Norðanfari


Norðanfari - 06.08.1879, Page 3

Norðanfari - 06.08.1879, Page 3
— 74 — mestu jþingmálin, prestamálið og landbúnað- arlagamálið, verði eigi útldjáð á pessu pingi. Jeg parf pví síður að rita Nf. nákvæm- lega um athafnir pingsins sem «ísafold» gefur almenningi glöggar skýrslur um úrslit allra þingmála og jafnframt kemur með «Alpingis- frjettir» í viðaukablöðum, er verða munu 10—20 arkir, og flytja ágrip af þingræðum. Til að gefa út þessar «Alþingisfijettir» hefir ritstjórinn fengið allmikinn styrk af almanna fje, og eru þegar komnar út 5 arkir. í ráði er, að byggt verði alþingishús, er jafnframt skal vera geymslustaður fyrir «stipts- hókasafnið» og forngripasafnið. Landshöfð- ingi hefir lagt fyrir þingið áætlanir um bygg- inguna. Er svo ráð fyrir gjört, að kostnað- urinn verði 60—80000 kr. Yeðrátta er góð hjer á Suðurlandi; þur- viðri mikil og jafnvel um of, svo að gras- vöxtur er í minna lagi. Fiskiafli var hjer mjög góður í vor, en er nú að minnka. Lít- ið gefa lcaupmenn fyrir saltfiskinn, aðeins 40 kr. skpd., og allar íslenzkar vörureruhjer í lágu verði. Nýjar hæltur. Stafróf náttúruvísind- anna. I. Efnafræði. Gefm út af hinu íslenzka bókmenntafjelagi. Rvík 1879. Stafróf náttúruvísindanna. II. Eðlislýsing jarðarinnar. Gefin út af hinu ísl. bókm. fje- lagi. Rvík 1879. Jónas Jónasson, læknir. 'Um eðli og lieilbrigði mannlegs líkama. (Keypt handa hinu ísl. bókm.fjelagi). Rvík 1879. Allar þessar bækur eru mjög fræðandi fyrir alþýðu. j»ær eru með mörgum mynd- um til skilningsauka. Fjelagar bólcmenntafje- lagsins fá í sumar hækur þessar, og þar að auki Yíga-Glúms sögu og Ljósvetninga, auk Skírnis og íslenzka frjettaritsins. Sjera Jón Bjarnason. Nauðsynleg hug- vekja. Prentuð í prentsmiðju prentfjelags Nýja Islands, Lundi, Keewatin, Canada. 1879. J>eir, sem vilja vita deili á safnaða-ágrein- ingi íslendinga í Ameríku, norsku sýnódunni og fl. er þar að lýtur, ættu að lesa þessa fögru hugvekju. Munu þeir þá eigi lengur hlusta á. lúðurþeytara norsku sýnódunnar hjer á landi. P. E. Kristian Kaalund. Bidrag til en historisk-topografisk Beskrivelse af Island. II. 1. Nordfjærdingen. Með4Kort. Khavn 1879. Fyrri hluti þessarar bókar er áður útkominn og þykir vel saminn. Konráð Gíslason. Njáll eller Niáll. Khavn 1879. Fróðlegt rit um kveðskapar-rím forn- manna. Frjettir útlendar. Kaupmannahöfn, 6. júlí 1879. Ef jeg á að rita þjer nokkurar linur um atburði í útlöndum, ,,Norðanfari“ sæll, verð jeg að byrja á Danmörku því að það- an eru einna merkilegastar frjettir, er Danir hafa nú á sumri þessu haldið h itíð í minning þess að háskóli þeirra var 400 ára gamall. Snemma var byrjað að rita og ræða um hátíðina, og var í fyrstu svo til ætlað, að hún skyldi verða almenn há- tíð, þ. e. að til hennar skyidi bjóða mönn- um frá hískólum allra landa í Evrópu. Enn er sú fregn barst hingað, að þjóðverj- ar og Austurríkismenn hefði (þ. 11. d. okt. 1878) samið um með sjer að láta brottu falla 5. grein í Pragarfriðnum, urðu Danir mjög harmi lostnir, með því að nú var út- sjeð um, að þeir myndu nokkuru sinni fá aptur þenna landshluta; það er ekki laust, sem Bismark heldur. Háskólastjórnin lagði bví það til, að bjóða eigi J>jóðverjum og e,gi öðrum en Norðmönnum (þ. e. Svium Norvegsmönnum og Finnum); hugði hún, að