Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 8
8
einn einasta skilding fyrir. Hann hafði samið ágæta skýrslu um
stofnun safnsins og gert ítarlega skrá með nákvæmum lýsingum af
gripum þess, sem Jón Sigurðsson lét Bókmentafélagið gefa út 1868.
Þetta vissu menn og viðurkendu, safnið hafði fyrir frábæran dugn-
að Sigurðar Guðmundssonar vaxið framar öllum vonum og það var
ósæmilegt, að honum, algjörlega efnalausum manni, skyldi engin
þóknun verða í té látin fyrir alt hans mikla og góða starf til almenn-
ings heilla og Islands sæindar.
Þar eð alþingi hafði 1865 og aftur 1867 tekið svo vel undir
bænarskrár umsjónarmannanna um fjárstyrksbeiðni, leituðu þeir til
þess í þriðja skiftið er það kom saman 1869, þrátt fyrir nýfengið
afsvar stjórnarinnar, svo sem áður var sagt. Þeir rituðu 3. ágúst
»uppástungu« um safnið, lýstu ástandi þess og þörfum, kvörtuðu
undan að allar staðbundnar fornmenjar í landinu eyðilegðust, en
forngripirnir söfnuðust burt til útlanda; kváðust vona að stjórnin
myndi sannfærast um þá nauðsyn, sem hér væri á styrkveitingu, og
báðu alþingi um að senda konungi enn einu sinni bænarskrá um
300 rd. árl. styrk úr ríkissjóði1). Þingið fór með málið sem í bæði
fyrri skiftin2), samþykti nefndarálit um bænarskrá og var hún samin
og send konungi sem fyr; var nú beðið um 300 rd. árlegan styrk
úr ríkissjóði til eflingar safninu og þóknunar handa umsjónarmönn-
um þess, eða til vara, að konungur leyfði að verja mætti í þessum
tilgangi fyrst um sinn, þangað til fjárhagsskilnaðurinn kæmist á, um
300 rd. á ári af þeim 4000 rd., sem árlega voru áætlaðir til ófyrirsjá-
anlegra útgjalda Islands, og að stiftsyfirvöldunum yfir íslandi yrði
falið á hendur að ákveða, hve mikið af þessum styrk skyldi ganga
til umsjónarmanna safnsins sem þóknun fyrir fyrirhöfn þeirra3).
Bæninni um 300 rd. árlegan styrk til safnsins var eigi fremur
en áður veitt áheyrsla af stjórninni, en fyrir góð meðmæli konungs-
fulltrúa, stiftamtmanns Hilmars Finsens, í álitsskjali hans 21. sept.
1869, þóttist stjórnin eftir kringumstæðunum og án allra afleiðinga
seinna meir, svosem styrk í eitt skifti fyrir öll, geta séð af 500 rd.
af fé því er áætlað var til óvissra útgjalda íslands; tilkynti hún
stiftamtmanni þennan gleðiboðskap 5. marz næsta ár4) og hann aftur
umsjónarmönnum safnsins 13. n. m. Þetta fé kom sér vel. Helm-
ingurinn af því gekk til að búa til herbergi á kirkjuloftinu handa
*) Uppástungan er prentnð i Alþ.tíð. 1869, 2. bls. 736—39.
*) Alþ.tið. 1869,1., bls. 126-30, 244-51, 260-63, 2. bls. 168-70, (nefndarálit),
176—77 (atkvæðaskrá).
s) Alþ.tið. 1869, 2., bls. 244-47.
*) Tíð. um stjm. ísl. III, bls. 22.