Heilbrigðistíðindi - 01.03.1872, Blaðsíða 14

Heilbrigðistíðindi - 01.03.1872, Blaðsíða 14
30 ur af bólusótt. Á þessu sama skipi var og annar maður, August Nielsen að nafni, er hafði auðsjáanleg merki þess, að hann væri nýlega staðinn upp úr bólunni. Skip þetta var þá þegar lagt í sóttvörn, og sjúklingurinn fluttur inn að Laugar- f nesi. Skipstjóranum og sumum, sem áttu hlut að máli, þótti þetta hart, og skipstjóri, sem eigi hafði sagt til, að hann hefði haft veikan mann og var þess vegna sektaður, mun hafa haft á orði, að kæra mig og bæjarfógeta, þá er hann kæmi niður. Skipið fór hjeðan snemma í marzmánuði, en eptir því sem /o sagt er í brjefum frá Kaupmannahöfn, varð skipstjóri veikur ( hafi, og lá með skip sitt, þegar síðast spurðist, í sóttvarnar- haldi í Leirvík á Hjaltlandi. f>að var meira heppni en forsjá, að landsmeun eigi veiktust af þessu skipi. Af þessu dæmi má ljóst sjá, hversu handónýt sóttvarnarlöggjöf vor er, sem upp- /5 áboðin er fyrst með opnu brjefi 20. d. júním. 1838. Skömmu síðar kom frakkneskt fiskiskip með 2 bóluveika menn ; annar þeirra var aðframkominn og dó á sóttvarnarhúsinu; hinum batnaði, og fór þá aptur um borð í fiskiskipið. UM ÝMSAR ÍSLENZKAR LÆKNISJURTIR. ■20 Með því grös og jurtir fara nú bráðum að lifna, þykir mjer vel tilfallið, að geta hinna helztu tegunda þeirra, er til lækn- inga má hafa á voru landi, og var jeg byrjaður á þeim á bls. 96. í fyrsta árgangi tíðinda þessara. Fyrst var þar getið um hvannarótina og hvannarótar-blöðin og fræið; nú vil jeg víkja 25 máli mínu að annari alkunnugri jurt, en það er 2. Blóðbergið. Jurt þessi, sem heyrir til hins 14. flokks í Linneusar jurtakerfi, l.orðu, sem nefndar eru nakinfræjaðar (Gymnospermia), og sem eptir náttúrlega kerfinu heyrir til blóð- bergsættarinnar (Thymelacea) (en sú grasa-ætt er mjög stór, og 3o teljast til hennar ýmsar læknisjurtir) hefur lengi verið þekkt á landi hjer, og mun almennt, áður en kaffidrykkjurnar fóru að tiðkast, hafa verið við höfð í tevatn. Nú er henni víðast hvar, og það án efa með litlum rjetti, kastað fyrir borð sem dagleg- um drykk, því menn halda það sje nú hollara og betra, að drekka eitthvert mórautt skolp af samsulli því, er «brennt lcaffin

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.