Ný sumargjöf - 01.01.1861, Page 120
120
krýna Nordmanua konúnga og er ekki lengra síðan en
í fyrra sumar að Karl konúngur fimtándi var krýndur þar
með mikliim veg. Er saga kvrkjunnar í alla staði svo
inerkileg, að vel er vert að minnasl á hin helztu atriði
hennar.
þrándheims kyrkja var ekki bygð á stuttum tíma, heldur
var uunið að smíði hennar í marga mannsaldra, og ber
hún það með sér, því margt er sunduileitt í henni, eptir
því sem aldarhættir breyttust meðan á byggíngunni stóð.
Var hún í fvrstunni bygð yfir legstað Ólafs konúngs helga.
þegar hann var fallinn í orrustunni á Stiklastöðum (31 d.
ágústm. 1030) grúf þúrgils Hálmuson líkið niður á sand-
mel hjá ánni Nið og var það ekki sæmilega jarðað fyrr en
ári síðar, þegar upp kom helgi Ólafs konúngs. Var líkami
hans grafinn upp með miklum veg og fannst með öllu
úskemdur; eptir það var honum veittur umbúnaður ytir
háaltari í Klemenskyrkju, kistan sveipt pelli og tjaldað
allt guðvefjum. En á meliium þar sem líkið hafði í jörðu
legið, kom upp fagur brunnur og fengu menn böt meina
sinna af því vatni; var því búið vel um brunninn ogvatnið
vandlega varðveitt. Var þar ger kapella og altarið sett
þar sem verið liafði leiði konúngs.
Seinna þegar Ólafur konúngur var sannheilagur orðinn
og lielgi hans lögtekin, var kyrkja bygð í stað kapellunn-
■ar og kölluð Kristskyrkja. þángaö var flutt skrín Ólafs
konúngs, að líkindum á dögum Ólafs kyrra (1077) og er
noröur og suðurarmur döinkvrkjunnar vafalaust eptirleifar
Kristskyrkju hinnar fornu.
Ar 1154 fengu Norðmenn erkibiskup sér í þrándheimi
og voru kanúkar settir við biskupa kyrkjur eða dúmkyrkjur