Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Blaðsíða 40

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Blaðsíða 40
40 ERÁ ÍSLENDINGUM í VESTURHEIMI. um vegabœtur, fátœkramál, dánarbú, uppboð o. fl. Byggða- stjórar kveðja til funda og stjórna þeim, halda reikninga o. fi. Allir byggðarnefndamenn skulu á sameiginlegum fundi kjósa einn mann, er nefnist þingráðsstjóri, og er hann kosinn til eins árs í senn, skal hann ásamt hinum 4 byggðastjórum mynda ráð, er nefnist þingráð; það skal eiga einn aðalfund árlega. J>ing- ráðsstjóri skal kveðja til þingráðsfunda og stjórna þeim, hafa á hendi alla reikninga, er allt þingið varðar og tilkynna byggða- stjórum þau mál, sem nauðsyn er að rœða á byggðafundum. Hann skal vera milliliður millum yíirstjórnarinnar og byggða- stjóranna, flytja mál við stjórnina og birta skipanir hennar. |>ingráðið sker úr þrœtum manna í þeim málum, er byggðirnar varðar, ella sje málið lagt í gjörð. Atkvæðafjöldi ræður úrslit- um mála á fundum. Sáttamenn í einkamálum skulu árlega kosnir í hverri byggð. Lögum þessum má breyta á almennum þingráðsfundi. Júngráðsstjóri var kosinn Sigtryggur Jónsson, en byggðastjórar: Björn Jónsson í Víðirnesbyggð, Bjarni Bjarna- son í Árnesbyggð, Jóhann Briem í Fljótsbyggð og Jón Berg- sveinsson í Miklueyjarbyggð. J>á komu og nýlendumenn skipun á kirkjumál sín. Eptir ósk þeirra sömdu þeir Jón Bjarnason og kandidat Hall- dór Briem frumvarp til kirkjufjelagslaga fyrir nýlenduna. Kirkju- fjelagið er lúterskt, en ritningin ein áreiðanleg regla fyrir trú manna, kenningu og lífi. Kirkjuíjelagsstjórnin er í höndum formanns, skrifara og fjehirðis, en kirkjusiðirnir hinir sömu eða líkir því, sem tíðkazt hefur á íslandi. Nýlendumenn fjellust á frumvárp þetta; en nú var eptir að fá prest; höfðu þeir nú verið prestþjónustulausir frá því að Fáll prestur I>orláksson var á ferð hjá þeim sumarið áður. |>eir áttu kost á að fá hann fyrir prest, en hann var bundinn kirkjufjelagi nokkru norsku, er þeir eigi gátu þýðst. |>ar á móti óskuðu þeir að fá fyrir prest Jón Bjarnason, er var ritsjóri blaðsins «Budstikken» suður í Bandaríkjum. í júlímínuði tókst hann ferð á hendur norður til nýlendunnar, skírði þar börn, gipti hjón og flutti ræður fyrir mönnum. Varð fólkið honum alls hugar fegið, og ljet í Jjósi innilega löngun eptir því, að hann yrði þar prestur. Hon- ura leizt vel á nýlenduna og gazt vel að fólkinu, en eigi gat

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.