Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Side 16

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Side 16
16 landsuðrhorni fjarðarins, þar inn með brekkunum, milli þeirra og Músarár, eins og hún rennr nú. Svo sem 100 faðma fyrir innan fjarðarvikið, þar á dálítilli hæð, er yzta búðin sem nú sést á Þorskafjarðarþingi. Hún er fornleg mjög, enn þó greinileg, og hin glöggvasta, sem þar sést. Búðin snýr út og inn, austr og vestr, og er 24 fet á lengd, enn 21—22 fet á breidd. fíún er öll vaxin lyngi og grasi, ogíbæði vestr-gaflhlaði og norðr-hliðvegg mótar fyrir stórum undirstöðu- steinum. Dyr hafa verið út úr vestrhorni búðarinnar, rétt við gaflhlaðið á þeim hliðvegg sem að ánni veit. Veggir eru mjög útflattir. Þessi búð er Þorkelsbúð eftir sögunni (1.) — 24 föðmum innar og neðar á eyrinni er tóftin, sem bygð hefir verið fyrir skýli á Kollabúðarfundum; þar rétt fyrir neðan, nær ánni, er og nýr kumbaldi eða tóft, sem auðsjáanlega hefir verið bygðr of- an á endann á fornri búð, og hefir þá verið rifið grjót upp úr ytri hlut búðarinnar. Hún virðist hafa verið 42 fet á lengd og 24—25 fet á breidd, að þvi er mælt verðr. Efri hliðin er mjög óglögg, því að meira er rifið þar upp, enn neðri brún veggjar- ins, er að ánni veit, er glögg; dyr sjást ekki af því áðrtalda umróti; búðin snýr út og inn eins og hin. Þetta hefi eg heyrt, er eg var ungr, að væri búð Gests Oddleifssonar (2.) Svo sem 16 —17 föðmum neðar og utar er og upphækkun nokkur, búð (3), scm er afiöguð og brotin af vatnagangi og grjóti, enn þar á milli sést nokkurn veginn glögt fyrir vestri hliðvegg; hinn er að mestu afbrotinn, nema partr að sunnanverðu. Þó mun þetta verið hafa búð, því að þar sést fyrir lileðslusteinum í neðra hlið- veggnum, og hún snýr eins og hinar. Búðin verðr ekki mæld, því að af báðum endum er brotið, sýnist þó ekki verið hafa all- lítil. Svo sem 28 föðmum þar beint innar er upphækkun nokkur komin í þýfi, um 5—6 faðmar á aunan veg, enn 3—4 á hinn. A þessu sýnist vera mannaverk (4.); þó er það varla búð. Mætti geta til, að væri haugr Þorkels Súrssonar(?) Beint innar frá þessu mannvirki um 22 faðma upp með ánni eru 2 búðir, er liggja samhliða, snúa út og inn, og er mjótt sund millum þeirra. Þær ganga nokkuð á víxl, þannig að gaflarnir standa ekki jafn- langt fram og upp. Þær eru allar orðnar stórþýfðar, enn veggi má þó deila, og er það mikil upphækkun í heild sinni. Sú sem er nær ánni (5) er 50 fet á lengd og 23 fet á breidd; dyr hafa sjáanlega verið við vestra gaflhlað á nyrðra hliðvegg búð- arinnar. Syðri búðin, sem er nær brekkunni, er 72 fet á lengd og 23 fet á breidd; dyr sýnast hafa verið á hinum nyrðra hlið-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.