Norðanfari


Norðanfari - 06.08.1879, Blaðsíða 2

Norðanfari - 06.08.1879, Blaðsíða 2
— 76 — gæti pá ekki prentað annað pann tima, er nokkuð tefði tíðinda prentunina. Hyað getur verið sliku til fyrirstöðu? Seg oss. Er ekki petta sannsýnn og rjett- ur pjóðvilji, sem hjer er tekinn fram eða farið fram á? Og — ef svo er, virðist pingið eiga að skýra frá, h v í pað vildi eigi sinna peim pjóðvilja (— ef pað skyldi svo fara —) eða h v í pað pættist ekki geta far- ið eptir peim skynsömum pjóðvilja eða peirri rjettlátu pjóðósk, sem jeg vona og hygg eða pykist viss um að sje í pessu efni. M. J. Ú t (11* á 11 u r úr skýrslu Sveins húfræðings fyrir sumarið 1878. (Framhald). Af pessari reynslu sem menn hafa pannig um pess konar vatnsveit- ingar, par sem hægt er að stýfla yfir, get- ur maður sjeð hversu nauðsvnlegt er, að koma peim á par sem hægt er, par eð pær eru eins vissar með að vaxa á hverju ári eins og góð tún, sem líka purfa sjaldan að bregðast. |>ess konar vatnsveitingum sem nú eru nefndar, er mjög víða hægt að koma við bæði í Eyjafjarðar- Skagafjarðar- og þingeyjarsýslum. J>að sem ekki má gleym- ast er að rista fram úr mýrunum með sama, svo pær geti nokkurnveginn pornað. Grasið verður pá hetra og hollara til fóð- urs, og lika er betra að vinna að heyskap eins og allir vita par sem purt er, en á peim stöðum par sem mikil bleyta er. par sem ekki er hægt að nota vatnið á pennan hátt að stýfla pað yfir engjarnar, er betra að nota pað með peim hætti, 'að láta pað seitla yfir, heldur en öldungis ekkert vatn að hafa, pví pað getur opt komið að gagni með peim hætti, einkum á túnum, og frem- ur fram til dala en út við sjó hjer norð- anlands. Sumstaðar hafa menn tekið uppá, að rista fram úr blautum mýrum par sem pó hefir vantað vatn til að hleypa á, og svo hafa skurðirnir aldrei verið stýflaðir aptur; petta hefir haft pær afleiðingar, að mýrarn- ar hafa alveg hætt að spretta, og stundum orðið tæplega siægar úr pvi. jpessi aðferð er líka óheppileg, nema vel sje passað uppá á eptir. J>að er meining margra, að gras- vöxturinn muni aukast fyrir utan pað að mýrin pornar líka, en pað verður pó sjald- an tilfellið nema maður hafi vatn til að veita á aptur. Til pess að pess konar mýr- ar versni ekki að grasvexti eptir á, verða menn að stýfla skurðina strax á haustin og láta svo stýflurnar standa í til vors, pangað til frost og snjóar er um garð gengið, en úr pvi er óhætt að taka pær úr og láta engið porna með köflum fram undir slátt, en pá eru pær teknar alveg úr. Með pess- um hætti getur mýrin orðið purrari um sláttinn og grasbetri en lítið grasmeiri fyrir pað. Yfir höfuð má maður vera varkár með að ristafram úr pess konar mýrum sem hallast mikið ef maður hefir ekkert vatn til að hleypa á pær aptur. Víða hafa menn vatnsveitingar hjer á túnum, og gefast pær allstaðar vel, einkum hafa pess konar vatnsveitingar komið sjer vel í sumar, par sem harðlend tún hafa verið , pví pau hafa allvíða viljað brenna, svo mikill skaði hefir orðið að sumstaðar. Á pess konar túnum eru vatnsveitingar ó- missandi, par sem nokkur tök eru til að koma peima á. Menn hafa fengið sum- staðar priðjungi minna í sumarafpeim tún- um, sem eru harðlend, en venjulega í meðal ári, af pví pau hafa brunnið til skemmda. J eg hefi sjeð dæmi til pess í sumar, að par sem vatni hefir verið komið á pess konar harða hóla, hefir næstum hvergi í túninu verið eins vel sprottið