Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 31
31
og leið svo fram til þess að umsóknarfrestur var úti. Þá lét Pálmi
loks tilleiðast fyrir margra manna orð, að sækja um sýslanina aftur,
en þá töldu stiftsyfirvöld það um seinan; munu þau þá hafa verið
búin að heita henni öðrum. Urðu úr þessu nokkrar blaðadeilur,
sem hér skal ekki farið nánar út í1). Pálmi fór frá safninu 1. okt.
1896, eftir að hafa verið við það liðug 4 ár.
Eftirfarandi skýrsla sýnir vöxt safnsins á þeim 4 árum, er það
var undir umsjón Pálma Pálssonar; ber þess þó að gæta, að síðari
helmingur ársins 1892 hefir verið talinn með hinum fyrri í skýrsl-
unni hér að framan, þótt safnið væri þá undir stjórn Pálma, og að
síðasti fjórðungur ársins 1896 verður talinn með hinum þremur
fyrstu, enda þótt safnið þá, eins og þegar var bent á, væri undir
stjórn eftirmanns Pálma:
1893 Gripir fengnir okeypis 30 Keyptir gripir 1372) Sam- tals i;‘)7 Tala gripa við árslok 3957
1894 24 853) 109 4066
1895 100 56 156 4222
1896 964) 43 139 4361
250 321 571
Eftirtektarvert er hversu margir gripir bættust safninu ókeypis
2 hin siðari árin; að ekki voru fleiri gripir keyptir þau ár kemur
af þvi, að fyrra árið (1895) var greitt tiltölulega mjög mikið fé
fyrir smíðar og aðgerðir, en um 300 kr. eftir óeyddar við árslok,
geymdar til næsta árs, og voru þá (1896) greiddar ailmiklar upp-
hæðir fyrir suma gripina, sem þá voru keyptir, t. d. um 500 kr.
fyrir 7 þeirra, og nokkurum hundruðum króna var þá einnig varið
fyrir smíðar og viðgerðir.
Helztu gripirnir, er safnið eignaðist á þessum árum voru þeir,
er nú skal greina á líkan hátt og áður:
1893. Legsteinn Ulfheiðar Þorsteinsdóttur (»Úlfheiðarsteinn«),
frá Hofi í Vopnafirði (nr. 3915)5).
Sigurður Jónsson bóndi á Draflastöðum: Fornt altarisklæði úr
Draflastaðakirkju, útsaumað (nr. 3924) o. fl.
Þórður Stefánsson bóndi í Saxhvammi: Forn skaftpottur úr
fitusteini (nr. 3927), 3 fornar nælur úr bronzi o. fl. (3928—31).
*) Sjá ísafold XXIII, 59. og 61. tbl. og Pjallkonuna XIII, 34. tbl.
2) Þar á meðal 2 smásöfn af kvensilfnrgripum.
s) Þar á meðal 24 myntir.
*) Þar af 20 gripir frá Landsbókasafninu.
6) Sjá Árb. 1896, bls. 43—45, m. mynd.