Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Blaðsíða 52
52
ir ákaflega þykkvir og vallgrónir. Yfir þvera tóftina sýnist jafn-
vel hafa verið milluraveggr, enn hann er svo óljós, að ekki verðr
með vissu um það sagt. 7—8 faðma út frá hoftóftinni er girðing
allmikil, og er hún kölluð blóthringr. Girðing þessi er á annan
veginn rúmir 20 faðmar, enn á hinn veginn fullir 16 faðmar.
Girðingin er ekki kringlótt, því að sú hliðin er beinni, sem að
hoflnu snýr. Bæði eru mannvirki þessi fornleg og hafa borið
þessi nöfn, svo lengi sem menn vita til.
Hellisheiði o. fl.
(23. julí).
Það er ekki rétt, sem sumir hafa ætlað, að þeir Þorkell
Geitisson og Bjarni Broddhelgason hafi farið yfir Hellisheiði áðr
enn þeir börðust í Böðvarsdal. Hebisheiði er yzti fjallvegr milli
Pljótsdalshéraðs og Vopnafjarðar og ofan hjá bæ þeirn, er hét
Þýfi (enn er nú í eyði) og rétt gagnvert Eyvindarstöðum. Heldr
hafa þeir hlotið að fara yfir fjallið miklu innar, út og upp frá
Sleðbrjótsseli, og komið ofan í svo nefndan Frökkudal, sem er
dalverpi suðr úr Böðvarsdalnum. Sá vegr er miklu styttri, þeg-
ar komið er innan af Fljótsdalshéraði, og fara á til Vopnafjarð-
ar, og er sú leið farin enn í dag af gangandi mönnum, enn þeir
Þorkell vóru gangandi, eins og sagan segir, því snjór var mikill.
Heiðin er í sögunni ekki nefnd neinU sérstöku nafni, sem þó
mundi hafa verið gert, ef um Hellisheiði hefði verið að ræða.
Enn þessi fjallvegr, sem farinn er ofan í Frökkudal, hefir heldr
ekkert nafn. Bær sá, er sagan talar um, enn nefnir ekki neinu
nafni, sem Þorkell Geitisson gisti á rétt við heiðina, hefir eflaust
verið þar sem nú er kallað Laugarsel; þar sést enn til húsatófta,
og vottar fyrir túngarði á tvo vegu. Frá Laugarseli og ofan að
Eyvindarstöðum er rösk bæjarleið, og kemr það beint heim við
orð sögunnar, og er hægt að tiltaka nokkurn veginn svæðið þar
sem þeir börðust við túngarðinn áEyvindarstöðum, því að nokkuru
innar í túninu enn túngarðrinn er nú á Eyvindarstöðum, er brot
af gömlum túngarði, sem liggr ekki alveg niðr að ánni, eins og
sá sem nú er, enn beygist út fyrir neðan bæinn (nú í miðju túni).
Blasir því beint við frá bænum svæði það, sem bardaginn hefir
verið á, og er framan við túngarðinn nær þvi niðr við ána,
fram undan fjárhúsinu, sem stendr niðr ítúninu. Allaþessastaði
hefi eg athugað, og farið inn dalinn, alt inn undir Frökkudal, og
skoðað Laugarsel. Þegar þannig er skilin sagan, og að þeir Þor-