og par, en aðrir hól- ar í sama túninu, par sem ekkert vatn gat komizt á, voru öskugráir og graslausir. f>að einasta og bezta meðal móti hruna í túnum er, að veita á pau vatni. Forará- burður, sem sumir halda að varni bruna, hefir ekki dugað í sumar. J>ar sem grasið hrennur á sumrin, er jarðlagi pannig hátt- að, að undir grasrótinni er, sem optast, sendin eða grýtt jörð, sem gleypir fljótt í sig alla vætu, en heldur aldrei í sjer vatni til langframa. Yið pesskonar jörð er ekk- ert að gera nema leiða á hana vatn. ]?að mundi líka hjálpa nokkuð, ef maður risti ofan af og hæri svo mikið af mold í flag- ið og plægði svo allt saman, bæði sandinn og moldina, pá verður jörðín meira mold- arkennd og heldur lengur i sjer vætunni. J>essa aðferð hafa menn erlendis til að bæta purra og sendna jörð. Jeg nefni petta einungis af pví jeg veit, að pað má takast að bæta pess konar jarðartegund með nefnd- um hætti, en lmn verður að öllum líkind- um of kostnaðarsöm fyrir okkur. Sumstað- ar hagar svo til, par sem tún brenna, að pað kemur ekki til af pví, að jörðin sje of sendin, heldur af pví, að hún er orðin svo föst og saman pjöppuð (stundum leirblönd- uð líka). að hún getur tæplega tekið á móti nokkurri vætu, og enn síður haldið í sjer mikilli vætu. p>ar sem pannig hagar til væri hezt, að plægja jörðina og losa eptir að húið væri að rista ofan af henni gras- rótina. J>að mundi bæta með tvenns konar hætti; fyrst yrði jörðin lausari og leyfði pá grasrrótunum að breiða sig út og sækja næringu, og par næst hjeldi jörðin hetur í sjer vætunni og tæki betur á móti áburð- inum. Vatnsveitingar á túnum gera mest gagn upp á pann máta að vökva jörðina, en ekki fyrir pá sök, að pað frjófgi mikið. Sumstaðar hefir mönnum virzt taðan verða ljettari við að brúka vatnsveitingar á tún- in, en mjer hefir virzt petta einungis hafa rót sina að rekja til pess, að á pessum stöðum hafa túnin verið út pínd með hirðu- lausri meðferð og áburðarleysi, en af pví vökvinn var nógur, hefir grasið vaxið yfir megn fram, og orðið pannig kraptminna og ljettara til afgjafa. J>etta á sjer líka opt og tíðum stað á túnum, sem eru rak- lend, en pau gleypa jafnan mikinn áburð en gefa ekki að pvi skapi af sjer aptur. |>að má takast að gera við pessu með pví að leiða vatnið úr jörðinni annaðhvort með opnum skurðum eða lokræsum. Jeg hefi nokkrum sinnum áður minnst á, að nauðsynlegt væri að grafa skurði í túnum par sem hætt væri við kali á vorin. Ólafur í Ási í Hegranesi hefir líka haft pess konar aðferð á túnparti par sem opt var vant að kala. Hann Ijet nefnil. grafa grunnt ræsi svo sem tvö fet á breidd langs eptir pessum túnbletti og pangað sem vatn- ið gat runnið burtu frá túninu. Moldin var flutt burtu, en pað var svo tyrft niðrí ræsið aptur með grasrótinni, svo par mynd- aðist bein ávöl dæld; petta hjálpaði fullkom- lega, pvi nú gat vatnið runnið burtu eptir pví sem skaflarnir bráðnuðu og piðnuðu á túninu. J>að er eiginlega klakavatnið sem situr í dældum og millum púfnanna á vor- in langa lengi, sem orsakar kalið. Stund- um fúnar grasrótin undan vatninu, stund- um frýs vatnið á nóttunni og skemmir með peim hætti, eins og jeg hefi áður minnst á. Túnarœktin er svipuð hjer norðanlands og fyrir sunnan, pó sjer maður ekki eins víða túngarða hjer nyrðra; líka er langtum meira gjört að pvi að sljetta túnin fyrir sunnan. Heyið hefir verið petta frá 5—10 hestar af dagsláttunni, en