnum og urðu þá ofsóknarmenn-
irnir í sama vetfángi að marmarasúlum. En í það skipti
neytli hann Gorgóarhöfuðs síðast og helgaði hann það
Aþenu bjargvætti sínum, og stóð það síðau einsog her-
kumbl á ægiskildi hennar.
En vefréttinni, sem Akrisius hafði verið birt áður en
Perseifur fæddist, átti framgengt að verða. Hann flutti úr
borg sinni til að forðast dótturson sinn, en það kom fyrir
ekki, því á leikmóti einu l þessaliu kastaði Perseifur töflu
og kom hún í afa hans, þarsem hann sat og horfði á og
datt hann þegar dauður niður. Tók Perseifur ógleði mikla
eptir slys þetta og gat hann egi fengið af sér að fara til
Argverjalands, heldur bygði hann Mykenu, mikla borg og
ágæta, sem enn sér merki til.