Fréttir frá Íslandi - 01.01.1877, Blaðsíða 49
49
unni þann9.júní verið á eldsvæðinu og skrifar mjer, að hraunið
ekkert hafi útfereiðzt síðan snemma í aprílm., nokkur aska og
vikur hefur fallið síðan rjett í kring við smágosin i apríl og
maí, reykir standa enn þá víða upp úr hrauninu, en eru
miklu minni en áður, og úr gígunum rýkur ail mikil gufa. Herra
Nielsen vogaði sjer og yfir hraunið, sem enn þá eigi var full-
kúlnað, inn að nyrztu gígunum og fjekk mæltstærðþeirra. Stœrsti
gígurinn er 100 feta víður og 90 feta djúpur, hinir nokkru
minni; uppúr smáopum í botni þeirra streymir gufa.
Eldfjöll liggja alstaðar á hnettinum nálægt höfum eða
stórum stöðuvötnum, og þykir það benda á, að sjór eða vatn
muni hafa einhverja verkun á eldgosin. Engin vissa er enn
fengin fyrir því, hver sje hin eiginlega orsök eldgosa, en lík-
legast þykir það nú, að upptök þeirra eða eldstó sje í jarð-
skorpunni, ekki mjög langt frá yfirborðinu, og verði ætíð eldgos
við það, að sjór eða vatn nái gegnum undirgöng inn til eld-
stóarinnar og verði þar við hita að gufu, sem með þrýst-
ingi sínum rjúfi op á yfirborð jarðarinnar, og spýti því,
sem yfir gufustólpanum er, í lopt upp; að því leyti er þá
þrýstingur afarheitrar gufu aðal-orsök eldgosa; en því nœst
verður spurt: hvaða uppruna hefur þessi hiti, sem þannig
breytir innstreymandi vatni í gufu? um það eru ýmsar
meiningar, en engin vissa. Flestir eru á þeirri meiningu, að
eldur myndist á sjálfum staðnum í jarðskorpunni við ákafar
efnablandanir og breytingar, en það er kunnugt, að við þær
myndast ætíð hiti, og það vita menn, að þær eiga sjer einkum
stað í vissum lögum jarðskorpunnar, þar sem mikið er fyrir af
ósýrðum málmum og jarðefnum, og sem, um leið og þau sýrast
af súrefni aðstreymandi vatns, fram leiða þennan ákafa hita
eða eld.
Önnur skoðun er sú, sem kalla má hina gömlu, og
sem nú þykir ólíkleg, það er: að öll miðja jarðarinnar sje
glóandi, og að út frá þessum glóandi kjarna gangi eldæðar
eins og reykháfar að yfirborðinu, að þær opnist við eld-
gosin og sjeu því gígarnir ekki annað en eins konar ör-
yggissmugur (Ventiler) fyrir hinn innri hita og eld, sem ella
mundi sprengja jarðarhnöttinn í sundur. En á móti þessari skoð-