viðast hafa menn hjer vænna band en fyrir sunnan. Ekki fara menn betur með túnin hjerna en par, en pau virðast að vera ekki eins mikið út- pínd að jafnaði, enda pótt slæm tún sjeu, og mun pað meira að pakka eðli jarð- arinnar og náttúrufari veðurlagsins en pví, að pau sjeu betur ræktuð uppá nokkum hátt. J>að er í öllum tilfellum víst, að meðferðin á áburðinum er engan veginn betri hjer, heldur ef ske mætti nokkru lak- ari. Óvíða er hjer girt í kringum haugstæð- in og á flestum bæjum vantar forir fyrir pvag og annað pess konar. Aska er næst- um hvergi notuð, nema ef ske mætti til að fylla með götur eða grifjur í túnunum, eða henni er safnað í öskuhauga eins og venju- legt er. Brjef úr Reylqavík. 27. júlí 1879. Allvel gengur á alpingi. Nefndir pær, er settar hafa verið til að íhuga hin stærri mál, ljárlaganefndin, presta og kirknamáls- nefndin og landbúnaðarlaganefndin hafa ærið að starfa. I fjárlaganefndinni er Grímur Thomsen (formaður), Einar Ásmundsson, Tryggvi Gunnarsson, Halldór Friðriksson (skrif- ari), ísleifur Gíslason, Guðmundur Einarsson og Eggert Gunnarsson. í presta og kirkna- málsnefndinni er Páll prestur Pálsson fskrif- ari), J>órarinn Böðvarsson (formaður), Hjálm- ur Pjetursson, Friðrik Stefánsson, J>orlákur Guðmundsson, Arnljótur Ólafsson og Halldór Friðriksson. I landbúnaðarlaganefndinni er Árni Thorsteinsson (form.), Sighvatur Árnason, Magn. Stephensen (skrifari), Bergur Thor- berg og Benidikt Kristjánsson. Forstöðu- maður fyrir skrifstofu alpingis er kand. Magn. Andrjesson, innanpingsskrifarar í neðri deild peir sjera Stefán Thordersen, kand. Sigurður Jensson, kand. Grímur Jónsson og stúdent Sigurður Stefánsson; í efri deild stúdentarnir Magnús Helgason, Árni J>orsteinsson og Ó- lafur Ólafsson, og kand. Sigurður Jónasson. Ritnefndarmenn alpingistíðindanna (er eiga að verða styttri en að undanförnu, og skulu alprentuð fyrir lok nóvembermán.) eru peir Magn. Stephensen og Björn Jónsson. Jnngið hefir fellt frumvörp stjórnarinnar um sætis- fisksgjald og um launaviðbót póstmeistarans. Aptur á mót helir pingið sampykkt frumvörp stjórnarinnar um lækkun lóðargjalds í Rvík (úr 3 aurum í 2 aura al.) og um sölu silfurbergsnámunnar í Helgustaðafjalli, er lands- sjóður kaupi fyrir 16000 kr. Mörg mikils- varðandi málefni eru nú á pingi, svo sem um lagaskóla, um Möðruvallaskólann (er skal fremur vera gagnfræðisskóli en búnaðarskóli, og skólastjóri eigi búfræðingur), um nýjan toll á vínföngum og jafnvel um toll á kaffi, um sölu áfengra drykkja (er kaupmenn eigi mega selja minna af í senn en 3 pela, og eigi veita í búðum, jafnframt pví sem á er kveðið, að veitingamenn og kaupmenn eigi megi selja vín á sunnudögum, og skuluveit- ingamenn hafa að minnsta kosti 6 rekkjur), um gjörðardóma í landaprætumálum, um að pjóðeignir fáisjt keyptar, um að leggja niður landlæknisembættið, en setja í pess stað heil- brigðisráð í Reykjavík, um reglugjörð og laun hreppstjóra, um smáskamtalækningar (er leyfð- ar skulu hverjum ráðvöndum manni, ersýslu- nefnd álítur par til hæfan), um vitagjald og um afnám lestagjalds og annara banda, er liggja á siglingum og verzlun (jafnframt slcal leyfa sveitaverzlun). J>ingið er og búið að löggilda einn nýjan verzlunarstað við Jökulsá á Sólheimasandi, og um fleiri nýja verzlunar- staði er verið að ræða. Líklegt er, að tvö

x

Norðanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.