Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 12

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 12
12 hegningarhúsinu meðan á aðgjörðinni stæði, og samþykti bæjar- stjórnin sama dag að veita stiftsyíirvöldunum þessa beiðni; tilkynti bæjarfógeti þeim það 28. s. m., þau aftur forstöðumönnum safnsins það 10. marz s. á., og skyldi safnið flutt fyrir lok þess mánaðar og var það gjört. Safnið mun hafa verið í borgarasaluum unz það var fiutt í hið nýja hús fyrir alþingi og söfnin, sem bygt var 1881. Veitti alþingi með fjáraukalögum fyrir 1880—81 eftir áætlun Sig- urðar Vigfússonar og tillögu landshöfðingja 500 kr. til þess að flytja safnið og koma því fyrir í hinum nýju húsakynnum. Fékk Sigurð- ur helming þess fjár fyrir starf sitt við flutning og röðun safnsins. Flutningurinn mun aðallega hafa farið fram á miðju sumri 1881 og við lok þess árs telja stiftsyfirvöldin (í bréfi til landsh. 23. des.) að Sigurður sé þá »að miklu leyti búinn að koma safninu i það skipu- lag, sem það á að vera í til sýningar almenningi«. Alþingi 1879 veitti Forngripasafninu 400 kr. á ári á fjárhags- tímabilinu 1880—81 til gripakaupa og ennfremur til umsjónar jafn- mikla upphæð, 400 kr., á ári, en helmingur þeirrar upphæðar var ætlast til að gengi til Sigurðar Vigfússonar til þess að semja skýrslu um Forngripasafnið til þess tíma frá 1870, nefnilega framhald hinnar prentuðu skýrslu eftir Sigurð Guðmundsson. Sigurði Vigfússyni voru greiddar á þessum árum 1880—81 þessar 400 kr. til skýrslugjörðar- innar, síðustu 100 kr. í júní 1881; kvaðst hann þá því nær albúinn að semja skýrslu þessa. í byrjun ársins 1882 kom út eitt hefti af þesSari skýrslu Sigurðar Vigfússonar; var það lýsing á þeim grip- um, sem Forngripasafninu höfðu bæzt frá byrjun ársins 1871 til miðs árs 1876 (nr. 827—1062). Bókmentafélagið gaf út þetta hefti svo sem hin fyrri og var auðvitað tilætlun höfundarins og þáver- andi stjórnar Reykjavíkur-deildar félagsins, sem gaf út heftið, að haldið yrði áfram útgáfu skýrslunnar. En það varð þó ekki; Bók- mentafélagið fór með þessa bók eins og fleiri bækur, sem það hefir byrjað að gefa út, hætti við hálfgjört verk, og við það situr enn. Sigurður hefir að líkindum samkvæmt áðurgreindu bréfi stiftsyfir- valdanna samið skýrsluna alt til loka ársins 1881, og mun hann hafa afhent stjórn Bókmentafélagsins í Reykjavík handrit sitt. Hvað orðið hefir af því síðan, er prentun þess heftis, er út kom, var lokið, er nú með öllu óvíst; því mun aldrei hafa verið skilað aftur til höf- undarins né Forngripasafnsins, og mun nú mega telja það glatað, — til mikils skaða fyrir safnið, eins og síðar skal drepið nánar á, og er sá skaði enn óbættur að mestu leyti. Frá lokum júlímánaðar 1877 til byrjunar ársins 1882 er nefnilega engin dagbók eða skýrsla til frá umsjónarmannanna hendi, nema fyrir lítinn hluta ársins 1880 (frá 14. júní til 15. nóv.).

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.