þar sem þeir ætti um svo sárt að binda, myndu menn eigi komast hjá því að láta einhver styggðaryrði falla til óþæginda fyr- ir hvora um sig. J>ó var Eischer kennslu- og kirkjumálastjóri mótfallinn þessu mjög, og gjörði þann kost á, að hafa annaðhvort allsherjarhátíð eða bjóða engum, og tók há- skólaráðið upp hinn síðari kost. En ekki mun Bismark kippa sjer upp við dönsk bituryrði; þeir lifa lengst, er með orðum eru vegnir. Hófst svo hátíðin þ. 4. dag júnímán. Nemendur söfnuðust saman á til teknum stað og gengu skrúðgöngu til Frú- arkirkju, en háskólakennarar o. fl. söfnuð- ust á háskólanum og gengu þaðan til kirkju. 1 kirkjunni hjelt háskólastjóri Madvíg höf- uðtöluna; gat hann um mun þann er á væri háskólanum fyrrum og nú; minntist merkra manna, er unnið hefðu skólanum gagn og sóma o. s. frv. Að kveldi sama dags hjeldu nemendur hátíðarsamkomu á Klampenborg, sem er í norðurfrá Kaupm. höfn. Fluttu 4 skip nemendur fram og aptur; þar voru haldnar fjörugar ræður; var íslands fyrst virðulega og maklega minnst, síðan annara landa, og var þeim orðum svarað af gestunum; læknisfræðing- ur Davíð Skeving svaraði fyrir hönd ísl. nemanda og fóru honum allvel orð. Var síðan fastlega drukkið, og er til tekið, hve fjörlega og gleðilega sú veizla haíi fram farið. Næsta dag var hátíðín haldin á há- skólanum sjálfum; voru þar afhentar nafn- bótaskrár þeim sem doktorar urðu við há- tíð þessa, og gestirnir lögðu fram heillaósk- ir til háskólans. Um kveldið var hátíð á lystigarðinum Tívoli með ógurlegum flug- eldum og hringlogum eða glæsibálum. Var það til minningar um grundvallarlög Dana; var þar samankominn hinn mesti manngrúi (15,000 manna). Siðasta daginn var dans- leikur ákaflega mikill er nemend ir hjeldu, og veizla hjá konungi á höll þeirri, er Kristjánshöll nefnist. Lyktaði svo hátið þessari; hafði hún farið fram svo glæsilega sem auðið var, úr því svo var ráðið sem ráðið var. Hjer í Höfn dvelur nú dóttir konungs sem er gipt „ræsissyni í Rússíá“, með börnum sínum; það hið yngsta er stórfursti veturgamall. Við háskólann hafa 2 íslendingar tek- ið embættispróf, Sigurður Sigurðarson í málvísi með 1. einkunn og Einar Thorla- cius í lögvísi með 2. einkunn; erhannsett- ur sýslumaður í Skaptafellssýslu. Enn hafa 4 Isl. tekið próf í heimspeki hjer: Páll Briem, er fjekk dável, og Jóhannes Ólafs- son, Geir Zocga og Finnur Jónsson, og fengu allir ágætlega. önnur merkust tiðindi frá útlöndum er lát Hlöðvis, sonar Kapoleons 3. Hafði h inn gengið í lið Englendinga það, er berst við Zúlúkaffa í Suðurafríku; varhon- um hrósað fyrir hugdirfð. Hann for með fáa menn til þess að skoða landið, og átti að velja búðastæði fyrir lierinn. Vissu þeir þá eigi fyr af, en Zúlúar rjeðu að þeim og ljetu dynja á þeim örvar sínar; þeir sem skjótast komust á bak, tíýðu sem fætur toguðu og gættu eigi prinsins, en hann varð ofseinn, og drápu Zúlúar hann þar. 17 sár fundust á líkam hans. Olli þetta mikl- um harmi einkum Evgeníu móður hans, er lagðist hætt, og liggur enn; þykir nú illa til horfast fyrir Napoleonsliðum á Frakk- landi, er þeir eru nú foringjalausir, og ætla menn, að þeir ráði eigi lögum nje lofum framar á Frakklandi. par sýsla menn helzt að kennslumálum, er þjóðvaldsmenn vilja hrífa úr höndum hins kaþólska klerka- lýðs til