Kristileg smárit handa Íslendingum - 02.01.1869, Qupperneq 1
KRISTILEG SMÁIUT
IIANDA ÍSLENDINGUM.
M 2.
SJÓMAÐUUINN Á HELGULANDI.
Fyrir vestan Jótland er ey ein lítii, er Helguland
heitir; þar gjörðist fyrir nokkrum úrum saga þessi:
Maður er nefndur Tómas; hann var fátækur og
lifði á flskiveiðum, eins og ílestir aðrir eyjarbúar. Tómas
var kvæntur og átti son einn, er Danjel hét; hann var
þá 18 vetra að aldri. Það var einhverju sinni nm mið-
degisbil, að sjómenn komuaðlandi; voru þeir þáfremur
dauflr í bragði, því enginn aíli hafði verið í langan tíma.
Undir eins og Tómas var lentur, gekk hann heim, en
Danjel setti skipið með félögum sínum. En er Danjel
kom heim, var faðir hans háttaður og kvartaði um liöf-
uðverk og beinverki. Tómas gamli var ekki lasinn að
jafnaði, og því var kona hans nú mjög áhyggjufull, og
fór að heita tevatn handa honum. Hún var hnigin á
efra aldur; svipur hennar var svo raunalegur, að það
var auðséð, að hún hafði reynt mæðu og andstreymi
lífsins um dagana; alla sína æfi hafði hún verið á Helgu-
landi, og aldrei séð annað af heiminum, en eyna, him-
ininn yfir henni og hafið í kringum hana.
Tómas gamli var vanur að fara öðruhverju til Ham-
borgar, að selja afla sinn. Nú var ferð þangað fyrir
höndum ; Tómas vildi þá einnig fara, en koria hans
3. ár.