Tíminn - 22.04.1871, Page 1

Tíminn - 22.04.1871, Page 1
2. blað. 1871. v Akureyri 22. apríl. — í því eina hálfa-arki af riti þessu sem út er kornið, var þess geíið, að ef kaupendur fengist svo margir að líkindi þætti til að prentunarkostnaðurinn rnundi fást borgaður, þa yrði því haldið á- fram. — Þó eigi sje enn sem komið er, hægt að segja, hvað marga kaupendur blað þetta fær alls, eður hvert það geti orðiö matvinnungur, þá er hitt víst að hin blöðin telja eigi mikið ileiri kaup- endur á því litla svæði er það hefir kom- ið á. í stuttu máli: frjálslynd ung- menni og kvennþjóð kaupa blaðið, og eigi síður embættismenn, bændur og vinnumenn o. s. frv, — Af þessum á- stæðuin verður blaðinu haldið áfram — ef allt gengur kristilega og skaplega —, og er svo til ætlazt að það komi í hálf- um eður heilum örkuin eptir atvikum. — Þegar fram í sækir verður leitast við að hafa blaðið svo skeunntilegt sem hægt er — hvert það tekst eður eigi —, þó fvrstu blöðin kunni að þykja dauíleg. Útg. Lifi Frelsið. Lýða fönn úr háum hlíðum, hlýir vindar suðri frá ; vorsól geislum vermir blíðum, velli skrýða blómin smá; syngur fugl í fríðum lundi, fögur gleði-kvæðin sín nú er mál að bregðum blundi, bráðum frelsis röðull skín. Sú var tíð að frónið fanna, frjálsir byggðu hreystimenn ; þetta fornar sögur sanna, sem í heiðri geymast enn ; þær oss gullöld glæsta sýna, þá gumar báru sverð og skjöld ; og hvernig fjör og dáð nam dvína dimmt við hennar æfikvöld. Lengi kvöldu klakafrónið, kaþólsk stjórn, og verzlunin; og þeim jafnframt unnu tjónið, illar sóttir, harðærin; þjóð að ýmsri hneigðist heimsku hjátrú sannleiks birtu fól; frægð og menntun fjell í gleymsku, frelsis gullna byrgð var sól. í*eir sem vora fósturfoldu, frelsi rændu sæmd og auð ; fúnir dökkri felast moldu fá ei lengur valdið nauð; þó mun æ, um alla daga ísland vansa muna sinn; slíkum gleymt ei getur saga, geymd er þeirra minningin. Engin slíka tíma tregar, telja þjóð má sælli nú; flest er breytt til betra-vegar bráðum rætist vo.nin sú, að hin gamla Garðarseyja geti sönnu frelsi náð, þó blóðug stríð sje hætt að heyja, hefst að nýju þrek og dáð. Nú sú stundin nálæg bíður,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.