þess að gjöra kennsluna frjálsari en áður, en klerkar standa fastlega i móti, J því að ef þessu náir fram að ganga, missa þeir þau hin miklu völd yfir múgmenni er þeir hafa liaft, og haldið því í vanfræðslu og taumbandi. Eigi er lokið enn málum þessum. Englendingar liafa sæzt við Afgana; hafa látið Jakub khan halda ríki og heita sjer trúnaðareiða og látið hann lofa því, að áreita eigi þá þegna sína, er með Englum hjeldu; hafa þeir nú búið þannig um hnút- ana í Asíu, en á Afríku eru þeir enn eigi búnir að bíta úr nálinni; enn með þvi að þeir nú geta snúið sjer að þeim einum, þá þykir líklegt, að þeir innan skamms muni sigur úr býtum bera. Sá heitir Chelms- ford lávarður, er liði þeirra stýrir þar; þyk- ir hann fremur seinn og er gefið að sök hvern ósigur Englar hafa beðið þar. í Rússlandi gengur illa og er ástandið þar hörmulegt. Alneitunarmenn (níhilistar) vaða uppi með morðum og ofsagangi, svo að lögregliðið hefir ekki við að bæla niður; um páskaleytið var skotið á keisarann, og varð þá allt í uppnámi; hervörður settur harður í Pjetursborg, og mátti varla nokkur um frjálst höfuð strjúka. Eigi má sjá, hvar við lendir. Tyrkir eru í mestu vandræðum með allar fjárreiður sínar, sem komust í óreiðu við styrjöldina miklu við Rússa. Á J>ýzka]andi hafa orðið ráðgjafaskifti. Bismark hefir samið ný toll-lög og róið öllum árum að, að koma þeim fram; þeir er í móti hafa mælt, hafa því orðið að víkja, og aðrir komið auðveldari í þeirra stað, svo að nú hefir Bismark fram sín lög, sem öðlast gildi þegar; hjer er verið að ræða um toll af kaffi, sykri, steinolíu, víni, tó- baki o. fl. Um uppruna hesta. Til þessa hafa menn eigi getað fært Ijós rök að því, hvar á hnettinum hið upprunalega heimkynni hestanna sje, og kemur það eink- um af því, að menn hafa fundið allstaðar í hinum gamla heimi leifar af hestum, er benda á líkan aldur. J>annig hafa menn x flestum suðlægum og mörgum norðlægum löndum í Asíu og Evrópu fundið í þrílaga- myndun jarðarinnar steingjörvinga af hófdýr- um, er að sönnu eru nokkuð breytilegar að stærð, sköpulagi og byggingu, en sem þó óefað til heyra hestum liðins heimsaldurs — kyninu H i p p u s, en ekki E q v u s. Hið elzta hófdýr, er menn hafa fundið í Evrópu, er Hippotherium, sem fannst í farvegi Mainzár (við Eppelsheim). J>að var þó næsta ólíkt hestum vorra tíma, því í staðinn fyrir eina tá (einn hóf), á hverjum fæti, hafði það 4 tær á hvorum framfæti (fjórða táin var ófullkomin) og 3 á hvorum apturfæti; annars var það á stærð við asna. J>ó hafa enn þá eldri leifar af fornum hestdýrum fundizt í Asíu, og hafa því sumir komizt að þeirri niðurstöðu, að hestarnir muni vera upprunnir þar (eins og maðurinn og ýms önnur dýr, sbr. 1. bók Mósesar). J>á hafa og fundizt hjer og þar f hinum gamla heimi forn hófdýr, er mynda stigbreyt- ingu frá Hippotherium með 4 t.'un til hins núlifandi hestakyns (E q v u s), þannig Palaeotherium með 3 tám, A n o- plotherium með 2 tám, hið einhæfða Anchitherium og Hipparion, sem hafði tvær lagtær, er náðu niður að hófskeggs- lið, og svo loksins fyrri jarðalda E q v u s. Nýlega hefir steingjörvingafræðingur einn í Norður-Ameríku, prófessor M a r s h í New- Havea (Cincinnati), sannað, að Ameríka sje

x

Norðanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.